Frjáls verslun - 01.07.1975, Qupperneq 40
Hermannagrafreitur Bandaríkjamanna í Luxemborg, þar sem 5100 hermenn eru grafnir. í minn-
ingargarðin'um eru myndir til að skýra Iokaátökin í Evrópu og bardagana í Luxemborg.
kort og vegvísar, sem eru víða
á helztu leiðum, ættu að gera
mönnum auðvelt að rata um.
£ Byrjað í kirkjugarði
Á stuttri ferð okkar um
Luxemborg' í vor nutum við
leiðsagnar fararstjóra, sem er
vanur að gefa útlendingum góð
ráð um ferðatilhög'un í land-
inu. Verður eftirfarandi ferða-
frásögn byggð á reynslu af
dagsferð um nokkur fegurstu
svæði Luxemborgar, sem þó
má fullyrða, að bjóði upp á
sitthvað fleira en hægt var
að kanna á svo snöggri ferð.
Það vakti athygli okkar, að
ferðin hófst í kirkjugarði.
Ekki þó svo að skilja, að við
hefðum frekar viljað enda þar.
Umræddur garður nýtur slíkr-
ar sérstöðu. að hann er oftast
hafður með í ferðaáætlun út-
lendinga i Luxemborg. Banda-
ríkjamenn heiðra þar minn-
ingu 5100 ágætra sona sinnar
þjóðar, sem féllu í bardögum
síðustu ár seinni heimsstyrj-
aldarinnar, og Þjóðverjar hafa
þar skammt frá grafreit með
leiðum 11000 hermanna sinna
úr báðum heimsstyrjöldunum.
Þar getur m. a. að lita leg-
steina með fæðingar- og dánar-
dögum, sem sýna hvernig ó-
hörnuðum unglingum hefur
verið att út á orrustuvöllinn
um það ieyti sem dagar Þriðja
ríkisins voru taldir.
í bandaríska hermannagraf-
reitnum eru höggmyndir, sem
lýsa m. a. sókn herja banda-
manna og þeirri úrslitaþýð-
ingu, sem bardagarnir í norð-
urhluta Luxemborgar höfðu
á sínum tíma. Hvítu krossarn-
ir bera hver sitt númer en
engin nöfn. Einn þeirra, nr.
02605, er til minningar um
Patton, hershöfðingja, fyrir-
liða í skriðdrekabardögunum í
Ardennafjöllunum. Patton lézt
í bílsslysi í Luxemborg eftir
stríðið og jarðneskar leifar
hans voru fluttar til Banda-
ríkjanna fyrir nokkrum árum.
§ Stríðsminjar
Höfuðborgin í Luxemborg
varð fyrir litlu hnjaski í stríðs-
átökunum en í þorpunum
nyrðra má víða enn sjá kúlna-
för í húsveggjum og önnur
merki eyðileggingar stríðsins.
Heimili 60 þúsund manna voru
eyðilögð auk ýmissa annarra
mannvirkja. Sama dag og
Bretar hernámu ísland, 10.
maí 1940, innlimaði Hitler
Luxemborg í ríki sitt, gegn
vilja þjóðarinnar að sjálf-
sögðu. Síðar voru Luxemborg-
arar á herskyldualdri fluttir
nauðugir til bardagasvæðanna
á austurvígstöðvunum. Óneit-
anlega gætir enn nokkurs kala
meðal Luxemborgara í garð
Þjóðverja vegna þessa, þrátt
fyrir samstarf þjóðanna á
mörgum sviðum nú.
Til skamms tíma hafði
Dæmigerð mynd úr sveit í Luxemborg. Gróðursæld mikil og frið-
ur og ró yfir mönnum og búsmala.
40
FV 7 1975