Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1971, Blaðsíða 37

Frjáls verslun - 01.08.1971, Blaðsíða 37
ýmis léttur iðnaður risið upp, svoi sem lyfjafferð, leður og gúmmíiðnaður, keramikgerð og fleira. Ætla mætti að landslag væri ekki fjölbreytt í svo litlu landi, en ferðamenn, sem í æ ríkari mæli leggja leið sína til Luxem- burgar sjá fljótt, að svo er ekki. Eins og áður segir er land- ið hálent í norðurhlutanum en í suðurhlutanum eru frjósöm landbúnaðarsvæði. Á hálendinu er hvergi neitt eins stórkostlegt og Alpafjöllin, en bessi hrjósr- ugi hluti landsins hefur sér- stæðan svip og býr yfir mikl- um töfrum. Ferðamenn, sem hafa yndi af gönguferðum og náttúruskoðun leggja æ meir leið sína til bessa hluta lands- ins. Þeir sem kunnugir eru á bessum slóðum segja, að hvergi sé eins fjölbreytt útsýni og eins margir útsýnisstaðir. Hálendi þetta heitir E’sleck. Nokkur landbúnaður er stundaður á þessum slóðum, en til skamms tíma var það miklum erfiðleik- um bundið vegna þess hve hrjóstrugt landið er þarna. Nú er farið að framleiða áburð á iðnaðarsvæðunum og hafa bændur í E’sleck notfært sér hann með góðum árangri. Þegar komið er norðan úr hálendinu birtist manni frjó- samt láglendi með lágum ávöl- um hæðum og daladrögum. Þetta er það, sem landsmenn kalla Bon Pays eða góða land- ið. Þarna er aðal landbúnaðar- svæði landsins og mikil vín- ræktarsvæði. Meðal helztu vín- svæðanna er Moseldalurinn, sem margir kannast við. Fyrir utan stál og vín, flytja lands- menn einnig út svínakjöt og rósir. Ferðamannastraumurinn til Luxemburgar hefur farið vax- andi á undanförnum árum og hafa landsmenn nú all góðar tekjur af ferðamönnum. Hafa menn komizt að því, að margt er að sjá í landinu þótt ekki sé það stórt. Mesta aðdráttar- aflið hafa þó vínræktarsvæðin og frjósamir dalir góða lands- ins. 8SLENZK FVRIRTÆKI ‘71 LEIÐANDI FYRIRTÆKJABÓK SKRIFSTOFUSTÓLAH FRÁ STÁLIÐJUNNI í KÓPAVOGI ÚRVAL - VÖNDUN - LÁGT VERÐ KIIÓM - HCSGÖGN Hverfisgötu 82, Reykjavík. Sími 21175 LEIÐAINIDI IVIAT- OG IVÝLEIMDUVÖRt- HEILDVERZLtlXI SÍÐAM 1912 Nathan & Olsen hf. Ármúla 8, Reykjavík. Sími 81234. FV 8 1971 37

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.