Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1971, Blaðsíða 26

Frjáls verslun - 01.08.1971, Blaðsíða 26
Vörurnar hafa mest auglyst » © » g p sig sjaltar Byggingarvöruverzlun Kjart- ans Jónssonar sýnir fullbúið baðherbergi í nýtízkulegasta búningi. Fyrirtækið selur IFÖ- vörur frá IFÖ-Verken í Bro- Kjartan Jónsson. mölla í Svíþjóð, sem eru stærstu verksmiðjur sinnar teg- undar í allri Evrópu. IFÖ- postulínsvörurnar hafa hið létta og aflíðandi ítalska lag, sem meðal annars gerir hreins- un vaska og annarra hreinlæt- istækja auðvelda. Auk IFÖ-hreinlætistækjanna sýnir fyrirtækið blöndunartæki, baðker o. fl. frá vestur-þýzku fyrirtæki. Byggingarvöruverzlun Kjart- ans Jónssonar og Veggfóðrar- inn h.f. veyða saman með sýn- ingardeild, þar sem bæði fyrir- tækin leggja fram sinn skerf til að gefa gestum kost á að sjá, hvernig baðherbergi lítur út, búið vörum frá þeim. Við komum auga á þarfaþingið „bidet“ og spyrjum Kjartan, hvort Islendingar séu meira farnir að kunna að meta þetta gagn, sem víða er talið ómiss- andi í baðherbergjum. „Það selst talsvert núorðið,“ segir Kjartan. „Fólk er smám saman að kynnast því, og það notar það áfram, þegar það hefur einu sinni kynnzt kostum þess.“ FV: Hverjir eru þínir helztu viðskiptavinir? K.J.: „Það er fyrst og fremst unga fólkið, og þetta merki nýtur mjög vaxandi vinsælda hjá því. Auk þess seldum við til dæmis öll hreinlætistækin í Tollstöðvarbygginguna nýju, og við höfum selt sjúkrahúsum og mörgum öðrum, ekki sízt hrað- frystihúsum á Vestfjörðum, sem nú eru að endurbæta hrein- lætisaðstöðuna hjá sér með til- liti til nýju reglnanna um út- flutning á bandaríska markað- inn. Okkur hefur alla tíð gengið ágætlega, frá því að ég stofnaði fyrirtækið árið 1967, og salan er stöðugt að aukast. Við höf- um ágæta aðstöðu hér að Hafn- arstræti 19, mitt í borginni. Hér höfum við gott geymslu- rými og dyr í allar fjórar átt- ir, sumar fyrir viðskiptavini og aðrar fyrir aðflutninga.“ FV: Bindur þú miklar vonir við vörusýninguna? K.J.: „Eftir þeirri þátttöku, sem hefur verið í þessum sýn- ingum, þá hef ég mikla trú á, að þetta geti haldið áfram. Við gerum okkur góðar vonir um sýninguna. Við höfum auglýst tiltölulega lítið í fjölmiðlum, því að reynslan hefur verið sú, að þessar vörur auglýsa sig sjálfar, þegar fólk segir öðru frá reynslu sinni. Sýningarþátttakan í samræmi við brezku vikurnar „Það er óvenjulegt fyrir brezka framleiðendur að „sýna allt“,“ segir Brian Holt, ræðis- maður Bretlands á íslandi. „Við erum að mestu hættir því á Bretlandi. Þar eru vörusýning- ar venjulega miðaðar við ein- hverja sérstaka grein hverju sinni.“ Verzlunarráðið brezka skipu- leggur á vörusýningunni sér- staka brezka deild, þar sem rúmlega þrjátíu brezk fyrir- tæki eiga vörur. Brezki verzlunarfulltrúinn, Ralph Hannam, tók í sama streng. Hann sagði, að þessi sýningarþátttaka væri í sam- ræmi við „brezku vikurnar" í borgum víða um heim, þar sem brezkir framleiðendur hafa kynnt vörur sínar. Báðir lögðu áherzlu á, að þátttaka brezku fyrirtækjanna væri ágæt auglýsing fyrir þau, enda væri það mat brezka verzlunarráðsins. Að ýmsu leyti mætti líta á þetta sem athug- un, og mætti búast við mun meira framlagi brezkra fyrir- tækja á sýningum á íslandi í framtíðinni, ef vel tækist til. Ralph Hannam sagði þó, að brezk stjórnvöld veittu nú Ralph Hannam. 21 FV 8 1971 — FYLGIRIT

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.