Frjáls verslun - 01.03.1992, Side 12
FRÉTTIR
Friðrik Sophusson.
Björn Bjarnason.
Víglundur Þorsteins-
FORYSTUVANDI SJALFSTÆÐISFLOKKSINS:
Einar Oddur Krist-
jánsson.
Magnús Gunnarsson.
HVER ER ÞRIÐJIMADURINN?
í nýlegu tímaritsviðtali
við Inga Björn Albertsson
alþingismann segir hann
að Sjálfstæðisflokkurinn
eigi við forystuvandamál
að etja. Hann telur að
flokkurinn sé klofinn í
tvær fylkingar: „Við höf-
um ekki hinn óumdeilda
leiðtoga." Og hann segir
ennfremur: „Ég tel að
flokkurinn þurfi fyrst og
fremst á þriðja aðilanum
að halda sem er óum-
deildur."
Ingi Björn er spurður
hvort sá aðili sé í sjón-
máli. Hann svarar: „Nei,
en hann verður að koma.
Ég tel stöðuna vera þann-
ig. Ég hef sjálfur óljósan
grun um hver sá aðili er
án þess að ég ætli að
nefna hann.“
En hver gæti verið
Á ársþingi Félags ís-
lenskra iðnrekenda, sem
haldið var um miðjan
mars, var Gunnar Svav-
arsson, forstjóri Hamp-
iðjunnar, endurkjörinn
formaður félagsins. Hann
var kosinn með 96%
greiddra atkvæða þannig
að mikill einhugur er um
formanninn.
Aðrir í stjórn FÍI voru
þriðji maðurinn? Hvar er
hann að finna?
Ef byrjað er að svipast
um í núverandi þingliði
sjálfstæðismanna er
helst að staldra við tvö
nöfn: Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra hefur
allan sinn langa stjórn-
málaferil verið maður
sátta og málamiðlunar.
Hann tók að sér varafor-
mennskuna á síðasta
landsfundi þegar allt var
komið í óefni. Hann vék
fyrir Davíð á landsfundin-
um þar á undan þegar
borgarstjórinn gerði
fyrirvaralaust tilkall til
varaformennsku í flokkn-
um. Hann kom inn sem
varaformaður í fyrra
skiptið þegar flokkurinn
logaði í illdeilum.
í þingflokknum er ann-
ar maður sem ýmsir
kjörnir, þeir Sigurður R.
Helgason í Björgun, Árni
Gunnarsson í Fóður-
blöndunni, Bjarnar Ingi-
marsson hjá ISAL, Ragn-
ar Birgisson í Opal og
Gunnar Ingimarsson.
Fyrir í stjórninni voru
þeir Magnús Tryggvason
í Ora, Ágúst Einarsson í
Lýsi og Sigurður Mari-
nósson í Mónu.
binda miklar vonir við.
Það er Björn Bjarnason.
Hann kom inn á þing eftir
kosningarnar síðastliðið
vor og því er of fljótt að
dæma um hann. Sumir
spá honum miklum frama
í stjórnmálum en aðrir
hafa efasemdir. Menn
skyldu þó ekki útiloka
Björn sem málamiðlun.
Uti í atvinnulífinu er
mikill fjöldi hæfileika-
ríkra sjálfstæðismanna
sem oft er litið til þegar
menn velta því fyrir sér
hvernig unnt sé að
styrkja forystu flokksins.
Reynslan sýnir að mjög
erfitt er að fá þessa menn
til að hverfa frá stjórnun-
arstörfum í fyrirtækjum
til að fara á þing og sækj-
ast eftir ráðherradómi.
Hér skulu nefndir þrír
menn sem kunnir eru af
dugnaði og forystuhæfi-
leikum í atvinnulífinu:
Víglundur Þorsteins-
son, fyrrverandi formað-
ur Félags íslenskra iðn-
rekenda, er kunnur dugn-
aðarforkur og fæddur
foringi.
Einar Oddur Kristjáns-
son hefur vakið á sér at-
hygli fyrir skelegga for-
ystu vinnuveitenda og
nýjan stíl á þeim vett-
vangi. Hann átti stóran
þátt í svonefndum þjóð-
arsáttarsamningum og
hann hefur vakið athygli
fyrir að tala „mannamál",
mál sem þjóðin skilur.
Hann er maður sem gæti
náð víðtækum stuðningi
einkum ef samningar á
vinnumarkaði heppnast
nú vel og tímasetning
hans til afskipta er rétt.
Þá er að nefna Magnús
Gunnarsson, formann
Samtaka atvinnurekenda
í sjávarútvegi. Menn hafa
verið að spá því í 20 ár að
hann færi út í stjórnmál
enda er maðurinn vinsæll
og vel til stjórnmálaþátt-
töku fallinn. Magnús er
maður sem á óvanalega
gott með að hrífa fólk með
sér og sætta mismunandi
sjónarmið.
Hvort samstaða gæti
náðst um einhvern þess-
ara manna úr atvinnulíf-
inu skal ósagt látið — og
hvort þeir gæfu kost á sér
skal enn frekar ósagt lát-
ið!
í kjölfar þessa umtal-
aða viðtals við Inga
Björn Albertsson alþing-
ismann, er ekki ósenni-
legt að menn muni velta
því fyrir sér hvort flokk-
urinn geti farið inn í fram-
tíðina með óbreytta for-
ystu eða hvort leitin að
„þriðja aðilanum" hefjist
af fullum krafti.
Það er allavega ljóst að
yfirlýsing af þessu tagi
frá einum af þingmönnum
flokksins er mál sem
verður að taka alvarlega.
FORMAÐUR FÍI:
GUNNAR ENDURKJÖRINN
12