Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1971, Blaðsíða 9

Frjáls verslun - 01.08.1971, Blaðsíða 9
Sjónvarpift Mlundi kosta um 15 mili- jónir að sjónvarpa í júlí Sumir eru guðs-lifandi fegn- ir. aðrir álíta sjónvarpið bregð- ast skyldu fjölmiðils — en alla vega lokar íslenzka sjónvarpið í júlímánuði ár hver’t, og margt getur gerzt á styttri tíma, eins og raun ber vitni. FV hefur reynt að afla sér upplýsinga um það. hver kostnaður fylgdi því, að hætta að loka sjónvarp- inu þennan mánuð. Svörin voru á þá leið, að fastur efniskostn- aður ykist í hiutfalli við aðra Margvísleg störf eru unnin áð- ur en myndin birtist á sjón- varpsskerminum. mánuði, svo og útsendingar- kostnaðurinn, en erfiðara væri að álykta um kostnað við starfs- mannahald, þar sem það væri í lágmarki miðað við 11 mánaða útsendingu og þyrfti því að öl'l- um líkindum að bæta við starfs- mönnum allt árið. En ágizkun- in sem út úr þessu kom. var sú. að það kostaði a.m.k. um 15 milljónir að hafa sjónvarpið opið í júlí, en það þýddi um 4-500 króna hækkun á afnota- gjaldi hvers notanda. Framkvæmdastjóri sjón- varpsins. Pétur Guðfinnsson, tjáði FV, að ekki væri hlaupið að því að halda uppi fullum rekstri allt árið, nema með veru- legum breytingum á starfs- mannahaldi og vinnutilhögun, sem þýddi aukinn reksturs- kostnað svo miklu næmi, þ.e.a.s. ef unnt ætti að vera að halda uppi a.m.k. sama magni af inn- lendu efni. Ekki væri til neins að stytta dagskrána eða fara annan milliveg, því þannig yrði ekki komizt undan þeim vanda, Litasjónvarp að hafa starfslið í lágmarki en gefa því jafnframt sumarleyfi með eðlilegum hætti. Það virðist því ekki vera nema um tvennt að velja, að hver sjónvarpsnotandi bæti á sig 500 króna útgjöldum á ári, eða að sjónvarpið loki áfram í júlí. Og líklegast verður þetta óbreytt um sinn, þannig að þess vegna gætum við skipt um rík- isstjórn þrjátíu og einu sinni á ári án þess að sjónvarpið vissi af því. Gjaldeyrissjóðurinn hyrfi eins og dögg fyrir sólu! „Tæknilega er það ekki mik- ið vandamál fyrir sjónvarpið að hefja útsendingu á litmynd- um, og það yrði ekki svo til- finnanlegur kostnaður við það,“ sagði Pétur Guðfinnsson fram- Andrés Indriðason stjórnar upptöku ásamt aðstoðarfólki. kvæmdastjóri, þegar FV spurði hann um hvenær litasjónvarp- ið kæmi hingað. En á hverju stendur þá? „Þetta yrði fyrst og fremst vandamál fyrir not- endur sjónvarpsins, sem yrðu að kaupa sér ný og þrefalt dýr- ari sjónvarpstæki og e.t.v. að borga eitthvað hærri afnota- gjöld þar ofan á, og svo þjóð- arbúið með tilliti til gjaldeyris- eyðslunnar. Nú eru sjónvarps- notendur um 41 þúsund tals- ins. og ef keypt væru 41 þús- und litasjónvarpstæki i stað þeirra tækja sem nú eru í notk- un og yrðu þar með verðlaus, kostaði það nokkuð á 4. mill- jarð króna, eða næstum allan gjaldeyrissjóðinn. eins og hann er nú. En auðvitað yrði breyt- ingin ekki hespuð af á einu bretti og tæki nokkurn tíma. Engu að síður er þetta fyrst og fremst pólitísk spurning um notkun fjármuna og gjaldeyris. Persónulega hef ég ekki trú á því, að við skiptum yfir í lita- sjónvarp á allra næstu árum, og býst við því fyrst jafnhliða því, að þau sjónvarpstæki, sem til eru í landinu frá fyrstu ár- um sjónvarpsins, ganga úr sér. Þá gætum við sagt að skiptin hæfust eftir svona 5 ár“. FV 8 1971 9

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.