Frjáls verslun - 01.03.1992, Side 39
(model validation), næmnisgreiningu
(sensitivity analysis) og prófun til að
koma í veg fyrir að útkoman verði
misvísandi eða villuleiðandi.
Hjá byrjendum er sú hætta fyrir
hendi að reynt sé að líkja eftir raun-
veruleikanum í of miklum smáatrið-
um. Haft skal í huga að rétt er að
dæma gæði hermiKkans af notagildi
þess fremur en hvort það lýsi hinu
raunverulega kerfi í öllum smáatrið-
um.
Þegar ákveðið er hvaða atriði skuli
hafa með við gerð líkans er það al-
mennt gert í gegnum hreinsanir eða
betrumbætur á líkaninu, þ.e.a.s. lík-
anið er sífellt fágað betur. í fyrstu
getur líkanið verið grófgert af ásettu
ráði til að í ljós megi koma hvað tölvu-
keyrslan hefur að opinbera. Þá er lík-
anið hreinsað af vanköntum eða snyrt
til og endurkeyrt og það er síðan gert
eins oft og með þarf til að bæta líkan-
ið.
Að þróa hermilíkan í þrepum gefur
hönnuðinum möguleika á að leggja
bráðabirgða niðurstöður fyrir aðila
sem hafa meiri innsýn eða þekkingu
varðandi hið raunverulega kerfi.
Þessir aðilar gætu síðan bent á hvar
líkanið gefur ekki réttar upplýsingar
þannig að hönnuðurinn geti breytt því
til batnaðar. Yfirleitt eru hinir sönnu
sérfræðingar í þessu sambandi það
fólk, sem starfar beint við sjálfa fram-
leiðsluna, en ekki það fólk sem stjórn-
ar eða hefur fengið það hlutverk að
skilgreina viðkomandi ástand. Það er
kannski einn af mörgum kostum
hermilíkana að bæði er auðvelt og auk
þess fyllilega réttmætt er að draga
inn í rannsóknina það fólk sem dag-
lega starfar í hinu raunverulega kerfi
og þekkir það vel.
FORRITUNARMÁL FYRIR HERMILÍKÖN
Meðal útbreiddra forritunarmála
fyrir hermilíkön í USA eru SIMAN,
GPSS/PC, SLAM-II og SIMSCRIPT
II.5, svo einhver séu nefnd sem fáan-
leg eru í útgáfum fyrir einkatölvur.
Flest meiriháttar hermiforrit eru
núorðið einnig seld með möguleikum
á myndrænni framsetningu (anima-
tion graphics). Þetta þýðir að það,
sem er að gerast í forritinu, birtist á
Dæmigert ferli hermiathugunar.
skjánum sem mynd líkt og þekkt er
frá ýmsum svokölluðum tölvuleikjum
sem í raun eru ekki annað en hermi-
forrit. Þetta er einkum gagnlegt við
villuleit og til að prófa hvort öll rök fái
staðist í forritinu. Sérstaklega er
þetta þó gagnlegt til að koma niður-
stöðum hermiprófunar til skila til
fólks sem ekki hefur mikla þekkingu á
forritun eða tölfræði. Það er mun
árennilegra að nálgast skilning hjá
slíku fólki með að sýna því myndræna
framsetningu á því, sem gerist, held-
ur en að leggja fram haug af tölfræði-
legum niðurstöðum.
Sem sagt, þetta getur verið mjög
gagnlegt til að „selja“ verkið ef þeir,
sem eru með í að taka ákvarðanir um
hvort niðurstöðunum skuli hrint í
framkvæmd, hafa ekki þann bak-
grunn sem þarf til að skilja hinar töl-
fræðilegu niðurstöðu einar sér. Það
skal þó undirstrikað hér að hin mynd-
ræna framsetning kemur engan veg-
inn í staðinn fyrir tölfræðilegu niður-
stöðurnar heldur sem einskonar auka
möguleiki. Ennfremur má geta þess
að við gerð hermilíkana þarf ekki að
einskorða neitt við einhverja eina
,,þægilega“ tölfræðilega dreifingu
heldur eru yfirleitt allar mikilvægar
dreifingar byggðar inn í hugbúnaðinn
Silkiprentaðir
límmiðar
AUGLYSINGAR - SKILTAGERÐ
SILKIPRENTUN
SKEIFUNNI 3c - 108 REYKJAVlK
SlMI: 68 00 20 - FAX: 68 00 21
39