Fregnir - 01.03.2005, Síða 36

Fregnir - 01.03.2005, Síða 36
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða ar kemur að endurskoðun framkvæmdar- löggjafarinnar. 33) Einkaréttur til eftirgerðar skal háður undanþágu sem heimilar tilteknar tíma- bundnar aðgerðir til eftirgerðar sem eru til skamms tíma eða tilfallandi og eru órjúf- anlegur og mikilvægur liður í tækniferli og eiga sér einungis stað í þeim tilgangi að gera mögulega annaðhvort skilvirka út- sendingu af hálfú milliliðs í neti milli þriðju aðila eða löglega notkun verks eða annars efnis. Sjálfar aðgerðimar skulu ekki hafa sjálfstætt efnahagslegt gildi. Svo fremi að aðgerðir til eftirgerðar uppfylli þessi skilyrði skal undanþágan taka til að- gerða sem gera það kleift að rápa á vefnum og skyndivista, þar á meðal aðgerðir til að tryggja að útsendingarkerfi starfi á skil- virkan hátt, að því tilskildu að milliliður- inn breyti ekki upplýsingunum og grípi ekki inn í löglega notkun tækni, sem er viðurkennd og notuð í atvinnugreininni, í þeim tilgangi að afla sér gagna um notkun upplýsinganna. Notkun telst lögleg ef hún er heimiluð af rétthafa eða ekki takmörkuð með lögum. 34) Aðildarríkjunum skal gefínn kostur á að kveða á um tilteknar undanþágur eða takmarkanir, t.d. vegna fræðslu- eða vís- indastarfsemi, í þágu opinberra stofnana, svo sem bóka- og skjalasafna, vegna fréttamennsku, vegna tilvitnana, til notk- unar fyrir fatlað fólk, vegna almanna- öryggis og vegna stjómsýslumeðferðar eða málareksturs fyrir dómi. 35) Þegar um er að ræða ákveðnar undan- þágur eða takmarkanir ber rétthöfum sann- gjamar bætur til að þeim verði bætt afnot af vemduðum verkum sínum eða öðm efni með fullnægjandi hætti. Við ákvörðun á formi þessara sanngjömu bóta og nánara fýrirkomulagi varðandi þær og hugsanlegri ljárhæð þeirra skal tekið mið af sérstökum aðstæðum í hverju tilviki. Við mat á þess- um aðstæðum er við hæfi að hafa sem við- miðun þann skaða sem viðkomandi aðgerð gæti hugsanlega valdið rétthafa. í tilvikum, þar sem rétthafar hafa þegar fengið greiðslu með öðmm hætti, t.d. sem hluta af höfundarþóknun, er ekki víst að þeim beri tiltekin eða sérstök greiðsla. Við ákvörðun á ijárhæð sanngjamra bóta skal tekið fullt tillit til þess í hve miklum mæli beitt hefur verið þeim tæknilegu vemdarráðstöfunum sem um getur í þessari tilskipun. í ákveðn- um tilvikum, þar sem skaði rétthafa er óverulegur, kann að vera að ekki liggi fyrir greiðsluskylda. 36) Aðildarríkin geta einnig kveðið á um sanngjamar bætur til rétthafa þegar þau beita valfrjálsum ákvæðum um undanþág- ur eða takmarkanir sem innihalda ekki kröfur um slíkar bætur. 37) Innlendar reglur um ljósritun, sem kunna að vera fýrir hendi, valda ekki mikl- um hindrunum fyrir innri markaðinn. Aðildarríkjunum skal vera heimilt að kveða á um undanþágu eða takmörkun að því er varðar ljósritun. 38) Aðildarríkjunum skal vera heimilt að kveða á um undanþágu eða takmörkun á réttinum til eftirgerðar fýrir tilteknar teg- undir eftirgerðar á hljóðefni, myndefni og hljóð- og myndefni til einkanota gegn sanngjömum bótum. Þetta getur falið í sér að tekin verði upp þóknunarkerfi eða að núverandi kerfum verði haldið til að bæta skaða rétthafa. Þótt munurinn á þessum þóknunarkerfum hafí áhrif á starfsemi innri markaðarins ætti hann ekki að hafa marktæk áhrif á þróun upplýsingasam- félagsins að því er viðvíkur hliðrænni eftir- gerð til einkanota. Líklegt er að stafræn af- ritun til einkanota verði almennari og hafi meiri áhrif í efnahagslegu tilliti. Því ber að taka tilhlýðilegt tillit til þess munar sem er á stafrænni og hliðrænni afritun til einka- nota og í tilteknum tilvikum skal gerður greinarmunur á þeim. 39) Þegar aðildarríkin beita undanþágu eða takmörkun viðvíkjandi afritun til einkanota ber þeim að taka tilhlýðilegt tillit til tækni- legrar og efnahagslegrar þróunar, einkum að því er varðar stafræna afritun til einka- nota og þóknunarkerfi, ef völ er á skilvirk- um tæknilegum vemdarráðstöfunum. Slík- ar undanþágur eða takmarkanir skulu hvorki hindra að tæknilegum ráðstöfunum sé beitt né að komið sé í veg fyrir að farið sé fram hjá þeim. 40) Aðildarríkjunum er heimilt að kveða á um undanþágu eða takmörkun í þágu til- tekinna stofnana sem ekki em reknar í hagnaðarskyni, svo sem almenningsbóka- safna og sambæri lengra stofnana sem og skjalasafna. Það skal þó takmarkað við til- tekin sértilvik sem falla undir réttinn til eftirgerðar. Slík undanþága eða takmörkun 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 36

x

Fregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.