Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1971, Blaðsíða 33

Frjáls verslun - 01.08.1971, Blaðsíða 33
þegar það miklir, að á slíkt hefði naumast verið bætandi fyrir dagblöðin f jögur, sem flest hafa átt við mikla fjárhagsörð- ugleika að etja. Öðru máli gegn ir um Morgunblaðið. sem eitt dagblaðanna hefur sýnt fjár- hagslegan hagnað svo árum skiptir. Um hagnað Morgun- blaðsins og tap hinna blaðanna er örðugt að fá upplýsingar. Tapið er áreiðanlega mjög mis- munandi og líklegast að Vísir standi þó einna bezt að vígi. Þar hafa, raunar eins og á hinum dagblöðunum, verið gerðar markvissar tilraunir til að skera niður útgjöld og auka tekjurnar. Margt bendir til þess að Vísi hafi tekizt þetta betur en hinum blöðunum af því að hann hefur lengi verið eina síðdegisblaðið auk þess sem á því hafa ekki hvílt kvað- ir sem flokksblöðin stynja und- ir, ekki sízt þegar útgáfan eykst fyrir kosningar. Upplag allra blaðanna nema Alþýðublaðsins hefur aukizt ár frá ári. Alþýðublaðið hefur m.a. goldið þess að hafa ekki getað endurnýjað tækjakost sinn nægilega ört. enda er prentun blaðsins stórgölluð, þannig að efni blaðsins nýtur sín ekki, einkum myndirnar. Setjaravél- ar blaðsins eru einnig komnar til ára sinna og hefðu vissulega þarfnazt endurnýjunar. Prent- vél Tímans er sennilega á síð- asta snúningi, auk þess. sem hún er mjög dýr í rekstri, en það hefur hjálpað Tímanum við rekstur hennar, að prentun Vísis hefur um nokkurt árabil farið fram í þessari vél. Prent- un í vélinni er mjög misjöfn og hún þarfnast töluverðar natni ef vel á að vera. Nokkur endurnýjun í setjarasal Tímans hefur farið fram á síðustu ár- um. Þjóðviljinn kostaði tals- verðu fé fyrir nokkrum árum til endurnýjunar og skipulags- breytinga vegna hagkvæmra prentvélakaupa og var umbroti blaðsins þá breytt þannig að síður stækkuðu til muna. Þá hefur á Morgunblaðinu átt sér stað mikil skipulagsbreyting í prentsmiðju og hefur verið kostað miklu fé til endurnýjun- ar í setjarasal. Um leið og hin nýja prentsmiðja tekur til starfa verður sennilega óhjá- kvæmilegt að setja á markað innanlands eða erlendis setjara- vélar fyrir margar milljónir króna. Þó mun ekki í öllum tilfellum afráðið hvernig tækj- gætu bent til þess að íslending- ar væru duglegustu blaðales- endur í heimi. Alþjóðlegar upp- lýsingar benda þó til að svo sé ekki og eru Svíar nú fremst- ir meðal blaðalesenda. Auk þess er rekstrargrudvöllur íslenzkra blaða að því leyti hæpnari en dagblaða í mörgum öðrum löndum, að auglýsingamarkað- ur er mjög takmarkaður. Aðeins ÞRÖNGAR AÐSTÆÐUR HJÁ ÍSLENZKUM BLÖÐUM. Eins og áður sagði hefur upp- lag flestra blaðanna aukizt ár frá ári. Upplagstölur þær, sem dagblöðin senda frá sér eru hins vegar ekki að öllu leyti ábyggi- legar í öllum tilvikum. Þær unum verður ráðstafað, eða því húsnæði. sem þau standa nú í. Þessar frabæru eld- varnarhurðir eru smið- aðar eftir sænskri fyrir- mynd og eru eins vandaðar að efni og tæknilegri gerð og þekking framast leyfir. Eldvarnarhurðirnar eru sjálfsagðar fyrir miðstöðvarklefa, skjala- skápa, herbergl sem geymd eru í verðmæti og skjöl, milll ganga í stórhýsum, sjúkrahús- um og samkomuhúsum, þar sem björgun mannslífa getur oltlð á slikri vörn gegn útbreiðslu elds. Eldvarnarhurðir GLÓFAXA eru viður- kenndar af Eldvarnar- eftirliti ríkisins. Glófaxi hf Armúla 24. Simi 34236. FV 8 1971 33

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.