Frjáls verslun - 01.12.1977, Side 63
íslenzk fyrirtæki
Skrá yfir öli starfandi fyrir-
tæki á Islandi
— samkvæmt upplysingum Hagstofu íslands
Viðskiptahandbókin „íslensk
fyrirtæki 1977—1978“ er kom-
in út í áttunda sinn. Bókin er
að vanda endurbætt frá fyrri
útgáfu og er að þessu sinni 800
blaðsíður ,sem er 200 síðum
meira en í fyrra.
Markverðasta nýjung í bók-
inni að þessu sinni er sú, að þar
er nú listi yfir öll starfandi fyr-
irtæki á íslandi, samkvæmt
skrá Hagstofu íslands. Þar er að
finna nafn, heimilisfang, nafn-
númer og símanúmer, auk
flokkunar í starfsgreinar, eftir
alþjóðlegri starfsflokkaskrán-
ingu. Fyrirtækjum er raðað í
stafrófsröð í hverju byggðar-
lagi.
MJÖG ÍTARLEGAR
UPPLÝSINGAR
Ef til vill er þó gildi bókar-
innar „íslensk fyrirtæki“ hvað
mest fyrir það, að þar er að
finna mjög ítarlegar upplýsing-
arar um fyrirtæki, sem skráð
eru í bókinni. Þar er ekki að-
eins að finna heimilisfang, síma,
nafnnúmer og söluskattsnúmer,
heldur einnig stofnár, starfs-
mannafjölda, upplýsingar um
stjórn, framkvæmdastjóra og
aðra starfsmenn, eftir óskurn
hvers fyrirtækis. Eftir óskum
eru birt nöfn skrifstofustjóra,
deiidarstjóra, fulltrúa, verk-
stjóra og annarra stjórnenda í
fyrirtækinu. Þá eru greinargóð-
ar upplýsingar um alla starf-
semi fyrirtækja, svo sem fram-
leiðslu, þjónustu, umboð og
fleira. Með þessum upplýsing-
um getur wæntanlegur við-
skiptaaðili skapað sér ljósa
mynd af fyrirtækinu, aldri þess
og stærð, sem getur verið gagn-
legt í viðskiptum .
í fyrra var tekin upp sú
nýjung ,að hafa fremst í bókinni
ýmsar upplýsingar á ensku, fyr-
ir erlenda viðskiptamenn. Sagt
er frá Islandi almennt, sam-
göngum, gjaldeyris- og inn-
flutningsreglum og fjarskiptum.
Þá er sagt frá atvinnuvegum
landsmanna, helstu fjölmiðlum,
llcnure not tomÍHnthinimportant publication.
„Grænu síð,urnar“ hafa vakið
athygli erlendra viðskiptaaðila.
Þar eru skráð á ensku um 6000
íslenzk fyrirtæki.
og samtökum atvinnuveganna,
auk helstu ríkisstofnana, sem
fjalla um atvinnulífið.
Getið er um helstu sendiráð
og ræðismannsskrifstofur og
skrifstofur Flugleiða erlendis.
Þá eru undirfyrirsagnir í við-
skipta- og þjónustuskrá, og
skrám yfir íslenska innflytj-
endur og útflytjendur með bæði
enskum og íslenskum texta, til
þæginda fyrir útlendinga. Þetta
hefur orðið til þess að auka
mjög gagnsemi bókarinnar fyr-
ir erlenda viðskiptamenn, auk
þess sem dreifing hennar hefur
verið aukin mjög erlendis.
I bókinni er umboðaskrá, þar
sem skráð eru vörumerki fyrir
þær vörur, sem fyrirtæki í bók-
inni flytja inn. Skrá þessi hefur
farið sístækkandi og er þegar
orðin til mikilla þæginda, við
að finna hver er umboðsmaður
fyrir tilteknar vörur. Oft hef-
ur reynst erfitt að afla þeirra
upplýsinga og er hér leitast við
að leysa þann vanda.
ÞJÓNUSTU- OG VIÐSKIPTA-
SKRÁ NÆR TIL ALLS
LANDSINS
Þá hefur það mikið gildi að
bókin nær til landsins alls.
Þjónustu- og viðskiptaskrá nær
til alls landsins, en ekki aðeins
til Reykjavikur, eins og t.d. er
í símaskránni.
HELMINGI ÚTBREIDDARI
EN NOKKUR ÖNNUR
VIÐSKIPTAHANDBÓK
„íslensk fyrirtæki" er nú orð-
in helmingi útbreiddari en
nokkur önnur viðskiptahand-
bók á landinu og veitir meiri
upplýsingar en nokkur önnur.
Ritstjóri bókarinnar er Hrönn
Kristinsdóttir.
Bókin er send ókeypis til
þeirra, sem skrá fyrirtæki sín
í henni, en fæst keypt á skrif-
stofu Frjáls framtaks hf. að Ár-
múla 18, Reykjavík.
PV 12 1977
63