Frjáls verslun - 01.12.1977, Blaðsíða 15
Hótel Esja
Nýting á gistirými frá 1. jan-
úar til nóvemberloka 73,0%
— tískusýningar og kaldir réttir nýir þættir í starfseminni á 9. hæð
Ein bcsta nýting á gistirými,
sem verið hefur á Hótel Esju
náðist á þessu ári. Gistinýting
frá 1. janúar itil októberloka
nam 73,7%, en var 67,4% á
sama tíma í fyrra. Gistinýting
frá 1. janúar til nóvemberloka
í ár var hins vegar 73,0%, en
65,3% á sama tímabili í fyrra.
Fyrstu tíu dagana í desember
var nýtingin 63,7%.
Kom þetta fram í spjalli, sem
F.V. átti við Steindór Ólafsson,
aðstoðarhótelstjóra á Esju ný-
verið.
í hádeginu
er boðið
upp á
kalda rétti
í Skála-
felli. Á
myndinni
virða hótcl-
stjórarnir
Erling Aspelund t.h. og Steindór Olafsson fyrir sér réttina ásamt
Sveini Sæmundssyni blaðafulltrúa Flugleiða t.v.
ÞJÓÐVERJAR OG SKANDI-
NAVAR GISTU AÐALLEGA
I SUMAR
Það voru mestmegnis Evr-
ópubúar, Þjóðverjar og Skandi-
navar, sem gistu á Hótel Esju
síðastliðið sumar, en þá var hó-
telið iðulega fullt og sagði Stein-
dór, að svipað væri bókað fyrir
næsta sumar.
Aðalgistitíminn er frá byrjun
maí til septemberloka.
Yfir vetrartímann gista á
Esju nær eingöngu íslendingar,
sem koma til Reykjavíkur, bæði
í helgarferðum Flugleiða frá
stöðum annars staðar á land-
inu og aðrir sem leið eiga til
höfuðborgarinnar s.s. fólk í við-
skiptaerindum.
íþróttahópar gista iðulega á
Esju, en þeir koma hingað jafnt
á sumri sem vetri.
Sagði Steindór, að það sem
einna verst hefði komið við
hótelreksturinn á þessu ári
væru hinar gífurlegu hækkanir
bæði á hráefni, víni og launum,
sem fólk í öllum rekstri þekkir.
NÝR ÞÁTTUR í STARFSEM-
INNI Á 9. HÆÐ
Síðast í nóvember hófst nýr
þáttur i starfseminni á 9.. hæð.
í hádeginu er boðið upp á kalda
rétti eins og síldarrétti og kjöt-
rétti, en matsala hætti þar eft-
ir að Esjuberg tók til starfa,
og var því eingöngu boðið þar
upp á vínveitingar þar til nú
að þessu er breytt. Höfðu rnarg'-
ir látið í ljós óskir um að aftur
væri farið að bjóða upp á mat
í Skálafelli. Var mikið um að
menn úr viðskiptalífinu byðu
þangað gestum, bæði innlend-
um og erlendum. Gestir þar
geta hlýtt á Ijúfa tónlist af seg-
ulböndum fyrri hluta vikunnar,
en um helgar er leikið á raf-
magnsorgel.
Ákveðið hefur verið að efna
til tískusýninga vikulega á
hótelinu i vetur, að sögn Stein-
dórs. Sýningarnar verða á
fimmtudagskvöldum í Skála-
felli og verður fyrirtækjum
boðið að sýna vöru sína, en
Modelsamtökin sýna fötin.
Sagði Steindór, að þetta gæti
orðið skemmtileg nýbreytni fyr-
ir Reykvíkinga og gesti hótels-
ins i skammdeginu.
MEGRUNARFÆÐI í TENGSL-
UM VIÐ SJÓNVARPIÐ
Esjuberg, veitingasalurinn á
jarðhæðinni hefur náð miklum
vinsældum. Þar eru nú boðnar
í hádeginu auk allra ann-
arra rétta þrjár tegundir af
mat með fáum hitaeiningum, og
sagði Steindór að kveikjan að
því, að farið hefði verið að
bjóða megrunarfæði væru
megrunarþættirnir sem voru í
sjónvarpinu.
Fenginn var manneldisfræð-
ingur til að útbúa þessa
rétti, sem eru roast beef, kjúk-
lingar og fiskur, allt kaldir rétt-
ir, ásamt hrásalötum og grófu
brauði. Sagði Steindór að þetta
væri þáttur í því að veita sem
besta þjónustu til handa við-
skiptavinunum, hvort sem þeir
væru sælkerar eða að hugsa um
línurnar.
FV 12 1977
15