Frjáls verslun - 01.08.1971, Side 24
Sýnendur
Okkar vörur eiga erindi
til allra
Rætt viö Björn hjá Sportveri hf.
Sportver hf. á nú þrjár herra-
fataverzlanir í Reykjavík,
Herrabúðina, Herrahúsið og
Adam. Fyrirtækið hefur verið
í hröðum vexti. og þar vinna
um 40 manns í verksmiðju fyr-
ir utan starfsfólk verzlananna.
Björn Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Sportvers segir,
að markmiðið sé, að íslenzk
fataframleiðsla sé fyllilega
samkeppnisfær við hina er-
lendu í verði og gæðum.
„Það er þýðingarlaust fyrir
okkur að stunda iðnað, nema
við náum þeim árangri, að við
stöndum jafnfætis erlendu
keppinautunum,“ segir Björn.
„Við megum ekki byggja á
vernd. Þetta hefur verið við-
horf okkar í Sportveri, enda er
enginn efi á, að framleiðslunni
fer stórlega fram.“
FV: Þið hafið vakið athygli
með auglýsingum ykkar. Kem-
ur þessi kostnaður til skila?
Hagur að hagræðingum.
BG: Við leggjum gífurlega
mikið í auglýsingar, og það
hefur borgað sig. Við höfum
einnig lagt út á þá braut að fá
hingað erlenda hagræðingar-
ráðunauta. Við hófum á síðast-
liðnu ári samvinnu við stóru
dönsku fataverksmiðjurnar G
Falbe-Hansen. Við framleiðum
meðal annars nú eftir sama
stærðakerfi og þeir og notum
sams konar efni og þeir. Af
þessu höfum við haft mikinn
hag í framþróun framleiðslu
okkar. í framhaldi af þessu
samstarfi hafa komið til okkar
hagræðingarráðunautar frá
Hygens í Osló, og eru þeir nú
að vinna að því að bæta enn
betur um, bæði hvað snertir
gæði og afköst. Norskir hag-
ræðingarráðunautar ihafa ver-
ið hér meira og minna síðan
í vor. Okkar nýja framleiðsla
er afleiðing af því starfi. Þetta
miðar allt að því, að við verð-
um betur búnir undir að keppa
við hugsanlega innflytjendur,
þegar þátttakan í EFTA verður
orðin fullkomin og tollar úr
sögunni.
FV: Hvaða kosti hafa vöru-
sýningar fyrir okkur?
BG: Það er nauðsynlegt að
taka þátt í sýningum til að
kynna framleiðsluvörurnar og
í þessu tilviki sérstaklega til
þesE a« allur almenningur geti
Björn:
„Markmiðið er, að íslenzk fata-
framleiðsla sé samkeppnis-
fœr.”
gert sér grein fyrir því, hver
sé raunveruleg staða íslenzks
iðnaðar gagnvart því vörufram-
boði, sem fná samkeppnislönd-
unum. Mér finnst, að æskilegt
sé, að sýningar séu sem almenn-
astar, þar sem mikill fjöldi
kemur. Okkar vörur eiga erindi
til flestra eða allra borgaranna,
og við höfum tiltölulega fáa
stóra kaupendur, svo að okkar
hagur er að sem almennastri
þátttöku.
Sportver hf. sýnir fatnað með
hinu kunna CORONA-merki,
alfatnað herra, staka jakka og
buxur. Grétar Franklínsson
verzlunarstjóri í Herrabúðinni
sér um og veitir upplýsingar í
sýningardeildinni.
Sá óheppni
— verður veikur daginn áður
en sumarleyfið byjari
— gleymir lyklinum að íbúð-
inni, þegar vinkonan er með!
— er kosinn af samstarfsmönn-
unum lil þess að tala við for-
stjórann um léleg vinnuskil-
yrði!
22
FV 8 1971 — FYLGIRIT