Frjáls verslun - 01.11.1998, Blaðsíða 51
MARKAÐSMAL
r
tvo mismunandi auglýsingabæklinga eða
risakálf fýlgja blaðinu og lesendur eru
hættir að reka upp stór augu þótt þeir sjái
opnuauglýsingar í fullum lit. Það sem mér
finnst einna merkilegast er að það virðist
vera einhvers konar lögmál að þegar
framboð auglýsingamiðla eykst fjölgar
auglýsingum í Morgunblaðinu mest,“
sagði Leópold.
En hvaða verkefni skyldu vera eftir-
minnilegust af viðfangsefnum AUK á
árinu?
„Svona fljótt á litið dettur mér fyrst i
hug að nefna „Anda“ herferðina sem við
unnum fyrir Sjóvá-Almennar í vor. Þar
tókst okkur að koma tiltölulega flókinni
huglægri vöru í auðskilið myndrænt form
— og það er erfiðara en margur hyggur.
Til að fá landsmenn til að festa í huga sér
endurgreiðsluþáttinn í Stofni ákváðum við
að sýna endur með mismunandi hár-
greiðslur. Þetta þóttí mjög áræðið fyrir-
fram og ekki voru allir á eitt sáttír hvort
rétt væri að nota húmor á þennan hátt til að
kynna jafn alvarlegar vörur og tryggingar.
En tíl að gera langa sögu
stutta þá féll þetta í góðan
jarðveg hjá viðskiptavinum
og léttí ímynd félagsins.
Verkefni sem við
höfurn unnið fyrirTóbaks-
varnanefnd hafa alltaf
verið mjög skemmtileg.
Að vísu var ekki kostur að
vinna ýkja mörg verkefni
fyrir nefndina á þessu ári
en ég verð þó að nefna
auglýsingaplaköt sem
hönnuð voru fyrir nýju
strætóskýlin og voru meðal
þeirra fyrstu sem þar birtust.
Oliufélagið opnaði í sumar nýja
þjónustustöð á Artúnshöfða og fengum við
það skemmtilega verkefni að hanna
heildarútlit stöðvarinnar, þ.e.a.s. lógóið,
umbúðirnar og allar merkingar utan húss
og innan auk markaðssetningarinnar.
Þetta var geysistórt verkefni og krefjandi
þar sem stöðin var reist á mettíma og þeir
dagar sem við höfðum tíl ráðstöfúnar því
ekki ýkja margir.
Hvíta húsið sá um markaðssetja LGG, nýja
afurð Mjólkursamsölunnar, sem sló í gegn.
Að lokum verð ég að geta þess að
Brimborg kom nýlega með Ford í viðskipti
tíl okkar og við höfum verið að móta með
þeim spennandi auglýsingastefnu sem
vonandi á eftír að skila sér vel á næsta ári,“
sagði Leópold að lokum. 33
PAPPIR
FYRIR
ALLAR
GERÐIR
TÖLVUPRENTARA
LJÓSRITUNARPAPPÍR
REIKNIVÉLARÚLLUR
FAXRÚLLUR
G RAFIK
UMBROTí
SETNING
ÚTKEYRSLA'
MAC / PC
FILMU OG PLÖTUGERÐ
ÖLL ALMENN
PRENTUN
BÓKBAND
Prentsmiöjan Grafík hf. • Smiöjuvegur 3 ■ 200 Kópavogur • Sími: 554 5000 ■ Fax: 554 668,1
Vilji og vandvirkni í verki!
■■■■■■■■■i
HBHB
51