Fregnir - 01.03.2005, Side 35
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða
eða útvarpsefni eða annað efni af sama
toga sé tekið upp í fréttamiðlum, miðlað til
almennings eða gert aðgengilegt almenn-
ingi í tilvikum þar sem slík notkun er ekki
bönnuð berum orðum og að því tilskildu
að heimildar sé getið, þar á meðal nafns
höfundar, eða, ef um er að ræða notkun
verka eða annars efnis í tengslum við frétt-
ir af dægurmálum, að því marki sem eðli-
legt er í upplýsingaskyni og að því til-
skildu að heimildar sé getið, þar á meðal
nafns höfundar, nema það reynist ógerlegt;
d) ef um er að ræða tilvitnanir vegna gagn-
rýni eða ritdóma, að því tilskildu að þær
tengist verki eða öðru efni sem hefur verið
gert aðgengilegt almenningi á löglegan
hátt og að því tilskildu að heimildar sé get-
ið, þar á meðal nafns höfundar, nema það
reynist ógerlegt, og notkun þeirra sé í sam-
ræmi við góðar starfsvenjur og að því
marki sem nauðsynlegt er í þessum sér-
staka tilgangi;
e) ef um er að ræða notkun vegna al-
mannaöryggis eða til að tryggja rétta fram-
kvæmd eða skýrslugjöf varðandi máls-
meðferð í stjómsýslu, fyrir þingi eða fyrir
dómstólum;
f) ef um er að ræða notkun á pólitískum
ræðum og útdráttum úr opinberum fyrir-
lestrum eða svipuðum verkum eða efni, að
því marki sem eðlilegt er í upplýsinga-
skyni og að því tilskildu að heimildar sé
getið, þar á meðal nafns höfundar, nema
það reynist ógerlegt;
g) ef um er að ræða notkun við trúarhátíðir
eða opinber hátíðahöld sem opinbert yfír-
vald skipuleggur;
h) ef um er að ræða notkun verka, svo sem
byggingarlistaverka eða höggmyndaverka,
sem gerð eru með það fyrir augum að vera
til frambúðar á almannafæri;
i) ef um er að ræða að verk eða annað efni
sé tilfallandi tekið með í enn annað efni;
j) ef um er að ræða notkun í því skyni að
auglýsa opinbera sýningu eða sölu á lista-
verkum, að því marki sem nauðsynlegt er
til að kynna atburðinn og að undanskilinni
hvers konar annarri notkun í viðskipta-
skyni;
k) ef um er að ræða notkun vegna skop-
myndar, skopstælingar eða annarrar stæl-
ingar;
l) ef um er að ræða notkun í tengslum við
sýningu eða viðgerð á búnaði;
m) ef um er að ræða notkun listaverks í
formi byggingar eða teikningar eða upp-
dráttar af byggingu í því skyni að endur-
gera bygginguna;
n) ef um er að ræða að verkum eða öðru
efni í söfnum stofnananna, sem um getur í
c-lið 2. mgr., sé miðlað til almennings eða
þau gerð aðgengileg almenningi, til fræði-
starfa eða einkarannsókna, með til þess
gerðum endabúnaði á athafnasvæði stofn-
ananna enda falli verkin og efnið ekki und-
ir kaup- eða nytjaleyfísskilmála;
o) ef um er að ræða notkun í ákveðnum
öðrum tilvikum sem hafa óverulega þýð-
ingu og þar sem landslög kveða þegar á
um undanþágur og takmarkanir, að því til-
skildu að aðeins sé um að ræða hliðræna
notkun og þetta hafi ekki áhrif á frjálsa
dreifíngu vara og þjónustu í bandalaginu,
sbr. þó aðrar undanþágur og takmarkanir
samkvæmt þessari grein.
4. í tilvikum þar sem aðildarríkjunum er
heimilt að kveða á um undanþágu eða tak-
mörkun vegna réttar til eftirgerðar, skv. 2.
og 3. mgr., er þeim á sama hátt heimilt að
kveða á um undanþágu eða takmörkun
vegna dreifingarréttar, eins og kveðið er á
um í 4. gr., að því marki sem réttlætanlegt
er miðað við tilganginn með hinni leyfi-
legu eftirgerð.
5. Undanþágum og takmörkunum, sem
kveðið er á um í 1., 2., 3. og 4. mgr., skal
aðeins beitt í tilteknum sértilvikum sem
stríða ekki gegn eðlilegri hagnýtingu verks
eða annars efnis og skerða ekki með
ósanngjörnum hætti lögmæta hagsmuni
rétthafa.
Tilskipuninni fylgir 61 skýringargrein
og um þessi undantekningarákvæði
segir þar:
32) I þessari tilskipun er tæmandi skrá yfír
undanþágur og takmarkanir er varða rétt-
inn til eftirgerðar og réttinn til miðlunar til
almennings. Sumar af þessum undanþág-
um og takmörkunum gilda eingöngu um
réttinn til eftirgerðar eftir því sem við á. í
skránni er tekið tilhlýðilegt tillit til mis-
munandi lagahefða í aðildarríkjunum og
um leið stefnt að því að tryggja starfhæfan
innri markað. Aðildarríkjunum ber að beita
þessum undanþágum og takmörkunum á
samræmdan hátt og það verður metið þeg-
30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 35