Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1998, Qupperneq 62

Frjáls verslun - 01.11.1998, Qupperneq 62
Slakað á í laugunum - og hugsanlega rœtt um lífeyrismál. Frá áramótum gefst fólki kostur á að leggja 12,2% fyrir í lífeyrissjóði, þar afgreiða atvinnurekendur 6,2%. sameignarsjóð á 40 ára starfsævi. Því styttri sem starfsævin er þeim mun hærra iðgjald þarf einstaklingurinn að greiða til að ná þessum 56% eftirlaunum. Vilji menn ná hærra hlutfalli hækkar iðgjaldið, jafnvel þótt starfsævin sé full 40 ár. Þannig tryggir 13% iðgjald um 75% af meðaltekjum og 17% iðgjald tryggir fullar meðaltekjur eftir að 40 ára starfsævi lýkur. SKELLUR í ÁGÚST? Frá og með 1. júlí síðastliðnum eru allir skyldaðir til þess að greiða í lífeyrissjóð, hvort sem þeir eru launþegar eða ein- yrkjar, og skattayfirvöld hafa eftirlit með því að það sé gert. Það er því hætt við að sumir, sem ekki hafa greitt í lífeyrissjóð, vakni upp við vondan draum í ágúst á næsta ári þar sem skattayfirvöld hafa sam- ið við lífeyrissjóð söfnunarréttinda um að innheimta iðgjöld af öllum þeim sem ekki hafa greitt í sjóði. Skellurinn getur orðið stór enda 10% af brúttólaunum vænn biti að greiða í lífeyrissjóð í einu lagi. Fyrir nú utan dráttarvextina! Eins og kunnugt er hafa margir, sérstaklega einyrkjar og atvinnurekendur, sleppt því að greiða í lífeyrissjóði. Það er mjög misjafnt hvernig langtímasparnaði þeirra er háttað og ástandið eflaust slæmt hjá mörgum. Með nýju lögunum komast þessir aðilar ekki hjá því að greiða í lífeyrissjóð. En sjóðinn fá þeir að velja sjálfir! HUGSAÐ FRAM í TÍMANN Nýju lögin eru bylting og koma í kjölfar annarrar byltingar: Tækifæri fólks til að koma sér upp langtímasparnaði hafa gjörbreyst - sem og viðhorf til sparnaðar. Það er stutt síðan að fólk leit svo á að sparnaður væri það sama og að henda peningunum út um gluggann. Menn fengu lán hjá lífeyrissjóði til að geta tekið lífeyrinn fyrr út, annars hefði hann bara brunnið upp í verðbólgunni. Nú hugsa stjórnvöld og almenningur meira fram í tímann. Nýju lögin einkennast af því að horft er til framtíðar. Það er verið að gera ráðstafanir til að bæta hag fólks í framtíðinni og koma í veg fýrir vandamál sem annars hefðu orðið. Lífeyrissjóðirnir eru sterkir - en eiga eftir að verða ennþá sterkari. Samt hefur ákveðinn hópur fólks sleppt því að greiða í lífeyrissjóði. Hið nýja kerfi mun breyta hinu hefðbundna lífeyrissjóðakerfi. Það mun leggja grunninn að auknu frjálsræði á þessu sviði. Löggjöfin er flókin og henni verður örugglega breytt í nánustu framtíð því að ekki er auðvelt að framkvæma ýmsa þætti hennar vegna þess. En það liggur LÍFEYRISMÁL fyrir að frelsi fólks mun aukast, ekki bara til að velja sér lífeyrissjóð heldur líka til að spara eftir mismunandi leiðum. Fleiri reyna að ýta við fólki og bjóða upp á sparnaðarleiðir, ekki bara lífeyrissjóðirnir heldur líka bankarnir, verðbréfafyrirtækin °g tryggingafélögin. Það mun gera það að verkum að fólk verður mun meðvitaðra en það hefur verið um langtimasparnað og hvað hann þýðir. MEIRIEIGNIR EN BANKAKERFIÐ Lífeyrissjóðirnir eiga eignir sem eru talsvert meiri en allar eignir bankakerf- isins. Fyrirsjáanlegt er að styrkur lífeyris- sjóðanna muni aukast enn frekar þar sem áfram verður greitt í sjóðina. Langstærsti hluli íslenska lífeyrissjóðakerfisins er sameignarlífeyrissjóðir þar sem fólk er skyldað til að vera í sjóðunum vegna bú- setu eða stéttar. Kerfið hefur verið gagn- rýnt fyrir margra hluta sakir. Það er ekki skilgreint hveijir eiga sjóðina og þeir sem borga í þá eiga í mörgum tilvikum eríitt með að hafa áhrif í sínum lífeyrissjóði og hafa til þessa í mörgum tilfellum ekki getað mætt á aðalfundi sinna sjóða, hvað þá kosið í stjórn eða flutt inneign sína. Vegna þessa má færa full rök fyrir því að lífeyrissjóðirnir séu hálfopinberar stofn- anir þar sem þeim er stjórnað í sameiningu af verkalýðshreyfingunni og atvinnurek- endum. Þessir sömu sjóðir hafa mikil áhrif í krafti fjárhagslegs styrks og eru meðal annars stórir hluthafar í þó nokkrum fyrirtækjum. Spyrja má sig hvort það skjóti ekki skökku við þegar hið opinbera er að einkavæða fyrirtæki að helstu kaupend- urnir skuli vera hálfopinberir aðilar, það er að segja lífeyrissjóðirnir. Varla er þó óeðlilegt að lífeyrissjóðir fjárfesti í fyrir- tækjum; þeir verða jú að fjárfesta og styrkja atvinnulífið um leið. Það er hins vegar spurning hvort þeir eigi að setjast í stjórnir fyrirtækja og hvaða fulltrúar þeirra eigi þar sæti. ALLIR VERÐA AÐ GREIÐA í LÍFEYRISSJÓÐI Meö nýju lögunum, sem tóku gildi 1. júlí sl., eru allir skyldaöir til þess aö greiða í lífeyrissjóði, hvort sem þeir eru launþegar eöa einyrkjar. Skattayfirvöld hafa eftirlit meö því aö það sé gert. LÉTTIR Á HINU OPINBERA VEGNA STÓRU ÁRGANGANNA Ef ekki væri farið út í þessar aðgeröir yrði kostnaður hins opinbera vegna almannatrygginga gifurlegur á næstu áratugum þegar stórir árgangar þjóðarinnar komast á eftirlaun. 62
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.