Frjáls verslun - 01.03.1992, Page 33
GASEMDIR"
Sigurður var spurður um þjón-
ustu banka og sparisjóða varðandi
greiðslumat fyrir lánsumsækjendur
í húsbréfakerfdinu og hvort þar væri
ekki verið að stíga fyrsta skrefið í átt
til yfirtöku innlánsstofnana á þjón-
ustu Húsnæðisstofnunar:
„Því fer víðs fjarri. Það var gerð-
ur ákveðinn samningur við þessa
aðila um svona þjónustu fyrir
nokkru síðan. Hins vegar hef ég
lengi verið þeirrar skoðunar að
bankar og sparisjóðir hefðu átt að
vera búnir að taka slíkt greiðslumat
að sér fyrir áratugum síðan. Þannig
þjónusta í erlendum bönkum þykir
sjálfsögð og það er til skammar hve
innlánsstofnanir hér á landi tóku
seint við sér. Eg minni líka á að
Húsnæðisstofnun hefur oft komið
bönkunum til bjargar þegar horfur
hafa verið á að húsnæðiskaupendur
stæðu ekki í skilum við þá. I því
sambandi má nefna greiðsluerfið-
leikalánin, en 4-5 milljarðar runnu úr
okkar sjóðum til fólks sem ekki gat
staðið í skilum við sinn banka. Þar
hygg ég að Húsnæðisstofnun hafí
bjargað bankakerfmu úr kviksyndi."
Að lokum var Sigurður E.
Guðmundsson inntur álits á þeirri
hugmynd að leggja niður Húsnæðis-
stofnun og fela verkefnin öðrum að-
ilum:
„Það er sjálfsagt að styðja einka-
framtakið til góðra verka. En svona
almannastofnun á líka fullan rétt á
sér. Mér lýst satt að segja afar illa á
þá hugmynd að fela bönkum og
sparisjóðum stóran hluta starfsem-
innar. Ég vek raunar athygli á því að
þessir aðilar hafa aldrei sóst eftir
þessum viðskiptum. Hvaða rekstr-
arform sem menn velja er aðalatrið-
ið það að félagslegur þankagangur
fái áfram að ráða í húsnæðiskerfi
þessarar þjóðar. Markaðslögmálin
mega aldrei leysa þá félagslegu
markmið af hólmi sem hér hafa verið
höfð í heiðri um áratuga skeið.“
GEVAUA
- það er kaffið -
Sími 687510
skuldabréfanna og innheimta á gjald-
dögum lána, uppboðsbeiðnir ef til
vanskila kemur og sala skuldabréfa til
lífeyrissjóða svo og greiðsla af þeim
bréfum. Þá sér Veðdeildin um allt
skrifstofuhald vegna skyldusparnaðar
ungmenna auk þess sem deildin hefur
með að gera færslur á fjárhags- og
rekstrarbókhaldi Húsnæðisstofnunar
svo og útborgun reikninga. Þá annast
deildin alla skýrslugerð vegna bók-
haldsins.
í núgildandi lögum um Húsnæðis-
stofnun segir aðeins að greiðslur úr
opinberu byggingarsjóðunum skuli
fara fram í almennum lánastofnunum,
þ.e. úr hvaða banka sem er ef um
semst um þóknun fyrir þá þjónustu.
Það er því sérkennilegt að þessi þjón-
usta skuli aldrei hafa verið boðin út og
hljóta útboð á minni verkefnum en
upp á 100 milljónir króna að vera al-
geng hjá opinberum aðilum. Hvort
það leiðir til lægri kostnaðar veit eng-
inn fyrr en slíkt útboð hefur farið
fram.
MILUÓNATUGIR í TÖLVUREKSTUR
Tölvumál Húsnæðisstofnunar hafa
mjög verið til umræðu í gegnum árin
og sýnist sitt hverjum. Talsverð
blaðaskrif urðu um málið fyrir tveim-
ur árum þegar nefndarmaður í ráð-
gjafanefnd ríkisins um upplýsinga- og
tölvumál, Bjarni Júlíusson, fullyrti að
Húsnæðisstofnun hefði keypt Wang
tölvubúnað fyrir milljónir króna árið
1981 en skömmu síðar hefði komið í
ljós að hann hentaði engan veginn. Þá
hefði sú tölva verið stækkuð oftar en
einu sinni með ærnum tilkostnaði og
loks skipt alfarið yfir í aðra tegund.
Allt þetta bæri vott um vanhugsuð
vinnubrögð og slæma ráðgjöf.
A þessum tíma, sem og raunar
enn, var Verkfræðistofan Strengur
ráðgjafi Húsnæðisstofnunar varðandi
tölvumál. Skúli Jóhannsson verk-
fræðingur bar fyrrgreindar ásakanir
um vanhugsuð vinnubrögð af stofu
sinni og taldi ekki óeðlilegt þótt Hús-
næðisstofnun hefði þurft að skipta um
tölvubúnað sjö árum eftir að fyrst var
fjárfest í tækjunum. Þá benti hann á
að Wang-tölvan hefði verið keypt að
undangengnu útboði. Bjami Júlíusson
svaraði um hæl í DV og benti á að
sami aðili hefði sem verktaki ráðlagt
Húsnæðisstofnun að kaupa tiltekinn
tölvubúnað. Hann hefði síðan fengið
það verkefni að endurskrifa allan hug-
búnaðinn og loks hefði sá hinn sami
verið í hlutverki eftirlitsaðila og end-
urskoðanda með eigin verki. „Þetta
eru vinnubrögð sem RUT nefndin
hefur gagnrýnt og telur sérlega
slæmt að sami aðili skuli koma fram
sem ráðgjafi og verktaki í sama máli,“
sagði Bjarni meðal annars.
Hér skal enginn dómur lagður á
33