Helgarpósturinn - 17.11.1994, Page 32
„í ráðuneytinu Steingrímur stal
stærsta fiðrildi 1 heimi“
Félagarí íþnóttafélagi alþingismanna komu tilstutts fundarvið Össur Skarphéðínsson um-
hverfísráðhena sama dag og Steingrímur Hermannsson varkvaddurafþingfíokkiFram-
soknarmanna. Eftirfundinn saknaði Óssurbrasiltsks fíðrHdis en það kom í leitimar skömmu
siðarþegar SteingrímurJ. Sigfússon færði nafha sínum það að gjöfí kveðjuhófínu.
Sama kvöld og þingflokkur Fram-
sóknarmanna kvaddi formann sinn,
Steingrím Hermannsson, í hófí
þegar hann hvarf úr pólitík og tók
við stöðu Seðlabankastjóra hvarf
einn af kjörgripum umhverfisráð-
herrans, Össurar Skarphéðins-
sonar úr umhverfisráðuneytinu.
Um er að ræða lófastórt fiðrildi ,
sem er af tegund sem stærst verður
og flýgur hæst. Það dúkkaði síðan
upp í kveðjuhófi Framsóknarmanna
og var fært formanninum að gjöf.
íþróttafélag alþingismanna kom
til stutts fundar við Össur í um-
hverfisráðuneytið, sem það hafði
kjörið verndara sinn, þetta kvöld.
Þarna voru meðal annars Ingi Björn
Albcrtsson og Steingrímur J. Sig-
fússon, sem báðir eiga frækinn
íþróttaferil að baki. Að fundinunr
loknum áttaði Össur sig á að fiðrild-
ið var horfið, án þess að gruna nokk-
urn fundarmanna um græsku. Þegar
áliðið var kvölds ákvað íþróttafélag-
ið að fara til fundar við Steingrím og
þá Framsóknarmenn til að hylla
hann. Þegar þangað kom flutti Öss-
ur tölu honum til heiðurs. Stein-
grímur J. hélt einnig ræðu, hjart-
næma mjög að sögn, og kvað nafna
sinn jafnan hafa stutt drengilega al-
mennningsíþróttirnar í landinu. Þá
sagði hann að í þakklætisskyni fyrir
þann stuðning vildu yngstu menn-
irnir í þinginu færa honum örlítinn
þakklætisvott og dró úr pússi sínu
flðrildið og gaf Steingrími það.
Hann þakkaði fyrir sig með virktum
og sagði að hann og Edda, kona
hans, myndu leggja mikla helgi á
það vegna þess hlýhugar sem að baki
lægi.
Össur varð vægast sagt undrandi
að fiðrildið kæmi í leitirnar með
þessum hætti. Jón Kristjánsson,
alþingismaður, sá undrunarsvipinn
á honurn og upp úr honum rann
þessi vísa:
Mikið er þctta mannaval
sem mœtt er í þessu geimi
í ráðuneytinu Steingrímur stal
stœrsta fiðrildi í heimi.
Steingrímur vildi skila fiðrildinu
við svo búið en umhverfisráðherr-
anum þótti uppákoman svo
skemmtileg að hann þverneitaði að
taka við því.
„Þetta var bara svona hrekkur
gerður til gamans,“ sagði Steingrím-
ur J. þegar hann var spurður hvað
honum hafi gengið til. „Það er gam-
an að stríða össuri og gera hann
langleitan og svo kom sú hugmynd
upp að gleðja nafna eitthvað og gera
honum óvæntan honnör. Þetta var
mjög vel heppnuð innrás í boðið hjá
honum og hann tók oldtur afar vel.
Þannig að hvort tveggja gekk vel eft-
ir. Össur lofaði líka að útvega annað
fiðrildi þannig að þetta var allt í
lagi.“
„Ég vissi hvaðan fiðriidið var
komið og vildi skila því aftur til fyrri
eiganda en hann neitaði algjörlega
að taka við því aftur," sagði Stein-
grímur Hermannsson þegar sagan
var borin undir hann í gær. „Hann
fullvissaði mig um að það væri allt í
góðu milli þeirra Steingríms J. en ég
vildi vera viss um það.“
Er þetta merkilegt fiðrildi?
„Ja, þetta er eitthvað brasilískt
fiðrildi. Þetta er fallegt fiðrildi og
reyndar er það komið upp í sumar-
bústað í Borgarfirði því að mér
finnst það eiga heima í skóginum.“
-SG
■ Þráinn hittir þjóðina í hjartastað
■ Guðmundur Árni ogkaldhœðnin ■ Eyþór
Heiðberg og biðlaunin ■ Örnólfur gefur út
bankabók
Ut er komin umfangsmikil
áhorfskönnun á vegum Félagsvís-
indastofnunar og er hún mann-
skapnum á Ríkissjónvarpinu til
mikillar gleði. Fréttir eru með 47
prósent meðaláhorf á viku meðan
fréttir á Stöð 2 eru með 36 prósent.
19:19 eru í bcinni samkeppni við
Dagsljós sem er með 20 prósent.
Ótrúlegustu tölurnar í þessu eru
þær sem snúa að Sigla himinfley en
þættir Þráins
Bertelssonar
virðast sannar-
lega hafa hitt
beint í kviku
þjóðarsálarinnar.
Þættimir mæld-
ust með 58 pró-
sent sem er Iygi-
lega hátt hlutfall. Á tali hjá Hemma
Gunn er eitthvað á niðurleið frá því
sem var en hann hefur mælst allt
upp í 60 prósent. Nú hefur hann 48
prósent sem telst gott í sjálfu sér.
Aðrar athyglisverðar tölur: Bin-
gó/Lottó: 36 prósent. Útsending frá
Alþingi mánudag klukkan 20:30:37
prósent. Sjónvarpsmarkaður: 5 pró-
sent...
IVtargs konar lærdóm má hafa af
afsögn Guðmundar Árna StefAns-
sonar fyrrverandi félagsmálaráð-
herra. í kjölfar hennar hafa ýmsir
pólitískir spekúlantar dregið þá
ályktun að hún verði til þess að
veita stjórmálamönnum aukið sið-
ferðislegt aðhald í framtíð-
inni og það er ekki ósenni-
leg tilgáta. Afsögn vara-
formanns Alþýðuflokks-
ins er hins vegar enn ein
staðfestingin á kenningu
bandaríska hagfræðingsins
John Kenneth Galbraith
eins og hún er sett fram í
The Cynic’s Lexi-
con eða upp-
flettiriti hins
kaldhæðna.
Þar segir hag-
fræðingurinn:
„Hver sem
segir að hann
muni ekki
segja af sér,
fjórum sinn-
um, mun
segja af sér...
I gær var ríkissjóður dæmdur til að
greiða Eyþóri Heiðberg, fyrir hönd
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis-
ins, um 650.000 krónur í biðlaun.
Eyþór starfaði á skrifstofu ÁTVR en
var látinn fara. Lögmaður Starfs-
mannafélags ríkisstofnana byggði
stefnu sína á að samkvæmt lögum
eiga ríkisstarfsmenn rétt á þjón-
ustulaunum í 6 mánuði ef störf
þeirra eru lögð niður og starfsaldur
þeirra er skemmri en 15 ár. Ágrein-
ingurinn í málinu stafaði um hvort
Eyþóri var sagt upp vegna vanhæfni
eða starf hans lagt niður. Sigurður
Hallur StefAnsson dómari komst
að þeirri niðurstöðu að þar sem
engin hefði verið ráðinn í stað Ey-
þórs á skrifstofu ÁTVR bæri ríkis-
sjóði að greiða honum biðlaunin...
Öf
" rnólfur Arnason eru um þess-
ar mundir að ganga frá bók til
prentunar
ogerafþví
tilefni farið
að fara um
ýmsa í fjár-
málakerf-
inu öllu og
til dæmis
má búast
við því að
hún verði
JÓHANNESI
Nordal
enginn
skemmti-
lestur. Bókin heitir „Bankabókin“
ig er í sama stíl og „Á slóð Kol-
krabbans", Nóri er sögumaður og
frændur hans ýmsir. Það sem er
til umfjöllunar eru bankar og
á jslandi og má
finna sundurliðun og útreikninga
stigvaxandi launum yfirmanna í
bankakerfinu sem ýmsum mun
þykja forvitnilegt að
skoða. Þá má og
sér að Nóri
ferðum og sitt-
hverju öðru. Örn-
ólfur gefur bókina
út sjálfur en það
var Skjaldborg
sem gaf „Kol-
krabbann“ út...
Veðurhorfur næsta sólarhring:
í dag verður hæg breytileg átt um
allt land og víðast léttskýjað með
vægu frosti. Á morgun er reiknað
með suðaustlægri átt um allt land.
Norðan lands og austan þykknar
upp en sunnan og vestan lands
verður slydda eða rigning. Hiti 0 til
5 stig sunnanlands, en vægt frost
norðan til.
Horfur á laugardag:
Búast má við sunnanátt og frost-
lausu um nær allt land. Snjókoma
og síðan slydda norðan lands, en
skúrir syðra.
Horfur á sunnudag:
Útlit er fyrir norðlæga og breytilega
átt á landinu með skúrum og éljum
á víð og dreif. Veður fer aftur kóln-
andi.
Veðrið um helaina
Hvort hefur réttfyrir sér,
Linda Pé eða löggari?
Greiddu
atkvæði
39,90 krónur mínútan
Það er einfalt að taka þátt. Þú hringir í síma 99 15 16, hlustar á
spurninguna og greiðir síðan atkvæði með því að ýta á 1 eða 2 á
símtækinu þínu. A sunnudaginn verður síðan talið upp úr Kjörkass-
anum og niðurstöðurnar birtar í mánudagsblaði MORGUNPÓSTSINS.
Leikhús
Það er ekki úr vegi að kíkja á
hana Bríeti Héðinsdóttur í hlut-
verki Karenar Blixen. Sannfær-
andi einleikur í verkinu „Dóttir
Lúsifers" á litla sviði Þjóðleik-
hússins föstudags- og sunnu-
dagskvöld.
Myndlist
Það er að sjálfsögðu algjör
skyldumæting á Erró á Kjan/als-
stöðum. Gjöfin fræga maður lif-
andi. Gagnrýnanda morgun-
póstsins varð svo mikið um að
hann gaf bæði kúpu og fimm
stjörnur.
Popp
Allt löðrandi í
útgáfutónleik-
um en við
mælum sér-
staklega með
Ragga Bjarna
á Mímisbar.
Klikkar ekki
gamli seigur.
Klassík
Það er lítið að gerast í kiassíkinni
en þeir sem eru alveg í æðritón-
listarspreng geta séð hinn jap-
anska Takuo Yuasa stjórna Sin-
fóníuhljómsveit Isiands íkvöld.
Bíó
í Háskólabíói er verið að sýna
klassamynd sem heitir Trois co-
uleurs: Blanc. Hún tekur á vand-
aðan hátt á þeim vanda þvihkur
vandi það er að vera maður.
Sjónvarp
Þeir sem ætla að vera heima og
eiga myndlykil og hafa ekki séð
Bitter Moon eftir Polanski ættu
að koma sér notalega fyrir á
fimmtudagskvöldinu klukkan
23.55.
f s
Hlustum
allan
sólarhringinn
2 1900