Frjáls verslun - 01.03.1992, Qupperneq 60
TOLVUMARKAÐURINN
næstu árum. Samkeppni fer harðn-
andi og þessi atvinnugrein verður að
takast á við hana, m.a. með aukinni
samvinnu og styrkingu rekstrarein-
inganna,“ sagði Eysteinn F. Arason
hjá Faco hf., Tækniverslun, í sam-
tali.
„Það hefur óneitanlega verið fjárfest
gífurlega mikið í tölvubúnaði á íslandi und-
anfarin ár. Erfitt er að fullyrða um hvort
hér hafi átt sér stað offjárfesting. Tölvu-
VERÐUM AÐ BJÓÐA
HEILDARLAUSNIR
- SEGIR HEIMIR SIGURÐSSON HIÁ
ÖRTÖLVUTÆKNI
„Harðnandi samkeppni vegna nýrr-
ar tækni og aukinnar stöðlunar í
framleiðslu mun leiða til samruna
og/eða samvinnu fyrirtækja á tölvu-
sviði, annars vegar á milli framleið-
enda og hins vegar á milli seljenda
eða dreifingaraðila. Hér á landi er
þróunin sú að tölvukaupendur leita
enn frekar en áður til fyrirtækja sem
bjóða heildarlausnir. Mikið af tölvu-
væðingu fyrirtækja nú er netvæðing
í stað hefðbundinna millitölva.
Þetta kallar á tölvufyrirtæki sem
geta boðið búnað frá mismunandi
framleiðendum sem uppfylla þarfir
notenda," sagði Heimir Sigurðsson
hjá Örtölvutækni.
„Auk samruna íslenskra tölvufyrir-
tækja af þessum sökum hlýtur að vera
tímaspursmál hvenær íslensk hugbúnað-
arfyrirtæki taka sig saman til að sameinast
um gerð forrita fyrir opin stýrikerfi fram-
tíðarinnar," sagði hann ennfremur. Varð-
andi tölvuvæðingu íslenskra fyrirtækja
sagði Heimir:
„Örtölvutækni hefur sérhæft sig í sölu
og uppsetningu netkerfa og er hægt að
fullyrða að við eigum langt í land með að
metta þann markað. Ég tel að almennt hafi
verið staðið þokkalega að tölvuvæðingu
fyrirtækja en að helst sé skortur á sér-
hæfðum hugbúnaði fyrir algengustu stýri-
kerfin svo og að þjálfun starfsmanna sé
næg. Þegar spáð er í þörfina fyrir nýjan
búnað tel ég að árlega þurfi að endurnýja
um 5000 einmenningstölvur hér á landi og
enn fleiri stærri tölvur af ýmsu tagi.
Tölvutæknin þróast sem kunnugt er mjög
hratt og hugbúnaður dagsins í dag þarf
sífellt meira afl til að svara kröfum notenda
um svartíma. Einstaklingar og fyrirtæki
munu því áfram fjárfesta mikið í tölvubún-
búnaður er nánast ómissandi í allri starf-
semi og óhugsandi að fullnægja kröfum
tímans án þess að nota tölvur. Tölvuvæð-
ing hefur verið mjög hröð hér og eru dæmi
um að fyrirtæki hafi fjárfest í röngum bún-
aði sem hefur reynst þeim dýrkeyptur,"
sagði Eysteinn um tölvufjárfestingar hjá
íslenskum fyrirtækjum til þessa.
„Faco hf. býður nú upp á fistölvu (Not-
ebook Computer) frá GEA. Mikill áhugi er
um allan heim á fistölvum og seljast þær
grimmt. Með fistölvunni öðlast tölvan nýtt
notagildi. Menn eru ekki lengur takmark-
aðir við fasta staðsetningu hennar. Þær
fistölvur sem nú bjóðast geta unnið næst-
um öll verkefni sem hefðbundnar PC skrif-
stofuvélar gera. Það er ótrúlegt en satt að
GEA NB900 fistölvan, með flatarmál A4
blaðs og 2.6 kg. að þyngd, hefur sama
notagildi og öflug borðtölva," sagði Ey-
steinn í tækniverslun Faco hf. að lokum.
Jón Bjarki Gunnarsson verslunarstjóri í Örtölvutækni.
„Ég tel að árlega þurfi að
endurnýja um 5000
einmenningstölvur hér á
landi,“ segir Heimir
Sigurðsson m.a.
aði af ýmsu tagi,“ sagði Heimir ennfrem-
ur.
Heimir sagði að á síðasta ári hefði Ör-
tölvutækni lagt áherslu á net- og sam-
skiptabúnað til að þjóna þörfum viðskipta-
vina sem vildu flytja sig í opin og stöðluð
kerfi. „Helstu nýjungar hjá okkur, fyrir
utan venjulega þróun einmenningstölva og
jaðarbúnaðar, er sala Örtölvutækni á sk.
Leiðstjómendum (Routers). Nýlega vom
fyrstu notendur Háhraðanets Pósts og
síma tengdir en það net er byggt á Leið-
stjómendum frá fyrirtækinu Cisco sem
við seljum og þjónustum. Þessi tengi-
möguleiki mun gjörbreyta samnýtingu
staðarneta og sameiginlegri þjónustu sem
notendur geta sótt, óháð fjarlægðum,"
sagði Heimir að lokum.
60