Fregnir - 01.03.2005, Síða 21

Fregnir - 01.03.2005, Síða 21
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða hlið og upplýsingaveita fyrir landsaðgang- inn. Stöðug aukning er á notkun milli ára. Yfir 600.000 greinar í fullri lengd voru sóttar á árinu 2004 miðað við tæpar 400.000 greinar árið áður, eða yfir 50% aukning. Ef einungis er tekið tillit til þeirra greinasafna sem voru mæld árið 2003, er aukningin 33,8%. Gestum á http://hvar.is fjölgaði um rúm 20% á árinu 2004. Sveinn Olafsson umsjón landsaðgangs (sveinn@bok.hi. is) Viltu vita meira? -... leitir í Gegni Gegnir er öflugt leitartæki þar sem leita má í safngögnum um 130 íslenskra bóka- safna, 850.000 titlum og 2.900.000 eintök- um. Leitað er í Gegni á vef, gegnir.is, eða í starfsmannaþætti kerfísins sem einungis er opinn aðildarsöfnum Gegnis. Gegni má nálgast á eftirfarandi hátt: • gegnir.is. með íslensku og ensku við- móti. • 1 öflugum leitarþætti starfsmannaað- gangs (OPAC, Online Public Access Catalog) þar sem hægt er að fram- kvæma samsettar leitir, afmarka nið- urstöður og búa til lista sem má vista, senda í töluvpósti eða prenta. • Einfalda leit er að fmna í öðrum þátt- um kerfisins svo sem í útlánum og að- föngum. Tvenns konar leitaraðaferðir í Gegni: • Flettileit sem líkja má við það að fletta í spjaldskrá. Leitað er í stafrófs- röðuðum skrám einstakra sviða. Á gegnir.is er flettileit auðkennd með „ ... byrjar á“ endingu, eins og „Nafn byrjar á ..." eða „Titill byrjar á ...“ • Orðaleit sem leitar innan úr færslum og leyfír að leitað sé í fleirum en einu leitarsviði samtímis. I Leitarþætti starfsmannaaðgangsins og á gegnir.is er að finna Skipanaleit (CCL, Common Command Language) sem veitir meiri möguleika til samsetningar leitar, jafnframt því að auka skilning á virkni leitarsviða. Skipanaleitin er aðferðafræði sem starfsmenn bókasafna ættu eindregið að tileinka sér. I vetur hefúr Landskerfí bókasafna reglulega boðið upp á námskeiðið Upplýs- ingaleit í Gegni og mun svo einnig verða næsta vetur. Námskeiðið er ætlað starfs- mönnum safna sem þegar nota kerfíð. Námsefnið má finna á síðunni www.lands kerfi.is/namsgogn.php. Einnig er boðið upp á kynningu á Gegni með áherslu á gegnir.is fyrir starfsfólk safna sem ekki hafa tekið kerflð í notkun. Sigrún Hauksdóttir og Harpa Rós Jónsdóttir Landskerfi bókasafna Fyrsti Gegnir (1990-2003) endanlega óvirkur Þann 10. maí 2003 var hætt að setja gögn í gamla Gegni (Libertas-kerfi). Hann hafði þá verið í rekstri frá 1990. Nýr Gegnir var svo tekinn í notkun rúmri viku síðar. Gamla kerfínu var haldið í gangi svo lengi sem ekki þurfti að gera við neinn hluta þess, vélbúnað eða hugbúnað. Það má taka það fram að hér var um sérhæfðan vél- og hugbúnað að ræða og allir íhlutir og vinna kostuðu margfalt meira en í venjulegar PC-vélar. Sá gamli hafði lifað í 20 mánuði fram yfir skilgreindan rekstrar- tíma þegar hann varð óvirkur laugardaginn 17. desember 2004. Sveinn Olafsson Afríkudagar fyrir bókaverði Nordiska Afrikainstitutet (NAI) hélt í Uppsölum, dagana 11. og 12. október 2004, tveggja daga námskeið fyrir norræna bókaverði sem þurfa að leiðbeina nemend- um og fræðimönnum um aðgang að mál- efnum sem varða Afiríku í dag. Á dagskrá voru kynningar á þeim rann- sóknarverkefnum, sem verið er að vinna að, og einnig á þeim upplýsingaveitum 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 21

x

Fregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.