Frjáls verslun - 01.08.1971, Page 23
Sýnendur
Alþjóðlegar vörusýningar eiga
framtíð fyrir sér á íslandi
segir Hervald Eiríksson, stórkaupmaður
„Umboðsmenn mínir erlend-
is hefðu gjarna óskað. að ég
hefði haft enn stærra sýningar-
svæði til umráða á vörusýning-
unni,“ segir Hervald Eiríksson
stórkaupmaður. Hervald Eiríks-
son er með á annað hundrað
fermetra sýningarsvæði og sýn-
ir þar meðal annars ýmiss kon-
ar verzlunarinnréttingar frá
Storebest. og verða innréttað-
ar ýmsar tegundir verzlana á
sýningarsvæðinu. Kæli- og
frystitæki fyrir verzlanir verða
sýnd frá IWO A/S, sem nú þeg-
ar er orðið vel þekkt merki
hérlendis. Jafnframt verða
sýndar pökkunarvélar, PVC
plastpökkunarfilma, sem „and-
ar“, eins og kallað er, sem ger-
ir það að verkum. að geymslu-
þol vörunnar eykst, Auk þess
verða sýndir umbúðapakkar,
ýmsar vélar fyrir kjöt- og ný-
lenduvöruverzlanir. verðmerki-
vélar, Turn-O-Rite auglýsinga-
teikniáhöld, peningaskápar og
fleira.
FV: Þú vaktir fyrir nokkrum
árum athygli fyrir nýstárlega
vörusýningu.
HE: Reynsla mín af vöru-
sýningum er einstaklega góð.
Það má segja, að ég hafi komið
fótunum undir mitt fyrirtæki,
begar ég fékk mína erlendu um-
boðsmenn til að innrétta sér-
stakt skip til að hafa sýningu í
hérna í höfninni. Þessi sérstæða
sýning vakti athygli, og komu
fréttir um sýninguna í flestum
fjölmiðlum. Árangurinn varð
frábær, þótt sýningin stæði að-
eins í þrjá daga.
FV: Hvað telur þú, að muni
vekja mesta athygli á þínu sýn-
ingarsvæði fyrir utan verzlun-
arinnréttingarnar?
HE: Ég tel, að það muni
verða nýjasta gerðin af Biz-
erba-vogum, en þær eru þeim
kostum búnar. að engin töf
verður eða bið, þegar vigtun á
sér stað. Um leið og varan er
lögð á vogina, stanzar nálin og'
sýnir þyngd og verð á því, sem
verið er að vigta. Jafnframt
sér viðskiptavinurinn framan
við afgreiðsluborðið kg-verð á
þeirri vöru, sem verið er að
vigta, og getur því fylgzt ná-
kvæmlega með því, að rétt sé
vigtað. Með þessari vog sparast
sá tími, sem fer í að bíða þess,
að nálin stanzi, útreikningur er
enginn. því að nálin bendir á
verð vörunnar.
Gólfþvottavélarnar frá Am-
erican Lincoln munu líka vekja
athygli, því að með þeim er
hægt að spara geysilegan tíma
og kostnað við ræstingu, sem
víða er talsvert stór kostnaðar-
liður í rekstri fyrirtækja. Þess-
ar vélar eru algerlega sjálfvirk-
ar og mjög fljótvirkar.
FV: Það hefur stundum verið
gagnrýnt, að sýnendur séu ekki
nógu „li:fandi“ á vörusýningum.
Færð þú til dæmis erlenda um-
boðsmenn til að koma hingað?
HE: Já, vissulega. Erlendu
umboðsmennirnir hafa sýnt
mjög mikinn áhuga og þeir
vilja leggja sig fram um að láta
þetta fara sem bezt úr hencji.
Á mínum vegum koma hingað,
meðan sýningin stendur, átta
erlendir sérfræðingar, og með-
al annars þrír framkvæmda-
stjórar stærstu erlendu fyrir-
tækjanna sem ég skipti við.
Verzlanir hafa látið í ljós áhuga
á þeim nýjungum, sem ég kynni
á vörusýningunni. Ég hef með-
al annars sent dreifibréf til
verzlana og hvatt forráðamenn
færið, og viðtökurnar hafa ver-
ið ágætar. „Alþjóðlegar vöru-
sýningar eiga tvímælalaust
framtíð fyrir sér á íslandi“, seg-
ir Hervald Eiríksson að lokum.
þeirra til að notfæra sér tæki-
FRJÁLS VERZLUN
VETTVANGUR ATHAFNA-
OG VIÐSKIPTALÍFS
ÁSKRIFTARSÍIVII 82300
FV 8 1971 — FYLGIRIT
21