Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1998, Síða 21

Frjáls verslun - 01.11.1998, Síða 21
MAÐUR tæki af þessari stærð verður ekM rekið nema með tiltölulega þröngri spönn. Við höfum skipulag, skiptum rekstrinum niður í rökréttar einingar og það þarf fólk með leiðtogahæfileika til að drífa hlutina áfram á hverju sviði. Þegar ég kom að þessu fyrirtæki þá breyttist stjórnunarspönnin eins og gjarnan gerist þegar fyrirtæki eru endurskipulögð. Mér var sögð sú saga að þekktur kaffiklúbbur á Akureyri, sem hittist daglega á KEA-hótelinu, hafi rætt um þennan nýja mann sem ættí að taka við Eimskip. Þeir höfðu á orði að hann væri svolítíð sérstakur; hann ætlaði víst ekki að tala við nema ijóra tíl fimm menn í fyrirtækinu - svo þröng ættí stjórnunarspönnin að vera. Þeir höfðu áhyggjur af þessu." - Verðmæti Eimskips á hlutabréfamarkaði voru rúmir 5 milljarðar í upphafi ársins ‘94 og hafa þvi aukist um 18 milljarða á tæpum fimm árum - og þar af um 5 milljarða undanfarið ár. Hvaða stefna í rekstrinum hefur gert félagið svo eftirsóknarvert á hlutabréfamarkaði, skapað þennan góðan árangur? „Eimskip byggir á gömlum merg og hefur sterkar rætur. Það er nær 85 ára; stofnað í janúar 1914. Það fékk mikla rótfestu í íslensku samfélagi þegar í upphafi. Það hefúr oft verið umdeilt og um það hafa blásið vindar; pólitískir sem aðrir. Það nýtur öflugs hóps viðskiptavina og þeir hafa gert félagið stórt með því að vilja skipta við það. Eg þekki best síðustu tuttugu árin. Á þeim tíma höfum við lagt áherslu á markmiðssetningu, áætlanagerð, eftírfylgni og nýjungar. Við höfum verið dugleg við að innleiða stjórnunarþekkingu og reynslu erlendis frá. Þetta hefur skilað árangri og gert félagið eftírsóknarvert á meðal Ijárfesta. Eimskip hefur lagt mikla áherslu á að standa á eigin fótum og að vera óháð fjármálastofnunum. Félagið leggur áherslu á stöðugleika og forðast ævintýra- mennsku. Það hefur verið gæfa félagsins að hafa samhenta og öfluga stjórn, sem hefur gefið okkur ffelsi til athafna innan ramma sem hún setur. Stjórnin hefur verið virkur þátttakandi og stjórnin hefur fylgst grannt með því sem hefur verið að gerast á hveijum tíma.“ - Hvaða starfsemi í fyrirtækinu gefur mest af sér? „Kjarninn í þessu félagi er flutningastarfsemi; sjóflutningar til og ifá íslandi og sú þjónusta sem þeim tengist. Þar hefur afkoman myndast í gegnum tíðina og flutningastarfsemin er ennþá í aðalatriðum það sem skiptir mestu máli varðandi hagnað og greiðsluflæði. Það hefur hins vegar orðið mikil breyting á síðustu árum. Við ákváðum að fjárfesta með skipulögðum hætti í öðrum fyrirtækjum á verðbréfamarkaði á Islandi. Fjárfestíngafélagið Burðarás var svo stofhað árið 1989 tíl að halda utan um þessa verðbréfaeign og halda starfseminni áffam. I fyrstu var þessi starfsemi rekin á borðshorninu hjá einum framkvæmdastjóranna, en síðustu tvö árin hefur félagið verið rekið með formlegum hætti. Eg tel að þetta hafi verið farsæl starfsemi. Eimskip var á undan flestum öðrum að fjárfesta á þessum markaði og á TEXTI: Jón G. Hauksson - MYNDIR: Geir Ólafsson leiðtoginn - sá sem gætir þess að fyrirtækið geri réttu hlutina. Þarfitu í raun ekki fyrst og ífemst góða verkmenn tíl að fylgja stefiiu þinni eftir? „Eg geri ekki alla hlutí, það er útílokað. Eg dreifi valdinu mikið þótt stundum séu skiptar skoðanir á því hér innanhúss hversu mikið ég geri af því og að það mætti vera meira. Fyrir- þeim tíma eignaðist félagið bréf á góðu verði. Ör þróun á íslenskum verðbréfamarkaði og stofnun Verðbréfaþings, sem hefur gert markaðinn virkaii og betri, hefur skilað félaginu verulegum árangri. Þetta er höfúðbreytíngin á starfsemi Eimskips á síðustu árum. Hún hvílir núna á tveimur stoðum; flutningum og fjárfestingum á hlulabréfamarkaði. Ætla má að 60% af markaðsverðmætí félagsins byggi á flutningum en um 40% á hlutabréfaeign í öðrum félögum - en þar hefur verðmætaaukningin orðið mest á síðustu þremur til fimm árum. Frá árinu 1989 er ávöxtun á bréfum Burðaráss um 20% að meðaltali á ári.“ i 21
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.