Frjáls verslun - 01.11.1998, Blaðsíða 81
FOLK
|-J-| itt starf felst aðallega í því aðstoða íyrirtækjaþjón-
I l'i I uslu °g markaðsviðskiptasvið bankans við að
LiU kynna fyrirtækið og þjónustu þess fyrir við-
skiptavinunum. Þessu til viðbótar stýri ég almennu mark-
aðsstarfi og hef umsjón með almannatengslum," segir
Hulda Dóra Styrmisdóttír, forstöðumaður markaðsþjón-
ustu Fjárfestingabanka atvinnulifsins.
Fjárfestíngabankinn, eða FBA, eins og hann er jaínan
nefndur, er ungt fyrirtæki, sem tók við starfsemi tjárfest-
ingarlánasjóða atvinnulífsins 1. janúar sl. Þar vinna nú um
70 manns.
„Við höfum talsverða sérstöðu, erum eini bankinn
sem sérhæfir sig í þjónustu við atvinnulífið, við rekum
ekki útibú, erum á einum stað og seljum ekki staðlaða
þjónustu heldur lögum okkar þjónustu að þörfum við-
skiptavinanna."
Hulda hefur starfað hjá FBA ffá 1. mars á þessu ári og
hefur því eðlilega mótað starfið frá grunni sem hún segir
að hafi verið ákaflega skemmtilegt og gefandi.
„Það var ekkert markaðsefni tíl og því höfum við þurft
að búa til allt sem höfum þurft að nota. Mitt starfssvið er
einkum hér innanhúss við að aðstoða hinar ýmsu deildir
og ég hitti þvi sjaldan hina eiginlegu viðskiptavini bank-
Við þurfum einnig að kynna okkur fýrir fjármálafýrir-
tækjum erlendis sem við eigum samskiptí við. Nú þegar
komnir eru hluthafar inn i bankann, aðrir en ríkissjóður,
þarf líka að kynna starfsemina fýrir þeim. Þannig eru
verkefnin sem ég er að fást við mjög ólík innbyrðis."
Hulda sér ekki aðeins um kynningarmálin eins og þau
snúa að viðskiptavinum bankans heldur er innra mark-
aðsstarf einnig mikilvægur þáttur í því sem hún gerir.
„Við leggjum mikla áherslu á að starfsmenn okkar viti
ávallt um helstu verkefni og stöðu þeirra og þess vegna er
haldinn hér fundur á hveijum morgni klukkan hálfníu.
Þar mæta nær allir starfsmennirnir og við förum yfir stöð-
una. Það þarf að hyggja að innra kynningastarfi, m.a. til
Hulda Dóra Styrmisdóttir lærði hagfræði í Ameríku, tók MBA í Frakklandi
og veitir markaðsþjónustu FBA forstöðu.
FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
HULDA DÓRA STYRMISDÓTTIR, FBA
að allir séu samtaka um hvernig bankinn sé kynntur og
hvernig rétt sé að taka á hinum ýmsu málum sem upp
koma bæði gagnvart starfsmönnum og utanaðkomandi.“
Þegar 49% hlutur ríkissjóðs í FBA var boðinn tíl sölu
var umsjón með kynningarstarfi í höndum Huldu.
„Þetta var skemmtílegt verkefni sem gekk mjög vel.
Við erum afskaplega ánægð með viðtökurnar og hlökk-
um til árangursríks samstarfs við nýja hluthafa í framtíð-
inni.“
Hulda Dóra nam hagfræði við Brandeis University í
Ameríku en fór síðar í framhaldsnám við INSEAD í
Frakklandi og lauk MBA prófi það-
an. Hún hefur starfað víða, en þó
alltaf við verkefni sem tengjast
miðlun upplýsinga. Hún var ráð-
gjafi hjá VÍB, fréttamaður á Stöð 2,
starfsmannastjóri á Hótel Sögu og
áður en hún kom til FBA vann hún
hjá fyrirtæki sem heitir Hugtök og
fæst við markaðsráðgjöf.
„Mér finnst að allt sem ég hef
starfað og lært nýtist mér í þessu
starfi, hvert með sínum hætti. Ég
hef fengist við fjármál, markaðs-
mál, fjölmiðla og starfsmannamál
og þetta kemur mér allt tíl góða.“
Hulda Dóra er gift Haraldi Ásgeir
Hjaltasyni, sviðsstjóra rekstrarráð-
gjafarsviðs VSO ráðgjafar, og þau
eiga tvo syni, 3 og 5 ára.
„Síðan synir mínir fæddust hef
ég ekki rækt nein önnur áhugamál
og mun ekki gera íyrr en þeir verða
stærri. Þegar ég er ekki í vinnunni
vil ég vera hjá þeim.“ B3
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON