Frjáls verslun - 01.03.1992, Page 17
það að hafa ekki tekið skrefið. Það
hefur lengi blundað í mér löngun til að
vinna erlendis og ég gat ekki hugsað
mér neitt betra en að starfa hjá er-
lendu COCA-COLA fyrirtæki.
Svo bættist það við að ég var farinn
að finna fyrir þörf fyrir að breyta til.
Menn fmna fyrir leiða í störfum eftir
vissan tíma, jafnvel þó vel gangi. Þá
er um að gera að taka sér önnur verk-
efni fyrir hendur. Mér hafði boðist að
verða gestaprófessor í Singapore um
eins árs skeið en ég kom þangað með
hóp nemenda minna úr Háskóla ís-
lands sem ég kenndi markaðsfræði.
Ég velti þessu tilboði fyrir mér og í
huga mínum var ekkert útilokað að slá
til og flytja austur með alla fjölskyld-
una. En niðurstaðan varð sú að haldið
var hingað til Noregs.“
Þú segist hafa verið í Singapore
með nemendur þína úr Háskólanum.
Hvers vegna varstu að kenna — hafð-
ir þú ekki ærinn starfa hjá Vífilfelli?
,Jú, mikil ósköp. En kennslan var
þörf. Ég kenndi markaðsfræði og
stefnumótun markaðsmála í við-
skiptadeild Háskólans og var í hálfu
starfi lektors. Að mínu mati var þetta
leið til að halda sér við í faginu og mér
þótti tilbreytingin gera mér gott.
Kennslan var mér stundun upp-
spretta hugmynda. Þetta aukastarf
hafði engin áhrif á önnur viðfangsefni.
Vífilfell gekk fyrir og tók upp megnið
af tíma mínum. Það var óhjákvæmi-
legt.“
Úr því þið hafið tekið þetta skref til
útlanda og þú ert kominn til starfa í
hinu alþjóðlega umhverfi COCA-
COLA fyrirtækjanna er þá nokkuð við
því að búast að snúið verði heim til
íslands á næstu árum? Verður starfs-
vettvangur þinn ekki erlendis hér eft-
ir?
GÍFURLEGT AFL
„Það er allt of fljótt að segja til um
það. Ég er ánægður með að hafa tekið
þetta skref og ég er ráðinn til starfa í
tvö til fimm ár. Á þessu ári og næsta
kemur á daginn hvernig okkur líkar.
Best gæti ég trúað að annaðhvort
yrðum við úti í tvö til þrjú ár eða þá um
mjög langan tíma. Þetta skýrist fljótt
og ræðst af því hvemig mér vegnar í
starfinu og hvernig konan og bömin
Seljendur á okkar vegum eru um 20.000 í Noregi og við þurfum að vera í
góðum tengslum við þá. Þessi markaður er ekki flókinn en hann er marg-
brotinn.
finna sig í framandi umhverfi. Þetta
hefur allt saman farið vel af stað og við
erum full bjartsýni.
Þegar litið er á framtíðarmöguleik-
ana er vert að hafa í huga að COCA-
COLA er gífurlega mikið og öflugt
fyrirtæki á alþjóðlega vísu. Ársveltan
er yfir 700 milljarðar íslenskra króna í
það heila. Það samsvarar fjárlögum
íslenska ríkisins í sjö ár. Afkoma sam-
stæðunnar er ávallt mjög góð. Hagn-
aður er yfirleitt 12-14% af veltu og
eiginfjárstaðan er gríðarlega öflug þó
svo greiddur sé ríflegur arður á
hverju ári. í árslok 1990 var bókfærð
eiginfjárstaða um 450 milljarðar ís-
lenskra króna. Vöxturinn er stöðugur
og markaðshlutdeildin eykst jafnt og
þétt. Þarna eru menn líka óhræddir
við að móta stefnu sem miðast við að
miklar kröfur séu gerðar og að mikill
og stöðugur árangur náist. Meðalarð-
semi hlutabréfa í COCA-COLA hefur
numið 20,8% á ári frá 1900 til 1981 og
er sú besta sem þekkist. Síðustu 10
árin hefur meðalarðsemin numið 35%
á ári.
Maður hlýtur að nálgast stjómun-
arstörf hjá svona fyrirtæki með virð-
ingu og taka viðfangsefni sín alvar-
lega.“
Hve margir starfa hjá COCA-
COLA um allan heim og hversu stór
er hópurinn í Noregi?
„Talið er að um ein milljón manna
um allan heim starfi fyrir COCA-
COLA. En þá eru allir taldir með sem
vinna fyrir verksmiðjur og átöppunar-
fyrirtæki í hinum ýmsu löndum. Það
er stóri hópurinn því einungis tuttugu
17