Frjáls verslun - 01.03.1992, Page 34
HUSNÆÐISKERFIÐ
Það verður ekki um deilt að á mörgum sviðum hefur þessi stofnun unnið afar gott starf í gegnum árin og margur
húsbyggjandinn hefur leitað þangað í nauðum og fengið úrlausn.
hæfni áðila hjá Verkfræðistofunni
Streng en hitt liggur fyrir að kostnað-
ur við tölvukerfi Húsnæðisstofnunar
hefur verið gífurlegur á síðustu árum.
Þessi verkfræðistofa hefur allan tím-
ann veitt ráðgjöf og fleiri aðilar hafa
þar ekki komið nærri eftir því sem
heimildir okkar greina. Ljóst er að á
síðasta ári nam kostnaður vegna
tölvumála stofnunarinnar tugmilljón-
um króna og er því spum hvort ekki
hefði verið ástæða til að leita víðar
fanga um ráðgjöf á þessum vettvangi.
Tölvur geyma upplýsingar og gera
mönnum auðveldara með að nálgast
þær. Vissulega hljóta verkefni fyrir
slík tæki að vera ærin á stofnun eins
og Húsnæðisstofnun ríkisins. Hins
vegar liggja allar helstu upplýsingar
um húsnæðismál í landinu á allt öðrum
stað en í þeirri stofnun sem kennd er
við málaflokkinn. Fasteignamat ríkis-
ins, enn önnur ríkisstofnunin, hefur
nefnilega það verkefni að halda skrár
um kaupsamninga, safna upplýsing-
um um stærðir fasteigna og meta gildi
þeirra út frá ýmsum forsendum.
Þannig er alla tölfræði um húsnæðis-
mál að finna hjá Fasteignamatinu og
út frá þessum hugleiðingum er enn
spurt: Hefur aldrei komið til greina að
sameina þessar tvær stofnanir sem
„Eins og áður sagði benti Ríkis-
endurskoðun á sínum tíma á
miklar greiðslur til verktaka,
utan Húsnæðisstofnunar. Ekki
virðist hafa tekist að lækka
þann kostnað nema að því er
varðar kostnað vegna þjónustu
Veðdeildar Landsbankans.“
sýsla með þetta eilífðarmál okkar ís-
lendinga?
Á 3000 FERMETRUM
Talandi um Fasteignamat ríkisins
fengust þær upplýsingar þar að hús-
eignin Suðurlandsbraut 24 í Reykja-
vík, þar sem Húsnæðisstofnun er til
húsa, væri samtals 5.408 fermetrar
að stærð og fasteignamat eignarinnar
væri í dag 273.3 milljónir króna. Hjá
Borgarfógetaembættinu í Reykjavík
fengust hins vegar þær upplýsingar
að Húsnæðisstofnun ætti 53.11%
eignarinnar á móti Landsbanka ís-
lands, sem þýðir að eignarhlutur Hús-
næðisstofnunar er í dag 145.2 milljón-
ir króna að fasteignamati.
Við skulum láta hugleiðingum um
Húsnæðisstofnun ríkisins lokið að
sinni. Það verður ekki um það deilt að
á mörgum sviðum hefur þessi stofnun
unnið afar gott starf í gegnum árin og
margur húsbyggjandinn hefur leitað
þangað í nauðum og fengið úrlausn.
Hitt er ljóst að kostnaður við rekstur
Húsnæðisstofnunar hlýtur að teljast
býsna hár. Hvorki Húsnæðisstofnun
ríkisins né önnur mannanna verk eru
hafin yfir gagnrýni. Því miður virðist
lítið hafa borið á aðhaldssamri um-
ræðu um þessa stofnun við Suður-
landsbrautina og er forvitnilegt að
velta ástæðum þeirrar hrópandi
þagnar fyrir sér.
34