Frjáls verslun - 01.07.1975, Page 78
lendum framleiðendum, sem
framleiða þær samkvæmt ósk-
um og hugmyndum forráða-
manna Borgarhúsgagna.
Safír sófasettið var það
fyrsta, sem fyrirtækið spreytti
sig á og var því strax í upp-
hafi mjög vel tekið. Það sett
er sérkennilegt í útliti og hægt
er að velja úr mjög fjölbreyttu
úrvali áklæða á það og reynd-
ar öll önnur sett. Nú er einnig
boðið upp á leðuráklæði á öll
sett, sé þess óskað.
Rubin nefnist það sett eða
horn, sem ásamt tveim öðrum
vörutegundum á boðstólnum í
Borgarhúsgögnum, nýtur nú
hvað mestra vinsælda. Rubin
hornið er fáanlegt frá þriggja
sæta og upp í eins mörg sæti
og fólk vill. Áklæði eru eftir
óskum kaupenda og eru settin
bólstruð á stálgrind, sem gerir
samstæðuna mun sterkari en
væri hún úr tré. Sex til sjö
manna horn, með vönduðum
plusáklæðum, kostuðu um síð-
ustu mánaðamót 157.700 kr., en
voru þá nýuppseld. Með leðri
kosta þau um 300 þúsund.
Viktoria settið er sígilt sett
og mjög vandað bæði hvað efni
og vinnu varðar. Púðar eru
klæddir báðum megin og kaup-
endur geta sjálfir ráðið stærð
settsins, stólafjölda, stærð sófa
o. s. frv.
Loks má svo nefna sívaló
húsgögnin, sem framleidd eru
í Hafnarfirði fyrir Borgarhús-
gögn. Sívaló einingarnar bjóða
upp á mjög fjölbreytta upp-
setningu og nú eru einnig fáan-
legir skápar með þeim. Hægt
er að velja úr ljósum og dökk-
um við og eru þessi húsgögn
nú mjög vinsæl, einkum meðal
yngra fólks.
Með vetrinum eru fleiri nýj-
ungar væntanlegar. Trausti Að-
alsteinsson er framkvæmda-
stjóri og einn fimm eigenda,
hinir fjórir eru allir bólstrarar
og meistarar í sinni grein.
Borgarhúsgögn eru í Hreyf-
ilshúsinu við Grensásveg og er
síminn þar 85944.
Enn ein nýung í JL húsinu:
250 fermetra deild með
leðurhúsgögnum
Nú eru liðin þrjú ár síðan Jón Loftsson h.f. opnaði verslun sína
að Hringbraut 121. Margir spáðu illa fyrir JL-húsinu og sögðu
m. a. að staðurinn væri of afskekktur til þess að laða til sín við-
skiptavini. En reynsla áranna þriggja sýnir hins vegar að fjar-
lægðin virðist ekki skipta neinu máli þegar fjölbreyttt vöruval er
annars vegar.
Viðskiptavinirnir geta komið
á bílum sínum og lagt á bíla-
stæði verslunarinnar og keypt
allt sem þarf til heimilisins. JL-
húsið er um 5000 fermetrar að
flatarmáli á fimm hæðum og
þar er að finna sérstaka bygg-
ingavörudeild, ljósa- og raf-
tækjadeild, teppadeild og hús-
gagnadeild, þar sem hægt er að
fá borðstofuhúsgögn, skrifstofu-
húsgögn, sófasett, staka stóla,
vegghúsgögn, svefnherbergis-
húsgögn og ótal margt fleira.
Á þriðju hæð í JL-húsinu var
nýlega opnuð sérstök deild fyr-
ir leðurvörur. Þar er um 250
fermetra pláss notað eingöngu
undir leðursófasett, skrifstofu-
húsgögn úr leðri, staka leður-
stóla cg fleira. í þessari deild
ma emnig sjá myndskreytingar setja skemmtilegan svip á um-
eftir Svein Björnsson, sem hverfið.
78
FV 7 1975