Frjáls verslun - 01.03.1992, Blaðsíða 54
TOLVUMARKAÐURINN
NYHERJIER
TÍMANS TÁKN
- SEGIR JÓN VIGNIR KARLSSON HJÁ
IBM Á ÍSLANDI
„Ástæðan fyrir sainruna erlendra
tölvuframleiðenda er m.a. hinn gíf-
urlegi þróunar- og markaðskostnað-
ur við þróun nýjunga af ýmsu tagi.
Segja má að svipuð lögmál gildi hér
á landi. Það kæmi mér því ekki á
óvart þótt frekari samruni eigi eftir
að eiga sér stað auk þess sem við-
skiptavinir gera þær kröfur til tölvu-
salanna að þeir bjóði mikla vídd
hvað varðar vöruval og þjónustu. Að
því leyti er stofnun Nýherja hf. tím-
ans tákn,“ sagði Jón Vignir Karls-
son hjá IBM á íslandi en það fýrir-
tæki sameinast Skrifstofuvélum hf.
um þessi mánaðarmót.
Jón Vignir sagði að hérlendis ríkti gífur-
legt verðstríð í tölvubúnaði. „Tilkoma
Nýherja hf. er dæmi um breytingar á
rekstrarformi IBM og Skrifstofuvéla með
það fyrir augum að ná betur til markaðar-
ins.“
Um fjárfestingar í tölvubúnaði sagði
sagði Jón Vignir að eflaust mætti finna
dæmi um röng og of mikil kaup hjá ein-
staka fyrirtækjum. „Hins vegar tel ég að
meira sé um að stjómendur h'ti á tölvu-
Jón Vignir Karlsson.
væðingu sem hrein aukaútgjöld í stað þess
að líta á hana sem eitthvað sem hjálpi fyrir-
tækinu að ná markmiðum sínum. Þessu
veldur m.a. það að marga stjómendur
vantar markmið með tölvuvæðingunni
þótt að þeim fari vissulega fækkandi,"
sagði Jón Vignir einnig.
„Sjaldan höfum við byijað nýtt ár með
jafnmörgum nýjungum og nú. í janúar
settum við á markað fimm nýjar gerðir af
IBM RISC System/6000. Þessi gerð
keyrir AIX (Unix) og spannar nú sviðið frá
lítilli vinnustöð upp í öflugustu RISC tölv-
una á markaðnum nú. RS/6000 býður núna
upp á mjög öflugar nettengingar eins og
Netware Novell. Einnig er nú fáanlegur
Bústjóri á RS/6000 en það er alhliða við-
skiptakerfi sem hefur aðeins verið fáan-
legt á DOS og OS/2 stýrikerfið. Þá má
nefna að við höfum verið að kynna nýja línu
af hinum vinsælu AS/400 tölvum ásamt
nýjum hugbúnaði sem stóreflir PC teng-
ingar við þær. Einnig kynnti IBM nýlega
nýjungar á sviði PS/2 sem markar tímamót
í þróun einkatölva, en þar er um að ræða
nýjan örgjörva 386 SLC sem eykur afköst
slíkra véla um 88%. Á sama tíma kynnti
IBM einnig nýja fartölvu með litaskjá sem
er sú fullkomnasta sinnar tegundar."
Jón Vignir tók að lokum fram að mjög
miklar verðlækkanir hefðu orðið á IBM
PS/2 tölvubúnaði og sýndi það greinilega
að IBM ætlaði sér ekki að gefa eftir hlut-
deild á PC markaðinum.
Sveinn Áki Lúðvíksson.
FREKARISAMRUNIER ÓHJÁKVÆMILEGUR
- SEGIR SVEINN ÁKI LÚÐVÍKSSON HIÁ SAMEIND HF.
„Ég tel ekki að samruni íslenskra
tölvufyrirtækja stafi af því að erlend
tölvufyrirtæki hafi runnið í eina
sæng. Það væri þá frekar að slík þró-
un leiddi til þess að umboð hér á
landi söfnuðust á færri hendur. Hins
vegar tel ég hugsanlegt að frekari
samruni íslenskra tölvufyrirtækja
muni verða á næstunni vegna til-
komu Nýherja hf. þar sem fyrirtæk-
in muni svara því útspili með sams
konar hætti,“ sagði Sveinn Áki Lúð-
víksson hjá Sameind hf. í spjalli við
Frjálsa verslun.
„Spumingin um hugsanlega offjárfest-
ingu íslenskra fyrirtækja í tölvubúnaði
hefði verið eðlileg fyrir 5-10 árum þegar
flestar tölvur voru af miðlægum stærðar-
flokki. Nú hafa netvæddar einkatölvur
nefnilega tekið við í fyrirtækjum þar sem
áður voru fyrir hendi of stórar miðlægar
tölvur vegna þess að annað fékkst ekki á
þeim tíma. Þessi þróun í nettækninni gerir
endumýjun einkatölva að eðlilegum hlut
54