Frjáls verslun - 01.12.1977, Síða 47
Brauð hf,
Framleiðir um 60 tegundir
af brauði og kökum
Fjórar nýjar brauðtegundir komu nýlega á markað
Brauð hf. hóf starfsemi sína í Auðbrekku 32 árið 1965, en var stofnað tveimur árum áður. Upphaf-
lega tóku þrír bakarameistarar sig saman og stofnuðu fyrirtækið, þeir Óskar Sigurðsson, Kristinn
Albertsson og Ha.ukur Friðriksson. Fyrirtækið framleiðir nú um 60 tegundir af brauðum og kök-
um, og í hverjum mánuði eru notaðir 2000 sekkir af mjöli í framleiðsluna. í allt er framleiðslunni
dreift í um 140 verslanir út um allt land.
Kristinn Albertsson og Hauk
ur Friðriksson, bakarameistar-
ar reka nú Brauð hf. og ræddi
F.V. við þá báða um fram-
leiðslu fyrirtækisins.
FRAMLEIÐA ÚR TÍU
TEGUNDUM AF MJÖLI
Brauð ihf. var fyrsta fyrir-
tæki sinnar tegundar hér á
landi sem byggt er upp þann-
ig, að það veiti kjörbúðunum
þjónustu, að sögn þeirra Krist-
ins og Hauks.
— Nú s.l. tvö ár hefur orðið
mikil breyting á notkunarvenj-
um fólks, sagði Kristinn, í þá
átt að það neytir meira af
brauði með grófu korni og
gamla góða hveitið er á undan-
haldi. Nú framleiðum við t.d.
úr tíu tegundum af mjöli, en
fjórum tegundum áður.
Brauð hf. framleiðir 45 teg-
undir af alls konar kökum og
hörðu brauði s.s. kringlum og
tvíbökum. Brauðtegundirnar,
sem framleiddar eru eru 15.
Árið 1973 byggði Brauð hf.
hluta af húsinu nr. 11 í Skeif-
unni og setti þar á stofn brauð-
gerð, sem er eingöngu hönnuð
fyrir brauð. Þar er brauðið
framleitt og pakkað, en dreif-
ing fer fram frá Auðbrekk
uunni. Daglega aka fimm bíl-
ar vörunni um Reykjavíkur-
svæðið.
FJÓRAR NÝJAR BRAUÐ-
TEGUNDIR Á MARKAÐINN
— Við höfum alltaf, og sér-
staklega í seinni tíð, sagði
Kristinn reynt að bæta og laga
framleiðsluna. Um nokkurt.
skeið var hjá okkur danskur
sérfræðingur, og hefur hann
farið í gegnum alla brauðfram-
leiðslu okkar. Náði hann mjög
góðum árangri og erum við nú
nýbyrjaðir að framleiða fjórar
nýjar tegundir af brauðum.
Fyrst má nefna heilkornsrúg-
brauð, inniheldur sérstaka teg-
und af rúgi, sem er ákaflega
hollur þeim, sem við meltingar-
truflanir eiga að stríða. Hálf-
sigtibrauðið er blanda af sigti-
og hveitimjöli, ákaflega létt og
bragðgott, og hefur þó nokkuð
geymsluþol. Þriðja tegundin er
kölluð Sviss kraftbrauð, en eins
og nafnið ber með sér er þetta
tegund, sem er ákaflega mikið
notuð í Sviss og löndunum þar
í kring. Þetta brauð inniheldur
kryddtegund, sem gefur því
sérstakt bragð. Fjórða tegund-
in heitir smjörbirkisbrauð, á-
kaflega létt með kardimommu-
bragði, ætlað til neyslu með
kaffi.
FLYTJA INN SJÁLFIR MJÖL
OG SYKUR
— Við höfum einnig bætt
umbúðirnar og höfum haft for-
göngu um, að kaupmaðurinn
hafi eðlileg laun fyrir að selja
þessa vöru, og nú er allt annað
að selja vöruna, en það var
Unnið að innpökkun á brauði
og kökum.
fyrir fjórum árum, sagði Hauk-
ur.
— Um 1974 urðu nokkrir
erfiðleikar hjá fyrirtækinu
vegna þess, að verð á hráefni
var mjög hátt á heimsmarkaði,
sagði Kristinn. Við brugðumst
þannig við að við fórum að
kaupa okkar vöru beint erlend-
is frá, og náðum þannig hag-
stæðari kjörum en hér heima.
Nú flytjum við inn allt okkar
mjöl og sykur sjálfir frá Belgíu,
Noregi, Danmörku og Frakk-
landi, sagði Kristinn að lokum.
FV 12 1977
47