Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1992, Blaðsíða 10

Frjáls verslun - 01.03.1992, Blaðsíða 10
FRETTIR VERSLUNARRAÐIÐ ER ALHEILT ATHUGASEMDIR VEGNA GREINAR í 2. TBL. FV FRÁ EINARI SVEINSSYNI,FORMANNI VERSLUNARRÁÐS ÍSLANDS í síðasta tölublaði Frjálsrar verslunar er fjallað um „ástæðuna fyrir stofnun íslenskrar verslunar“ með slíkum rangfærslum og af slíkum rangindum í garð Versl- unarráðs íslands, að æra myndi óstöðugan. Greinin í FV heitir „Tortryggni og átök um hagsmuni“ en undirfyrir- sögn hefst þannig: „Klofningur Verslunar- ráðs íslands er hér til um- fjöllunar...“. í upphafi greinarinnar er jafnframt sagt að um síðustu ára- mót hafi þrjú öflug sam- tök slitið samvinnu við ráðið; Félag íslenskra stórkaupmanna, Bíl- greinasambandið og Kaupmannasamtök ís- lands. Allt er þetta rangt. Verslunarráðið, FÍS og KI hafa starfað saman um árabil í Samstarfsráði verslunarinnar sem held- ur mánaðarlega fundi um sameiginleg málefni. Það hefur ekki breyst og bæði FÍS og KÍ hafa aðgang að Verslunarráðinu með sama hætti og um langa hríð. Bílgreinasamband- ið er eftir sem áður full- gildur aðili að Verslunar- ráðinu. Það eina sem breyttist um áramótin var að sam- eiginlegum rekstri Versl- unarráðsins og FÍS um Skrifstofu viðskiptalífs- ins lauk eftir tveggja ára tilraun. Sá ágreiningur, sem leiddi til þeirrar nið- urstöðu, á ekkert skylt við klofning innan Versl- unarráðsins enda stend- ur það nú félagslega í að- alatriðum eins og fyrir tveim árum. Sjö manna stjórn Félags íslenskra stórkaupmanna klofnaði hins vegar í kjölfarið þegar tveir stjómarmenn sögðu af sér, þar af annar varaformaðurinn. Hann bauð sig síðan fram til stjórnar í Verslunarráð- inu, náði kjöri sem vara- maður og hefur tekið til starfa sem slíkur. Frjáls verslun heldur áfram á sömu fölsku for- sendunum þegar ótil- greindir menn em bornir fyrir „vaxandi tortryggni í garð Verslunarráðsins vegna Eimskips sem þeir telja að ráði mestu um stefnumótun innan ráðs- ins.“ Þetta er stutt með tilvitnun í viðtal Morgun- blaðsins við formann FIS, Birgi Rafn Jónsson en þar kemur fram skáldskapur hans um „völd“ í Verslun- arráðinu. Formaður FÍS segir: „Verslunarráðið er byggt þannig upp að atkvæða- vægi fer eftir félagsgjöld- um sem hver og einn greiðir eftir stærð. Þetta leiðir til ákveðinnar sam- þjöppunar á valdi og við teljum að ráðið sé með þessu fyrirkomulagi sam- tök fyrir sérhagsmuni einstakra fyrirtækja.“ Við annað tækifæri lét formaðurinn að því liggja að þannig gætu sterkir aðilar innan VÍ keypt sér atkvæðavald. Allt er þetta víðsfjarri raunvemleikanum. Eimskip er eitt af þeim 9 fyrirtækjum sem greiða félagsgjald í hæsta flokki. Út á það fær Eimskip um 1,08% at- kvæða og þessi 9 fyrir- tæki samtals innan við 10%. Fullyrðing for- manns FÍS um að Eim- skip „fari með stóran hluta atkvæða í Verslun- arráðinu“, fellur auðvit- að dauð og ómerk eins og öll þessi samsæriskenn- ing hans. Skrifleg kosning 19 að- almanna og 19 vara- manna í stjórn Verslun- arráðsins með hliðsjón af 57 manna ábendingar- lista, þar sem enginn má kjósa nema 12 manns, hefur raunar tryggt áhrifadreifingu og endur- nýjun umfram það sem gerist og gengur í ís- lenskum félögum. I stjórn og 5 manna fram- kvæmdastjórn hefur síð- an hver stjórnarmaður eitt atkvæði en ekki rek- ur menn minni til að á þau hafi reynt enda eru mál ekki knúin fram með valdi í Verslunarráði ís- lands. En það er einmitt kjarni málsins. Það er svo hlálegt að undir þessum áður um- rædda skáldskap hafa setið mætir félagsmenn í FÍS sem m.a. mynduðu ekki aðeins um þriðjung 19 manna stjórnar Versl- Einar Sveinsson, formaður Verslunarráðs íslands. unarráðsins síðustu tvö árin heldur meirihluta í 5 manna framkvæmda- stjórn þess. Verslunarráð íslands hefur beitt sér fyrir því að þau félög, sem starfa að hagsmuna- og framfara- málum í viðskiptalífinu þjöppuðu sér saman, leystu innbyrðis vanda- mál sín á milli og mótuðu jafnframt sameiginleg meginsjónarmið um starfsumhverfi sitt og framtíðarhugmyndir. í slíku starfi hljóta að verða árekstrar milli skoðana og einstaklinga með deilda hagsmuni. Hins vegar er of langt gengið þegar um það er fjallað hvort tveggja í senn af slíku gáleysi og svo ranglega eins og hér hefur verið gert að um- talsefni. Blaða- og bókaútgáfan Fróði hf., útgefandi Frjálsrar verslun- ar, gaf verðlaun vegna bestu tímaritsauglýsingarinnar í sam- keppni ÍMARK. Á myndinni afhendir Magnús Hreggviðsson, stjórnarformaður Fróða hf., verðlaunin til fulltrúa íslenska útvarpsfélagsins hf. Gott fólk gerði auglýsinguna. 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.