Frjáls verslun - 01.07.1975, Síða 75
3 K - húsgögn og innréttingar í nýtt húsnæði:
Stórauknir möguleikar í
vöruúrvali og þjónustu
Fyrir skömmu ílutti verslunin „3K-liúsgögn og innréttingar“ í nýtt húsnæði að Suðurlandsbraut
18. Húsnæðið er ca 500 fermetrar og býður upp á stóraukna möguleika í vöruúrvali og þjónustu.
Verslunin var áður til liúsa við Hátún.
3K verslar fyrst og fremst
með húsgögn, sem eru fram-
leidd í samvinnutrésmiðjum
Kaupfélags Árnesinga, Rangæ-
inga og Skaftfellinga, en verð-
ur auk þess með úrval hús-
gagna frá Sambandsverksmiðj-
um á hinum Norðurlöndunum.
Þá hyggst verslunin taka upp
þá nýjung að kynna leirmuni
frá Glit h.f. og hafa kynningu
og sölu á málverkum eftir
íslenska málara. Vei’ður mál-
verkunum komið fyrir á veggj-
um verslunarinnar og hafa mál-
arar sýnt þessari nýjung mik-
inn áhuga.
Framleiðslustarf verksmiðj-
anna er með nokkuð öðrum
hætti en tíðkast annars staðar
hér á landi. Hver af verksmiðj-
unum er rekin sem sjálfstæð
eining, en hagsmunir þeirra eru
sameiginlegir. Oft standa allar
verksmiðjurnar saman að fram-
leiðslu einnar vörutegundar,
þannig að hver verksmiðja
vinnur þann hluta verksins,
sem hagkvæmast er að láta
vinna á hverjum stað, m. a.
vegna vélakosts og annarra
verkefna. Annar samstarfsþátt-
urinn er rekstur söluskrifstofu
og útstillinga í Reykjavík. Eru
það fyrst og fremst eldhúsinn-
réttingar, sem eru seldar í gegn-
um þá skrifstofu, en aðrar
framleiðsluvörur, svo sem sófa-
sett, stólar, húsgögn í barna-
herbergi og fleira, eru seld í
gegnum verslunina 3K.
Jafnframt því að framleiða
húsgögn eftir íslenskum hug-
myndum hafa samvinnutré-
smiðjurnar hafið samstarf við
erlend húsgagnafyrirtæki. Þeg-
ar um slíkt samstarf er að ræða
framleiða trésmiðjurnar hús-
gögn eftir sömu teikningum og
notaðar eru erlendis og fá efni
frá þeim.
Gjarnan er unnið undir eftir-
liti frá viðkomandi verksmiðj-
um og gerð innkaup á efni í
vöruna í samfloti við þær. Hef-
ur þetta samstarf gefið mjög
góða raun. Það eina, sem þurft
hefur að greiða fyrir þessa að-
stoð er svokallað leyfisgjald.
Um þessar mundir er verið að
rannsaka möguleika á því að
ncrska húsgagnaverksmiðjan
Ekornes kaupi í gegnum 3K
áklæði frá Gefjun, sem þeir
hugsa sér að nota sem hús-
gagnaáklæði. Hér er um mjög
mikið magn að ræða, sem þýddi
það að Gefjun hefði næg verk-
efni það árið, ef af þessum
samningum verður.
Uppstilltar eldhúsinnréttingar eru á staðnum.
Borðstofuliúsgögn o. fl. í hluta nýja húsnæðisins.
FV 7 1975
75