Frjáls verslun - 01.11.1998, Blaðsíða 40
frá því aó vera einvöróungu vélafram-
leiðendur yfir í þaó að bjóða viðskipta-
vinum okkar upp á heildarlausnir á sviði
pakkninga og framleiðslu pakkninga úr
mótuðum pappír. Þetta kallar á mikið starf
í uppbyggingu þekkingar í pappírs- og
trefjafræðum auk þekkingar á hönnun
bæði pakkninga og mótanna sem notuð
eru við framleiðslu þeirra. í samræmi við
þessa stefnu opnar félagið formlega
markaðsskrifstofu í Englandi 1. janúar
næstkomandi auk þess að vera í nánu
samtarfi við þekkingarmiðstöðvar í áður-
nefndum löndum."
David Tuke-Hasings markaösstjóri, Björn Ingi Sveinsson forstjóri og Skúli Siguröarson
aðstoðarmarkaðsstjóri. FV-myndir: Geir Olafsson.
Breyttar áherslur í
starfsemi Silfurtúns
mfangsmikil endurskipulagning í
rekstri sem og tæknilegt þróun-
arstarf hafa verið unnin síðast-
liðin tæp tvö ár hjá Silfurtúni í Garðabæ og
er fyrirtækið nú á siglingu inn á önnur mið
en þau sem það hefur verið að vinna á
undanfarin ár, að sögn Björns Inga Sveins-
sonar forstjóra. „í kjölfar þeirrar stefnu-
mótunarvinnu, sem hefur verið í gangi hjá
okkur að undanförnu, erum við að hverfa
Fyrir tæpum tveimur árum komst
Silfurtún í eigu norsks hlutafélags, Silver-
ton ASA, en að því standa nú nokkuð á
annað hundrað fjárfestar úr iðnaði og
áhættusjóðum auk annarra aóila sem trúa
á framtíð endurvinnslu og betri nýtingu
náttúruauólinda. Stærstu nýju hluthaf-
arnir, sem komió hafa að félaginu að
undanförnu, eru Nýsköpunarsjóður at-
vinnulífsins, sem eignaðist hlut í því fyrir
um það bil fimm mánuðum, og Hartog AS
í Noregi sem á meðal annars norska
pakkningafyrirtækið Elopak. Forstjóri
Silverton ASA og Silfurtúns er Björn Ingi
Sveinsson en fjármálastjóri félaganna er
Björk Þórarinsdóttir. Silverton ASA er með
höfuðstöðvar í Osló.
Björk Þórarinsdóttir fjármálastjóri og Elín Ingimundardóttir aðalbókari.
Punktar úr sögu Silfurtúns
Silfurtún hf. var stofnað árið 1954
sem fyrirtæki er framleiddi þakpappa
fyrir íslenskan markað. Um miðbik
síðasta áratugar flutti félagið síðan inn
vél sem það breytti og endursmíóaði og
í framhaldi af því hófst framleiðsla á
eggjapakkningum fyrir íslenskan
markað. Framleiðslan hélst samfleytt
fram í október 1996, en var þá að fullu
hætt. Fáeinum árum eftir að
eggjabakkaframleiðslan hófst fór
Silfurtún að framleiða vélar til
útflutnings sem endurvinna pappír og
var fyrsta vélin flutt út 1990. Hún fór til
Súdan og er enn í fullri notkun við
framleiðslu eggjabakka. (tæp tvö ár
hefur Silfurtún verið að fullu í eigu
norska félagsins Silverton ASA.
—.....
40