Frjáls verslun - 01.08.1971, Page 37
SVERRIR BERNHOFT H.F.
heildverzlun, Garðastræti 13a
Sýnir ensk teppi á sýningunni.
T. HANNESSON &
COMPANY h.f.
Ármúla 7
Sýnir eftirtaldar vörur:
Frá D. Anderson & Son Ltd.:
Þakpappa, þakþéttiefni, niður-
föll, loftrúður o. fl. ásamt
módeli, sem sýnir fullkominn
þakfrágang á pappaþaki.
Frá Hannover Flooring GmbH,
Wunstorf, Þýzkalandi:
Vinyl-asbest gólfflísar, gólfdúk,
plastrennur, nýia tegund vegg-
klæðningar úr hörðu plasti
(P.V.G.).
Frá Hereford Tiles, Hereford,
Englandi:
Keramík veggflísar.
Frá Twyfords Limited,
Stoke-on-Trent, Englandi:
Hreinlætistæki í fimm litum.
Frá Carron, Falkirk, Skotlandi:
Baðker.
Frá Meynell Valves Ltd.,
Wolverhampton, Englandi:
Sjálfvirk hitastillandi blöndun-
artæki fyrir sturtur, böð o. fl.
TEPPI H.F.
Austurstræti 22
Sýnir íslenzk gólfteppi og ind-
versk gólfteppi.
TÍZKUVERZLUNIN FACO
Laugavegi 37
Aðaláherzla er lögð á að sýna
eigin framleiðslu fyrirtækisins,
en eins og kunnugt er, þá rekur
Faco saumastofu undir nafninu
Fatagerð Ara og Co.. og á henni
byggir fyrirtækið rekstur sinn.
Það sem sýnt er er því föt,
jakkar, stakar buxur, skyrtur
o. fl. í fötunum er aðallega um
tvö snið að ræða, hið fyrra er
sígilt fallegt snið. sem klæðir
alla, en hið síðara er meira
sportsnið með stórum utaná-
liggjandi vösum og spæl í bak,
ætlað fyrir þá sem vilja ekki
vera eins og allir aðrir.
Það sama má raunar segja um
stöku jakkana, nema ekki má
gleyma hinum sívinsæla SAF-
ARI jakka, sem enginn virðist
fá leið á.
Um liti er það að segja, að dökk-
ir litir eru mjög áberandi í
fötum og stökum buxum en
jakkar aftur á móti munstraðir
eða köflóttir.
Af öðru sem Faco sýnir má
nefna gallabuxurnar frá Levi’s
og Live-Ins sem náð hafa mjög
miklum vinsældum jafnt hjá
hinum yngri sem eldri.
Síðast en ekki sízt má nefna
að Faco býður nú, í fyrsta sinn
á Islandi, hin heimsfrægu jap-
önsku hljómtæki ,,SANSUI“
sem verzlunin hefur nýverið
fengið umboð fyrir.
TOYOTA UMBOÐIÐ
Höfðatúni 2
Sýnir myndir af nýjustu gerð-
um Toyota bíla. sem eru: Cor-
olla, Carina, Celica, Corona og
flaggskipið Crown. Einnig eru
sýndar jeppabifreiðir, sendi- og
vörubifreiðir, sem eru af Dyna
gerð og byrjað er að flytja til
landsins.
Celica verður til sýnis í Pop
deildinni, sem er í hringtjald-
inu.
TREFJAPLAST
Blöndósi
Kynna útisundlaug úr trefja-
plasti.
TRÉSMIÐJAN LERKI
Skeifunni 13
Eldhúsinnréttingar.
VEGGFÓÐRARINN
Umboðsmaður fyrir
S.ANDERSON vinyl veggfóður.
og KINGFISHER veggfóður frá
Englandi.
VÉLAVERKSTÆÐI BERN-
HARÐS HANNESSONAR
Suðurlandsbraut 12
Sýnir ýmis leiktæki svo sem
rennibrautir, klifurboga, rólu-
sett. vegasalt, snúningsstóla og
ruggubáta.
VÉLSMIÐJA HEIÐARS H.F.
Auðbrekku 41, Kópavogi
Sýnir burstavél, pækilker, fisk-
kassa ásamt burstavél sem fyr-
irtækið hefur smíðað sérstak-
lega fyrir þvott á lestarborðum.
Fyrirtækið smíðar alls konar
tæki fyrir fiskverkun úr alum-
mium og járni og sér einnig um
viðgerðir og aluminiumsuðu
(argonsuðu). Fyrirtækið sér-
hæfir sig í tækjum fyrir salt-
fiskverkun fyrir frystihús.
VERKFÆRI & JÁRN-
VÖRUR h.f.
Smiðjuvegi 7, Kópavogi.
Pósthólf 203, sími 43100
Sýnir á vörusýningunni:
Einangrunargler frá íspan h.f.
Sambyggða trésmíðavéi.
Járn rennibekki.
Rafmagnshandverkfæri.
Draghnoð og tangir.
Sandpappír og slípibelti.
Skotnagla og byssur.
VERZLANASAMBANDIÐ h.f.
Skipholti 37
Kynnir þakefni og frágang
flatra þaka.
1. ONDULINE eru báraðar as-
falt þakplötur, 200x89 cm. Þær
fást í rauðum og grænum lit,
tvær gerðir, og fylgir þeim sér-
stakur þaksaumur með plast-
haus. — Helztu kostir eru þeir,
að þær tærast ekki af seltu eða
sóti, þær einangra gegn hita og
kulda (leiðni aðeins 0,06). Þar
sem málning er óþörf, verður
viðhaldskostnaður hverfandi.
Verð svipað og á þakjárni BG
24.
2. SWEPCO HEAVY DUTY,
primer og sprungufyllir . er
fljótandi asfaltblanda, gerð sér-
staklega fyrir steinþök, pappa-
þök og járnþök og þakrennur.
Swepco hentar sérstaklega vel
til að þétta lek þök. — Helztu
kostir eru: Hægt er að bera
efnið á raka fleti, því að
Swepco hleypir raka í gegnum
sig. Swepco er blandað efnum,
sem halda því mjúku og sveigj-
anlegu í kulda sem hita, enn-
fremur asbest þráðum, sem
margfalda togþol efnisins.
3. SWEPCO þakpappalímið
„Adhesive 9“ er byltingar-
kennd nýjung, er leysir heita
asfaltið af hólmi við pappalögn
á steyptum þökum og öðrum.
Hentar einnig vel til að líma
upp rakavörn og einangrun í
frystiklefum. — Helztu kostir
eru þeir, að límið storknar
aldrei til fulls, og er það teygj-
anlegt, að það fylgir þenslu og
samdrætti pappans, án þess að
tengsl rofni. Límið er notað
kalt, eins og það kemur fyrir
úr umbúðunum. Sparast við
það mikil vinna og sérstakur
útbúnaður til upphitunar á as-
falti, sem notað hefur verið.
4. ALWITRA þakprofilar. Þak-
pappi er mikið notaður sem
efsta lag á þökin nú til dags.
Það hefur alltaf verið nokkurt
vandamál, hvernig ganga skuli
frá jöðrum þaksins, hvort held-
ur pappinn er látinn enda inn-
an á útveggjum eða á ytri brún
útveggja. Því veldur mismun-
andi þensla pappa og stein-
steypu. Steinsteypan hefur
„hrist pappann“ af sér með
tímanum. Með notkun Alwitra
þakprofila leysast þessi þenslu-
vandamál. Ennfremur er hægt
með notkun Alwitra að leiða
raka út, sem að öðrum kosti
mundi safnast fyrir undir papp-
anum og með tímanum sprengja
hann upp af þakinu.
FV 8 1971 — FYLGIRIT