Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1971, Blaðsíða 12

Frjáls verslun - 01.08.1971, Blaðsíða 12
Þessar stúlkur eru sýningargestum til aðstoðar. þá smærri sýningar, en ekki stóra sýningu fyrr en árið 1973 og sennilega alþjóðlega sýn- ingu 1975. Það er greinilega mikill áhugi hér á landi á sýn- ingum, enda hafa þær verið góð tilbreyting í hversdagsleik- anum. Það þætti gott, ef 50 þúsund manns kæmu á vöru- sýningu erlendis, til dæmis í Danmörku. BEINT SAMBAND VIÐ NEYTENDUR FV: Hvað borgið þið í leigu fyrir sýningahöllina? G: Leigan er um 1100 þús- undir króna. Knstnaðurinn miklu meiri, til dæmis greiðir sýningarstjórnin hálfa milljón í auglýsingar, meðan sýningin stendur, svo að aðeins einn lið- ur sé nefndur af fjölmörgum, sem sumir hverjir skiptahundr- uðum þúsunda. Kostnaðurinn, sem fvrirtæk- in sjálf greiða fyrir þáttttöku sína, er ekki ýkja mikill, ef tillit er tekið til þess, að sýn- endur hafa möguleika á því að komast í persónulegt samband við bann mikla fjölda, er sækir sýninguna og koma þannig á framfæri beint þeim hlutum, sem máli skipta. Það má auð- veldlega geta sér þess til, að til þess að ná svipuðum árangri í hinum venjulegu auglýsinga- miðlum þvrfti stórum hærri upphæð. Við leggjum hins veg- ar áherzlu á, að fyrirtækin, sem sýna, auglýsi jafnframt í blöðum, hljóðvarpi og sjón- varpi og veki athygli á sýn- ingardeildum sínum til að nýta sem bezt þetta tækifæri sitt. Þau verða að tengja sem bezt alla þætti sölustarfsins, ef ár- angurinn á að verða eins góður og kostur er. STARFSFÓLK ER AÐ VERÐA VEL ÞJÁLFAÐ FV: Þið farið að kunna til verka við sýningarhald. G: Starfsfólkið er smám sam- an að verða vel þjálfað. Hér starfa ýmsir menn, sem hafa unnið við margar sýningar áð- ur. Við vorum á undan áætlun, og allt hefur gengið fljótt fram að þessu, Það væri þó æskilegra, að sýnendur væru fyrr á ferðinni. Fyrirtækin hafa tíu daga, áður en sýningin hefst, til að koma sér fyrir í sínum deildum. í fyrra voru þó aðeins tvö eða þrjú byrjuð fyrsta daginn, og furðu margir lögðu í mikla næturvinnu á elleftu stundu. Óþarft ætti að vera að minna á, hve mikið þetta kostar fyr- irtækin. Þeir peningar væru vafalaust betur notaðir á öðr- um sviðum. Við munum hafa tiu stúlk- ur í sérstökum búningum á svæðinu. Þær eiga að vera auð- þekkjanlegar og þeirra hlut- verk er að aðstoða fólk og vísa því veg. Annars verður grunn- FRANCH MICHELSEN ÚRSMIÐUR LAUGAVEGI 39 REYKJAVÍK mynd af svæðinu við inngang- inn, og á öllu svæðinu er sam- tengt hátalarakerfi, þar sem fólki verður bent á ýmislegt á svæðinu. ,,Á þessum sýningum kem- ur alltaf fram mikið af nýjung- um,.“ segir Gísli B. Björnsson að lokum. „Markmiðið er að kynna þær, og um leið kemur fram, hvort þær standa fyrir sínu.“ Austurstræti 14 — Sími 12345 Laugavegi 66 — Simi 12322 10 FV 8 1971 — FYLGIRIT

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.