Frjáls verslun - 01.03.1972, Blaðsíða 9
Kristján Ragnarsson:
Mjög alvarlegur vinnuafls-
skortur framundan
Afli næst ekki upp úr
togurunum vegna manneklu
Mjög alvarlegur skortur á
vinnuafli í sjávarútveginum
blasti við nú, þegar bátarnir á
vetrarvertíð skiptu yfir af línu
á net, að sögn Kristjáns Ragn-
arssonár, formanns Landssam-
bands ísl. útvegsmanna. Gífur-
legir örðugleikar voru fram-
undan, miklu meiri en á mörg-
um undanfömum árum, á öll-
um sviðum. Nefndi Kristján
sem dæmi, að afli næðist ekki
upp úr togurunum í Reykjavík-
urhöfn vegna manneklu. Er
stórkostlegur vandi fyrirsjáan-
legur, þegar togararnir fara að
landa hér heima á vertíðinni.
Fyrir skömmu var skýrt
frá því, í fréttum, að togarinn
Hafliði frá Siglufirði hefði siglt
milli hafna, allt suður til
Reykjavíkur, í þeim tilgangi að
fá mannskap um borð. Það
gekk ekki og hefur Hafliða nú
verið lagt á Siglufirði. Taldi
Kristján Ragnarsson, að skip-
verjar á Hafliða væru nú
komnir á atvinnuleysisskrá á
Siglufirði ásamt þeim fjöl-
mörgu, sem þar voru fyrir, er
skipið sigldi út fjörðinn í leit
að mannskap.
FÆREYINGAR HAFA NÓG
AÐ SÝSLA HEIMA
Tilraunir hafa verið gerðar
til að fá Færeyinga til vinnu á
vertíðinni, og eru hér nú
nokkrir tugir manna. Ekki hef-
ur tekizt að fá fleiri vegna
gjörbreytts atvinnuástands í
Færeyjum frá því sem var t.d.
á árunum 1956— 1958, þegar
1300 Færeyingar komu til
starfa á íslandi yfir vertíðina.
í fyrra voru kannaðir mögu-
leikar á, að fá hingað Skota til
starfa. Það tókst ekki. írar
voru hér við vinnu fyrir nokkr-
um árum, en þær tilraunit;
gáfust ekki vel og taldi Krist-
Er hcetta á, að hluta bátaflotans verði lagt vegna skorts á
mönnum?
FV 3 1972
9