Frjáls verslun - 01.07.1975, Blaðsíða 23
Samiiéarmaður
Haukur Hallclórsson, bóndi:
INiiðurgreiðslukerfið er fáránlegt.
Reglur um útflutningsbæturnar
þarf að endurskoða
Hefur stofnað stórbú með ýmsum nýjungum
Haukur Halldórsson, bóndi í Sveinbjarnargerði á Svalbarðsströnd er aðeins þrítugur að
aldri, en þó að aldrinum sé ekki fyrir að fara þá hefur hann þegar komið á fót einu af
stærstu kúabúum á landinu. Á búi hans eru milli 80 og 90 kýr og lauslega áætlað þá má
gera ráð fyrir að um 60 milljónir króna liggi í bústofni lians, byggingum og vélum. Þar
fyrir utan koma bæði jörðin og íbúðarhúsin, sem á henni standa. Búreksturinn í Svein-
bjarnargerði er á margan hátt óvenjulegur og þar hefur verið bryddað upp á mörgum
nýjungum og því sá Frjáls verslun ástæðu tilþess að heimsækja Hauk og fræðast nánar um
hann sjálfan og bú lians. Haukur er kvæntur Bjarneyju Björnsdóttur og eiga þau tvö börn,
tveggja og fjögurra ára.
F.V.: Hvað kemur til að
ungur maður eins og þú skul-
ir hefja búrekstur af þeirri
stærð, sem hér er, á sama tima
og unga fólkið í sveitunum
leitar frekar til bæjanna til
þess að tryggja sér örugga lífs-
afkomu?
Haukur: Það má i' raun og
veru segja að ég hafi alltai
verið ákveðinn i því að stunda
búskap. Ég er fæddur og upp-
alinn hér í Sveinbjarnargerði
og kynntist snemma þeim kost-
um, sem fylgja því að búa 1
sveit. Ég var líka ákveðinn í
því að reyna að skapa mér
sömu lífskjör og þeir sem
stunda aðra vinnu, bæði félags-
lega og tekjulega. Mér finnst
allt benda til þess að þetta sé
að takast hér i Sveinbjarnar-
gerði.
Búið er svo nálægt Akureyri
að við getum sótt allar þær
samkomur sem okkar langar til
að taka þátt í. Hér í sveitinni
er einnig nokkuð félagslíf,
sem gefur okkur tækifæri til
að kynnast nagrönnum okkar,
en það er meira en hægt er að
segja um marga þá sern búa í
þéttbýli. Fólk í bæjum getur
búið árum saman í iibúðum,
sem liggja hlið við hlið án
Hjónin Bjarney Björnsdóttir og Haukur Halldórsson með börnin
sín tvö í trjálundi við Sveinbjarnargerði.
FV 7 1975
23