Frjáls verslun - 01.07.1975, Qupperneq 15
Tölvur á Íslandí
i\lý tækni - auðveld notkun
Að undanförnu hefur bókhaldsnefnd á vegum Saimbands íslenskra sveitarfélaga unnið að stöðl'un
á bókhaldi allra sveitarfélaga á landinu og að sögn Unnars Stefánssonar, framkvæmdastjóra sam-
bandsins, miðar því verki all vel. IBM á íslandi hefur fylgst með verkinu og útbúið reiknilykla.
Fyrirtækið bauð einnig upp á að safna saman öllum gögnum héðan og láta vinna úr þeim úti í
Hamborg, en að sögn Unnars virðast menn frem ur vilja að úrvinnsla fari fram hérlendis. Hentugar
tölvur til þessa hafa hinsvegar fram undir þetta þótt harla dýrar enda miðaðar við stærri verkefni.
Nú er hinsvegar nýlega komin á markað hér ný gerð tölva frá IBM, sem þykir henta vel til þessa
og nú þegar hafa nokkur sveitarfélög tekið sig saman um kaup á þrem þessháttar tölvum og kom-
ið þeim upp. Tölvu þessari má lýsa á eftirfaran di hátt:
Á þrem til fjórum klukku-
stundum með tölvu á stærð við
meðal skrifborð, er nú unnt að
ljúka verkefni, sem aðeins fyrir
tólf árum hefði tekið þrjá til
fjóra daga að ljúka við með
tölvu, sem fyllt hefði meðal-
stórt herbergi.
Þessi afkastamikla nýja tölva
nefnist IBM System/32 og auk
fjölbreyttra hæfileika hennar
er fyrirferð hennar og verð
þannig að hún ex ekki ofviða ís-
lenskum fyrirtækjum, hvorki
kostniaðarlega né tæknilega.
Engan sérstakan umbúnað þarf
t. d. um hana, henni er stungið
í samband við venjulegan teng-
il og reynsla erlendis og einnig
hér sýnir, að fólk er ótrúlega
fljótt að læra á hana, eða
nokkrar klukkustundir. Þrátt
fyrir smæðina hefur hún; alla
eiginleika stærri tölva. Hún
skrifar t. d. út 100 línur á mín-
útu svo það tæki um hálfa klst.
að skrifa út 1000 viðskipta-
menn, seguldiskur geymir fimrn
til níu milljónir stafa eftir
stærð, og tölvan les 889 þúsund
stafi á einni sekúndu. Þetta og
eftirfarandi kom fram á fundi
með fréttamönnum hjá IBM á
íslandi, er tölvan var inýkomin
til landsins, en þegar er búið að
panta nokkrar svona tölvur hér.
EINFÖLD í STJÓRNUN
Svo að segja hver sem er
getur stjórnað IBM System/32,
að lokinni fárra klukkustunda
þjálfun. Letur- og reikniborð
tölvunnar líkjast vélritunar- og
reiknivélaborðum, enda er á-
sláttur þeirra sérlega einfaldur
og þægilegur. IBM sér um
kennslu á vélina, og veitir alla
nauðsynlega aðstoð við uppsetn-
ingu hennar.
Meginkostur IBM System/32
er sá, að tölvan er afar einföld
í notkun við úrvinnslu full-
skipulagðra verkefna. Hægt er
að fá tilbúin forrit fyrir stöðluð
verkefni, svo sem bókhald,
reikningsútskrift, laun o. fl.
Um þessar mundir vinna kerf-
isfræðingar IBM á íslandi að
stöðlun lausna fyrir sveitarfé-
lög. Kerfisfræðingar IBM á ís-
landi hafa mikla reynslu í með-
ferð verkefna, s. s. bókhaldi,
launabókhaldi, viðskiptabók-
haldi, lagerbókhaldi, o. fl.
Fulltrúar
IBM á
tslandi
kynna
notkun
nýju
tölvunnar.
FV 7 1975
15