Fregnir - 01.03.2005, Side 39
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœda
4. Fjármál og bókhald
4.1. Útgáfukostnaður
Stefnt er að því að auglýsingatekjur standi
undir kostnaði við útgáfu blaðsins. Gangi
það ekki eftir skal haft samráð við stjóm
Upplýsingar áður en til fjárhagslegra
skuldbindinga kemur. Stjórn Upplýsingar
greiðir árlega til útgáfunnar upphæð sem
svarar tvöföldu burðargjaldi af greiddum
árgjöldum 15. apríl ár hvert. Upphæðin
greiðist 1. maí ár hvert. Ofangreint ákvæði
skal endurskoðast reglulega.
4.2. Útsendingarkostnaður
Greiða skal burðargjald samkvæmt hag-
stæðustu kjörum hverju sinni.
4.3. Auglýsingar
Ritnefnd ákveður verð auglýsinga. Stefna
ber að því að þær verði um 20% af stærð
blaðsins.
4.4. Hagnaður af útgáfu
Standi auglýsingatekjur undir útgáfu-
kostnaði og öðmm gjöldum sem tengjast
útgáfu blaðsins, samanber 5. og 6. lið skal
styrkur Upplýsingar samkvæmt 1. lið kafl-
ans falla niður og hagnaður af útgáfu
Bókasafnsins í samráði við útgefanda lagð-
ur í sjóð til eflingar tímaritinu og annarri
útgáfústarfsemi félagsins.
4.5. Þóknanir til ritnefndar
Ritstjóri fær andvirði einnar baksíðuaug-
lýsingar fyrir vinnu og kostnað við hvert
tölublað, gjaldkeri og umsjónannaður vef-
seturs fá jafnvirði hálfrar baksíðuauglýs-
ingar og aðrir í ritnefnd fá sem nemur
hálfri þeirri upphæð.
4.6. Þóknanir fýrir greinar
Greiða skal ákveðnar lágmarks þóknanir
fyrir efni blaðsins. Ritnefnd ákveður upp-
hæð þóknana fyrir greinar og útdrætti á
ensku.
4.7. Skoðunarmenn reikninga
Skoðunarmenn reikninga Bókasafnsins eru
tveir. Gjaldkeri Upplýsingar er sjálfkjörinn
skoðunannaður reikninga blaðsins. Hinn
skal kosinn á aðalfundi félagsins til 3ja ára
í senn með möguleika á framlengingu.
5. Gildistaka og endurskoðunarákvæði
Til þess að reglur þessar öðlist gildi þarf
að samþykkja þær í stjóm Upplýsingar og
í ritnefnd Bókasafnsins. Reglumar skulu
endurskoðaðar ef útgefandi eða ritnefnd
óska þess.
Samþykkt á fundi stjórnar Upplýsingar
og ritnefndar Bókasafnsins
að Lágmúla 7 þann 3. mars 2005
r
„I ljósaskiptunum“ -Nor-
ræna bókasafnavikan 2005
Tími: 14.-20. nóvember 2005 - Þema: Á
ferð í Norðri. - Texti ársins: „Borgin á
hafsbotni“ úr bókinni Nilli Hólmgeirs-
son og ævintýrafór hans um Svíþjóð.
Mánudaginn 14. nóvember klukkan 18
munum við enn koma saman til að halda
upp á Norrænu bókasafnavikuna við upp-
lestur og kertaljós.
Morgunstund er haldin hátíðleg sama
morgun klukkan 10 þegar bömin safnast
saman í skólum, leikskólum og barnabóka-
söfnum og hlýða á upplestur í daufu skini
kertaljóssins.
í ár verður norræna bókasafnavikan
haldin í níunda sinn. Vikan hefur öðlast
fastan sess á mörgum bókasöfnum og skól-
um um gjörvöll Norðurlönd.
Texti ársins er úr sögunni Nilli Hólm-
geirsson og œvintýraför hans um Svíþjóð
eftir Selmu Lagerlöf. Sagan er ein af henn-
ar frægustu verkum, skrifuð sérstaklega til
að vekja áhuga skólabarna á landafræði og
náttúm Svíþjóðar en hefur orðið ein af sí-
gildum bókmenntaverkum sænskrar tungu.
Því höfum við valið að nota sama textann
bæði fýrir börn og fullorðna.
Hlutinn sem varð fyrir valinu er „Borg-
in á hafsbotni“. Textinn fjallar um Visby á
Gotlandi og er ferð í tíma og rúmi til bæjar
sem er á heimsminjaskrá UNESCO og hef-
ur gegnt mikilvægu hlutverki í sögu Norð-
urlandanna.
Sagan af Nilla Hólmgeirssyni fjallar
eins og áður sagði um Svíþjóð en hún hef-
ur einnig skírskotun í sögu Norðurland-
anna. Hún varð til á þeim tíma þegar
Noregur og Svíþjóð vom í þann veginn að
skilja að skiptum. Selma Lagerlöf var
sannfærð um að það væri rétt ákvörðun en
að löndin yrðu að skilja í vináttu og með
friði. Því skrifaði hún bókina til að gefa
sænskum bömum nýja mynd af landinu
sínu, af landi sem lifði í nútímanum en
30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 39