Frjáls verslun - 01.03.1992, Blaðsíða 29
þess vart að vænta að kostnaðurinn
hafi verið minni á síðasta ári að raun-
gildi.
Þegar litið er á heildargjöld Hús-
næðisstofnunar árið 1989 og 1991
kemur í ljós að þau hafa aukist um
12% að raungildi. Vegna tæplega
80% raunhækkunar á eigin tekjum
stofnunarinnar hefur nettókostnaður-
inn við rekstur hennar lækkað um
tæplega 5% á þessum tveimur árum.
Hljóta menn að spyrja sig hvort þetta
sé viðunandi árangur miðað við
breyttar aðstæður sem húsnæðis-
lánakerfið á íslandi býr nú við.
í fjárlögum fyrir árið 1992 er gert
ráð fyrir að rekstrarkostnaður Hús-
næðisstofnunar verði 420 milljónir
króna. Þar á móti komi tekjur upp á
100 milljónir þannig að nettókostnað-
ur með fjárfestingum verði 320 millj-
ónir. í áætlunum stofnunarinnar er
hins vegar gert ráð fyrir 150 milljón-
um í sértekjur þannig að nettókostn-
aður verði ekki nema 270 milljónir.
Starfar sérstök undimefnd Húsnæð-
ismálastjórnar að athugun á rekstrar-
kostnaði með spamað í huga og einnig
mun átak verða gert til að auka tekj-
ur.
HÚSNÆÐISSTOFNUN ÓÞÖRF?
Þegar litið er á rekstrarþætti Hús-
næðisstofnunar ríkisins og þær
breytingar sem nú hafa orðið á pen-
ingamarkaði, vaknar óneitanlega
spurning á borð við þessa. Sérstak-
lega eftir að húsbréfakerfið var tekið
upp, almenna húsnæðiskerfinu frá
1986 lokað og í ljósi þess að verulegur
hluti þeirrar þjónustu, sem er reikn-
ingsfærð á Húsnæðisstofnun, er unn-
inn af aðilum úti í bæ.
Hér er auðvitað fyrst og fremst um
pólitíska spurningu að ræða og þótt
mikið hafi verið rætt um sparnað í
opinbera kerfinu, einkavæðingu og
aukna framleiðni í opinberri þjónustu
á síðustu mánuðum virðist það aldrei
hafa verið rætt í neinni alvöm að
leggja niður Húsnæðisstofnun ríkis-
ins. Slíkar vangaveltur geta þó vart
talist út í bláinn.
Eins og allir vita hefur almenna
húsnæðislánakerfinu verið lokað.
Húsbréfin hafa tekið við hlutverki
Byggingasjóðs ríkisins að því er varð-
ar lánafyrirgreiðslu til þeirra sem
byggja eða kaupa á næstu ámm. Sam-
kvæmt sérstökum samningi við
banka og sparisjóði í landinu annast
þær stofnanir greiðslumat fyrir um-
sækjendur um húsbréf. Sigurður Haf-
stein, framkvæmdastjóri Sambands
sparisjóða, sagði að sú vinna væri
unnin samkvæmt gjaldskrám banka
XVJÚl t'V/Ul U L- L- LV L
LLLLL/V /AiLl.L LL
Bæring Ólafsson,
sölustjóri hjá
Verksmiðjunni Vífilfell hf.
"Við erum mjög ánægðir með þjónustu
íslenskra markaðsrannsókna hf.
Þeir hafa bryddað upp á nýjungum sem hafa
haft veruleg áhrif á þessa rannsóknarstarfsemi
hérlendis og gert hana hagnýtari og
aðgengilegri fyrir stór sem smá fyrirtæki.
Betri vinnubrögð, ferskar hugmyndir, fágaðri
frágangur, mikill hraði og „opið allan
sólahringinn" - við förum ekki fram á meira!"
ÍIWI
iSLENSKAR
MARKAÐSRANNSÓKNIR HF -----------------------------------------------
Traustar upplýsingar skila aröi. SKEIFAN 11 B • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 686 777 • FAX 685 737