Helgarpósturinn - 28.11.1994, Page 2

Helgarpósturinn - 28.11.1994, Page 2
2 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994 Guðmundur Árni með bók um átökin sem leiddu til afsagnar hans „Bókin mun valda titríngi“ Fjallað um „bakhlið11 stjómmálanna. „Ég held sannarlega að í bókinni sé mjög margt sem getur komið fólki á óvart og vakið áhuga þess,“ segir Guðmundur Árni Stefáns- son fyrrum ráðherra. Hann hefur síðustu daga og vikur unnið með Kristjáni Þorvaldssyni að ritun bókarinnar Hreinar línur, sem kemur út urn næstu helgi. Mikil leynd hefur hvílt yfir bókinni sem talin er eiga eftir að valda talsverðu fjaðrafoki. „Þetta er hugmynd sem þróaðist bæði hjá mér og útgefanda. Þegar þessi mál fóru af stað í sumar skrif- aði ég hjá mér helstu atriði málsins og reyndi að skrásetja þá sögu, ekki síst með framtíðina í huga. Þegar síðan leið að lyktum þeirra mála með afsögn minni þá kom fram hvatning frá ýmsum vinum mínum og stuðningsmönnum um að ástæða væri til þess að ég settist niður og skrifaði um þetta bók. Að athuguðu máli fannst mér það ekki fráleit hugmynd og um svipað leyti náðum við Kristján saman og úr varð þessi bók.“ Er þetta lífssaga þín eða er megin- áherslan á atburði síðustu vikna og mánaða? „Atburðir síðustu mánaða er auðvitað stór þáttur bókarinnar en hún er alls ekki bundin við þau mál eingöngu. Það er farið vítt yfir sögu, Hafnarfjarðarárin eru tekin mjög ítarlega fyrir og á sama hátt er farið yfir mín æskuár. Án þess að þetta sé nein ævisaga þá er stiklað á stóru á minni lífsævi." Þú hcfurýjað að því að þú búiryf- ir talsverðri þckkingu á gjörðum annarra stjórnmálamanna. Á bókin eftir að koma við kaunin á þeim? „Ég ætla út af fyrir sig ekki að spá neinu urn það en ég reyni að draga upp myndir senr að öllu jöfnu eru ekki í fjölmiðlum. Ég dreg upp bak- hlið þeirra hluta sem menn sjá yfir- leitt aðeins framhliðina á.“ Kristján Þorvaldsson segir að hann hafi verið beðinn um að skrifa bókina skömmu eftir að Guðmundur Árni sagði af sér ráð- herradómi. Bókin sé bæði lífssaga hans og varpi skýru ljósi á þá at- burði sem leiddu til afsagnarinnar. „Guðmundur Árni segir frá sinni hlið þessara mála og skefur ekkert af hlutunum. Við sögu kemur fram Guðmundur Árni Stefánsson og Kristján Þorvaldsson. Þeir eru nú að leggja lokahönd á bókina Hreinar línur sem fjallar meðal annars um þá atburði sem leiddu til afsagnar Guðmundar. „Sjónarmið Guðmundar Árna eiga eflaust eftir að valda titringi bæði meðal samstarfsmanna og andstæðinga hans í stjórnmálum," segir Kristján. ótrúlegur fjöldi manna og sjónar- eftir að valda titringi, bæði meðal hans í stjórnmálum,'" sagði Kristján mið Guðmundar Árna eiga etlaust samstarftmanna^og^andstæðinga^^o^aldssoi^g^^^^^^^^^^^ Fólskuleg árás íjögurra vopnaðra manna á feðga á Hvolsvelli Ólafur og Jón Baldvin segja að þetta sé bara fólk sem boðið Af hverju voru þeir þá ekki hefur skipsbrot í eigin flokkum sjálfir á fundinum? sem fylkir sér um Jóhönnu. Lömdu soninn með homa- boltakyffu í hnakkann „Þeir létu höggin vaða á mér án nokkura skýringa," segir Þorvaldur G. Ágústsson, kennari á fimmtugs- aldri, en hann varð fyrir tilefhis- lausri líkamsárás fjögurra manna fyrir utan einbýlishús sitt að Norð- urgarði to á Hvolsvelli um kl. 23 á laugardagskvöldið. „Ég hef ekki hugsað um annað eftir að þetta gerðist og er búinn að fara mörg ár aftur í tímann en finn enga skýringu á þessu athæfi þeirra," segir hann. Árásin var sérlega tólskuleg og út- hugsuð því tveir mannanna kvöddu dyra hjá Þorvaldi og sögðust hafa ekið á bifreið hans þar sem hún stóð í innkeyrslunni fyrir utan heimili hans. Báðu þeir Þorvald um að koma út og líta á skemmdirnar, sem þeir sögðu verulegar, og tjáðu þeir honum að þeir vildu gerá upp málið án afskipta lögreglu. „Ég sagði þeim að ég kæmi ekki auga á neinar skemmdir og þá drógu þeir upp bareflin," segir Þor- valdur. „Einn þeirra reiddi til höggs en ég bar það af mér og óð strax í hann. Hann hörfaði þá aðeins að hinum og þá stukku þeir allir fram og létu vaða á mér höggin. Ég lenti upp að bílnum og öskraði á hjálp." Sonur Þorvaldar, Hjalti, sem er 23 ára myndlistarnemi í Reykjavík, var staddur fyrir tilviljun á Hvolsvelli og hljóp hann út á sokkaleistunum til hjálpar föður sínum. „Þegar hann kom út sá hann á bareflin þar sem þeir voru að berja á mér hinum megin við bílinn. Hann stökk á einn árásarmannanna og henti honum út úr hópnum og þá riðlaðist þetta aðeins. Hann snéri sér síðan að tveimur árásarmannanna og annar þeirra lamdi hann með hornaboltakylfu í aftanvert höfuðið svo slagæð fór í sundur. Læknarnir telja hann hafa misst lítra af blóði.“ Þorvaldur segist hafa verið orðinn æfur af reiði og hann hafi náð bar- eflinu af einum árásarmannanna. „Ég var orðinn alveg brjálaður og lét prikið vaða á honum. Ég kallaði í konuna og bað hana að hringja á lögregluna. Það blæddi svo ofboðs- lega úr syni mínunr og ég held að það hafi ekki síður orðið til að hræða árásarmennina." Mennirnir forðuðu sér á bíl sínum út í myrkrið en lögreglan kom á vettvang skömmu síðar. Farið var með Hjalta á sjúkrastöðina á Hellu þar sem búið var um höfuð hans en síðan var hann fluttur með sjúkrabifreið til Reykjavíkur. Þorvaldur fór með lög- reglunni og óku þeir um þorpið til að leita að bíl árásarmannanna. Einnig komu þeir við í Njálsbúð þar sem dansleikur stóð yfir en Þorvaldi tókst ekki að greina árásarmennina í hópi gesta. Þorvaldur telur árásarmennina eklu hafa ætlað að ræna sig. „Þetta lítur helst út eins og einhver hefnd,“ segir hann, „en ég get ekki heimfært hana upp á neitt." Þorvaldur telur árásarmennina vera á aldrinum 19 til 25 ára. Sam- kvæmt lýsingu hans var einn þeirra grannur á bilinu 170 til 180 cm á hæð, með ljóst hár, klæddur galla- buxum og gallaskyrtu, annar var mjög feitur með undirhöku, um 190 cm á hæð og snöggklipptur, þriðji frekar grannur og langleitur en hann barði Hjalta með hafnaboltakylf- unni, og fjórða manninum treystir Þorvaldur sér ekki til að lýsa. Bíll árásarmannanna var grábrúnn en ekki er kunnugt um hverrar tegund- ar hann var. Þorvaldur er allur marinn og blár eftir árásina en hann hefúr verið bú- settur á HvolsveUi í 22 ár. „Maður má náttúrlega ekki fara að búa til einhverjar grýlur en manni stendur ekki á sama. Þessu hefði ég síst búist við hér á Hvolsvelli," segir hann. Ef einhver getur veitt upplýsingar urn árásarmennina er hann beðinn um að láta lögregluna á Hvolsvelli vita. -lae Hvers vegna á að vera bæði 1 Framsókn og Þjóðvaka? í fyrsta lagi Þjóðvaki eru ný sam- tök og enn er allt óvíst um hverjir fái bestu sætin á listum þeirra. Það væri því glapræði fyrir Ástu Ragnheiði að fórna þriðja sætinu á lista Framsóknar í Reykjavík ef henni er síðan ekki boðið annað en áttunda eða níunda sætið hjá Þjóðvaka. Maður á ekki að sleppa því sem maður hefur nema manni sé boðið eitthvað skárra. í öðru lagi Ásta Ragnheiður er Framsóknarmenn- eskja og er því opin í Páða enda. Hún er opin fyriröllu. Hún er opin fyrir Jóhönnu Sig. og hún er opin fyrir gömlu Framsóknarmönnunum. Það er ekkert sem segir að fólk sem er sammála mörgum þurfi endilega að gera upp á milli þeirra. Ásta Ragn- heiður hefur fullan rétt á að ganga i þá flokka sem hún vill og gæti þess vegna tekið sæti á listum þeirra allra. í þriðja lagi Það hefur margsinnis sýnt sig að umbúðir skipta máli. Þeir sem vildu ekki Braga kaffi geta allt eins keypt Rúbín kaffi, þótt það sé sama kaffið. Þeir sem hingað til hafa ekki viljað Fram- sóknarkonuna Ástu Ragnheiði gætu viljað Þjóðvakakonuna Ástu Ragn- heiði. En sú tilraun yrði ekki marktæk ef ekki fengist samanburður við gamla vörumerkið. Þess vegna verður Ragn- heiður Ásta að vera áfram í Framsókn. í fjórða lagi Það er öruggara að vera á tveimur listum. Hugsanlega vinnur Þjóðvaki kosninga- sigur og Ásta Ragn- heiðurflýgur inn.á En hugsanlega fer allur vindur úr þessum samtökum og Ásta Ragnheiður væri betur sett í Framsókn. Fólk á ekki að setja öll eggin í sömu körfu. í fimmta lagi Ásta Ragnheiður get- ur ekki sameinað alla vinstri menn í einum flokki. En hún getur sameinað sjálfa sig í öllum flokkum. Þegar hún verður komin í framboð fyrir alla flokka mun hún átta sig á hvað þessir flokkar eiga sameig- inlegt en hætta að einblína á það sem aðskilur þá. Hér stóð sumarbústaður sem brann til kaldra kola á laugardagskvöld. Eldsupptök eru ókunn. Á laugardagskvöldið kviknaði í sumarbústað í nágrenni Vatns- endahæðar. Úlfar Eysteinsson veitingamaður býr þar í nágrenn- inu og varð eldsins var þegar hann var á leið heim úr vinnu. Úlfar er með farsíma í bifreið sinni og reyndi að hringja í slökkviliðið en náði ekki sambandi vegna út- varpsmastranna sem eru á hæðinni en þau trufla farsímasamband við þetta svæði. Úlfar brá þá á það ráð að banka upp á í húsi þar skammt frá og hafði heimilisfólkið þá þegar komið auga á eldinn og hringt í slökkviliðið. Um 10 mínútum síðar kom slökkviliðsbíll á staðinn en bú- staðurinn var þá alelda og brann til kaldra kola. Slökkviliðsmennirnir slökktu í glæðunum og vakt var höfð við bústaðinn fram undir morgun vegna ótta um nærliggj- andi sumarbústaði. „Þetta var huggulegur og penn bústaður," segir Úlfar. „Hann var gerður upp fyrir um það bil fimm árum og það var fallegur gróður í kringum hann.“ Samkvæmt heimildum MORG- UNPÓSTSINS var ekki rafmagn í bú- staðnum og leiðir það líkum að um íkveikju hafi verið að ræða. Vart hefur orðið við meiri umferð ung- linga úr nærliggjandi borgarhverf- um á svæðinu eftir að upplýstur vegur var opnaður þangað fyrir skömmu. Bústaðurinn stóð að Vatnsendabletti 507 en eigandi hans vildi ekkert láta hafa eftir sér um brunann. -lae Seyðisfjörður Maður stunginn meonnm Maður á þrítugsaldri var stunginn með hnífi á götu úti á Seyðisfirði snemma á sunnu- dagsmorgun. Var hann stunginn í brjóstið en mun ekki vera al- varlega slasaður eftir átökin. Bæði árásarmaðurinn, sem einnig mun vera á þrítugsaldri, og fórnarlambið munu hafa ver- ið drukknir er þetta gerðist. Ekki reyndist unnt að fá nánari upp- lýsingar um tildrög árásarinnar áður en blaðið fór í prentun, en málið er í rannsókn. ■ Sumarbústaður brann til kaldra kola > i i i í í \ i i 1 1 í i

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.