Frjáls verslun - 01.07.1975, Qupperneq 71
Hin elztu náttúrufyrirbæri Eyja vekja líka hrifningu ferðamanna.
með vínstúku, diskotek fyrir
80—100 marnis með vínstúku
og kaffitería fyrir um það bil
60 manns.
Á sl. ári var velta hótelsins
um 30 milljónir króna, en Birg-
ir sagði að eftir fyrstu 6 mánuði
þessa árs hefði veltan verið
komin upp í sömu upphæð og
væru þeir því að vonast til þess
að veltan næði 60 milljónum á
árimu 1975.
METÁR
— Nokkru áður en gosið
byrjaði í Vestmannaeyjum, var
ferðamannastraumurinn farinr.
að glæðast mikið hingað, enda
er margt að skoða og ýmislegt
hægt að gera. Eyjarnar eru góð
miðstöð fyrir sjóstangaveiði-
menn, fuglaskoðara og náttúru-
unnendur. Þá er hér golfvöllur,
sædýrasafn og margt fleira
mætti nefma. Síðan kom gosið
sem gerði eyjarnar frægar um
allan heim. Strax þar á eftir
jókst straumurinn hingað veru-
lega, en allt bendir til þess að
árið í ár slái öll met í þessu
sambandi. Ég geri ráð fyrir að
þessi toppur haldist að minnsta
kosti næstu 5 árin, sagði Birgir.
VINSÆLAR SKOÐUNAR-
FERÐIR
Nú í sumar hefur herbergja-
nýting í hótelinu verið góð, en
þó er aðalannríkið i sambandi
við sölu á mat og öðrum veit-
ingum, svo og skoðunarferðir
um eyjuna. Flugferðir til Vest-
mannaeyja eru tíðar og hafa
bræðurnir skipulagt hópferðir
með rútu sem hótelið á. Er
yfirleitt lagt af stað í ferðirnar
hálftíma eftir lendingu áætlun-
arvéla F. í. og tekur skoðunar-
ferðin um það bil tvo tíma. í
þessu sambandi gat Birgir þess
að flugvallarskatturinn um-
deildi hefði orðið til þess að
draga nokkuð úr þátttöku í
þessar skoðunarferðir um gos-
stöðvarnar og einnig hefði veð-
urfar oft hamlað flugi. Gisk-
aði Birgir á að 500 farþegar
hefðu orðið að sleppa Eyja-
ferð af þessari síðari ástæðu nú
í sumar. Á næsta ári er búiSt
við að ferjan; nýja sem á að
ganga milli lands og Eyja verðj
komin í gagnið og binda ungu
hóteleigendurnir miklar vonif
við þessa nýju samgönguleið. ■
Sérstakur bílstjóri, Guðmund-
ur Guðnason, ekur rútunni í
skoðunarferðunum, en með
honum fer ungur Hollendingur.
Hann kom sem sjálfboðaliði til
Eyja skömmu eftir að gosið
byrjaði. Hann talar þokkalega
íslensku, en auk þess talar hann
5 önnur tungumál og er því
mikil hjálparhella fyrir hinn
sundurleita ferðamannahóp,
sem þarf að fá svar við fjöl-
mörgum spurningum í skoðun-
arferðunum.
Auk bifreiðanna eru skipu-
lagðar bátsferðir í kringum eyj-
una og það er einnig hótelið
sem sér um þær.
Eyjaflilg:
Tvær
vélar
í Eyjum
Bjarni Jónasson rekur eina
flugfélagið, sem hefur aðsetur
í Vestmannaeyjum. Bjarni er
með tvær flugvélar og annast
fyrst og fremst leiguflug um
nágrenni, þ. e. a. s. milli Eyja
og Hellu eða Selfoss. Þá hefur
hann flogið mikið í eftirlits-
ferðir fyrir Landgræðsluna og
á meðan sjúkraflugið í Eyjum
var lokað eftir gosið sá hann
um mikinn hluta sjúkraflugs til
lands. Fór hann alls um 50
slíkar ferðir sl. ár.
Bjarni Jónasson — á ferð og
flugi á láði og í lofti.
FV 7 1975
71