Frjáls verslun - 01.03.1992, Blaðsíða 58
TOLVUMARKAÐURINN
SAMRUNIER
LAUSNARORÐIÐ
- SEGIR GUNNAR LINNET HJÁ
SKRIFSTOFUVÉLUM HF.
„Samruni íslenskra tölvufyrirtækja
mun halda áfram og hann veröur af
margs konar ástæðum. Fyrirtæki á
tölvumarkaði hér á landi eru afar
mörg og líklegt verður að teljast að
þróunin verði sú að miðlungsfyrir-
tækin sameinist í stærri einingar og
að auk þeirra verði minnstu fyrir-
tækin áfram á markaði. Eiginfjár-
staða margra tölvufyrirtækja er
fremur léleg og sú staðreynd mun
flýta fyrir samruna. En einnig mun
það gerast að sterk fyrirtæki sam-
einist til að skapa mjög sterka heild.
Samruni IBM og okkar er af þeim
grunni,“ sagði Gunnar Linnet hjá
Skrifstofuvélum hf. en það fyrir-
tæki, ásamt IBM á íslandi, er þessa
dagana að ganga í eina sæng.
„Varðandi spurninguna um hvort ofíjár-
festing í tölvubúnaði sé til staðar bendi ég
á að vissulega sé hægt að sýna fram á
vannýttan tölvubúnað í fyrirtækjum og að
starfsmenn kunni ekki sem skyldi á hug-
búnaðinn o.s.frv. Hins vegar liggur fyrir
að við eigum enn talsvert í land með að
tileinka okkur upplýsingatæknina til fulls,
fyrirtækjunum til hagsbóta. Öll teikn eru
því á lofti um að það verði áframhaldandi
aukning á tölvuafli og ég tel að menn muni í
auknum mæli hyggja að notkun tölvanna til
að nýta sér þær upplýsingalindir, sem eru
þar til staðar, með það fyrir augum að
bæta samkeppnisstöðuna," sagði Gunnar
ennfremur.
Varðandi nýjungar, sem væru á boð-
stólum fyrirtækis hans, sagði Gunnar að
þær væru auðvitað ávallt að koma fram en
í auknum mæli væri um að ræða fullkomn-
ari útfærslur á þekktum búnaði. „Nýheiji
hf. mun verða við stofnun og í framtíðinni
traustur Birgir sem mun bjóða búnað og
lausnir sem hentar flestum. Margmiðlun
(Multimedia) er sá endi sem mest þróun
er í um þessar mundir og þar ætlum við
okkur stóran hlut. Tölvutengdir bréfsímar
eru einnig áhugaverð nýjung og vænta má
nýjunga í tengslum við rekstraröryggi
nær- og víðneta auk möguleika á samnýt-
ingu millitölva og einmenningstölva.
Nýherji hf. mun verða í fararbroddi á flest-
um sviðum tölvumála sem og annarra
skrifstofutækja sem fyrirtækið mun selja
og þjónusta," sagði Gunnar Linnet.
Höskuldur H. Dungal.
FJARVINNSLAN ER VANNYTT
- SEGIR HÖSKULDUR H. DUNGAL HJÁ KJARNA HF
„Ég tel að tölvusölum muni eitthvað
fækka hér á landi þó ekki verði mik-
ið um samruna alveg á næstunni.
Astæðurnar má rekja til þess að
samkeppni mun aukast í kjölfar
lækkandi framleiðslukostnaðar og
endurnýjun í tölvubúnaði verður
ekki eins ör vegna þess hve tölvurn-
ar eru orðnar öflugar nú þegar. Loks
má nefna að sérhæfðum tölvusölum
mun fækka því allur algengur bún-
aður mun innan skamms fást í tölvu-
deildum stórmarkaða líkt og gerst
hefur með símtæki sem nú fást m.a.
á bensínstöðvum,“ sagði Höskuldur
H. Dungal hjá Kjarna hf.
„Þegar þú spyrð um offjárfestingar í
tölvubúnaði íslenskra fyrirtækja er því til
að svara að ég tel að nánast ekkert fyrir-
tæki hér á landi sé nægjanlega tölvuvætt.
Yfirleitt eru tölvur of fáar og of hægvirkar.
Þá má víðast hvar bæta hugbúnaðinn
verulega, auka prentgæði í útprentun og
efla tölvusamskipti innan fyrirtækja og á
milli þeirra," sagði Höskuldur ennfremur.
Hann benti sérstaklega á að enn skorti
58