Frjáls verslun - 01.03.1992, Side 19
Dreifingarnet COCA-COLA nær um allan heim og mikil áhersla er lögð á að
drykkurinn hafi engin landamæri. Markaðsstarfsemi er einnig öflug í lönd-
um þriðja heimsins og hún mun fara vaxandi því þar er ennþá mikinn
markað að vinna. „Kók er lúxus fátæka mannsins."
arra og miðaði hann árangur gjaman við
erlend fyrirtæki í sömu grein. Það er
mælikvarði sem fleiri mættu taka sér til
fyrirmyndar. Hann taldi ekki eftir sér að
vinna langan vinnudag enda fóru starf og
áhugamál saman.
Þótt ýmsum þyki Lýður harður í hom
að taka verður það ekki frá honum tekið
að hann er bóngóður, ráðhollur og greið-
vikinn."
Grímur Sæmundsen læknir tekur i
sama streng. Hann segir að Lýður sé
„vinur vina sinna en að sama skapi óbilgj-
am gagnvart þeim sem hann telur sér
andsnúna."
Grímur hefur átt samstarf við Lýð,
m.a. vegna uppbyggingar á Heilsumið-
stöðinni Mætti en þeir hafa báðir átt sæti
í stjórn þess fyrirtækis. „Lýður er
traustur, áreiðanlegur, fylginn sér og
með mikinn metnað,“ segir Grímur.
Hann bætir við: „Lýður hefur hæfileika
til að skilja hismið frá kjamanum, stefria
beint að markinu og ná árangri.
Lýður er mjög hæfur markaðsmaður
og hefur mikla þekkingu sem hann kann
að nota. Það er að vissu leyti athyglis-
vert að hann skuli vera markaðsmaður
því hann er ekki opinn persónuleiki — er
ekki allra — og er því frábmgðinn hinni
dæmigerðu „markaðsmanngerð" sem
svo er nefnd.“
Jóhann G. Bergþórsson, forstjóri
Hagvirkis hf., hefur síðasta orðið í þess-
ari umfjöllun:
„Lýður Friðjónsson var samstjómar-
maður minn í Amarflugi á sama tíma og
við vomm samkeppnisaðilar á drykkjar-
vörumarkaðnum en ég er stjómarfor-
maður í Sól hf.
Lýður er ákveðinn maður. Hann tek-
ur ákvarðanir og afstöðu út frá viðskipta-
legu sjónarmiði en lætur hugsjónavið-
horf, eins og við sumir höfðum í Arnar-
flugi, ekki mgla sig í ríminu. Hann er
ófeiminn að tjá sig hreint út við menn.
Einnig um óþægilega hluti og hann getur
verið mjög gagnrýninn.
Sem samkeppnisaðila upplifði ég Lýð
sem mjög duglegan, ákveðinn og fram-
sækinn, jafnvel ósvífinn í hörðum slag.
En það kom ekki á nokkum hátt fram í
samstarfi okkar að öðm leyti.
í beinum samningaviðræðum um
byggingarframkvæmdir var hann erfiður
og leitaði þá alltaf hagstæðra lausna fyrir
sitt fyrirtæki án alls tillits til kunnings-
skapar. Ég hygg að þannig hafi hann
verið í öllum viðskiptum og með því gætt
vel hagsmuna þess fyrirtækis sem hon-
um var trúað fyrir að reka.“
þúsund manns vinna hjá COCA-
COLA samsteypunni sjálfri. Hér í
Noregi vinna um tvö þúsund og níu
hundruð manns í kók-kerfinu, flestir í
þeim fjórtán átöppunarverksmiðjum
sem framleiða kók. Hér starfa tutt-
ugu manns í markaðsdeildinni en hjá
COCA-COLA NORGE A/S vinna um
hundrað og þijátíu manns. Tilgangur
þessa fyrirtækis er að gæta hags-
muna móðurfélagsins í Noregi og efla
söluna á þessu norðursvæði, sem
heyrir undir svæðisskrifstofu okkar,
sem er auk Noregs, Svíþjóð, Finn-
land og ísland. Nú síðast höfum við
unnið að málefnum fyrirtækisins í
samveldisríkjunum, sem áður voru
Sovétríkin, og í Eystrasaltslöndun-
um.“
Lýður er næst spurður um norska
gosdrykkjamarkaðinn.
„Gosdrykkjasala er um tvö hundr-
uð og tuttugu milljónir h'tra á ári í
Noregi. Markaðshlutdeild okkar er
yfir 60% hér í landi en það er mun
lægri hlutdeild en við náðum á íslandi.
Verkefni mitt og minna samstarfs-
manna er að auka kóksölu hér í Nor-
egi, ekki endilega með því að taka frá
hinum heldur fyrst og fremst með því
að stækka heildarmarkaðinn og ná til
okkar sem mestum hluta þeirrar
aukningar.
TUHUGU ÞÚSUND VIÐSKIPTAVINIR
Þessum markmiðum ætlum við að
ná með því að koma hér á framfæri
fjölþjóðlegri kynningarstarfsemi
COCA-COLA, kynna markaðnum
nýjungar í pakkningum, vélum og
öðru sem skiptir máli. Seljendur á
okkar vegum eru um tuttugu þúsund í
Noregi og við þurfum að vera í góðum
tengslum við þá. Þessi markaður er
ekki flókinn en hann er margbrotinn.
Samningar við þessa tuttugu þús-
und viðskiptavini eru mjög mismun-
andi. Samningagerðin er vandasöm
og erfiðari en var heima á íslandi —
þótt hún væri oft erfið þar. Þetta staf-
ar einkum af því að tíu stærstu við-
skiptavinimir eru með um 50% af söl-
unni og þeir tuttugu stærstu eru með
um 70% af henni. Þama er einkum
um að ræða stórar verslanakeðjur og
veitingahúsakeðjur. Stærsta versl-
anakeðjan á þrjú hundruð og sextíu
búðir. Það má því næmi geta að hart
er bitist um þá stóm — og ekkert grín
ef eitthvað fer úrskeiðis í samskiptum
við þá! Baráttan um viðskiptavinina
snýst um þjónustu og margs konar
markaðsaðgerðir - eða herferðir sem
stækkað geta kökuna. “
Lýður segir að allri markaðsstarf-
semi COCA-COLA í Noregi sé
stjórnað frá skrifstofu þeirra: „Við
19