Helgarpósturinn - 28.11.1994, Qupperneq 6
6
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁtvfíítoAGUR 28. NÓVEMBER 1994 *
Hraunsfjörður
Malbik flettist af to til 15 metra
kafla á Snæfellsnesvegi í Hrauns-
firði í vonskuveðri á laugardags-
kvöld. „Ég veit ekkert hvað varð
um malbikið, það sést ekkert til
þess,“ sagði vakthafandi lögreglu-
þjónn á Stykkishólmi í gærkvöld.
Vegurinn er enn ökufær og ekki er
kunnugt um skemmdir á ökutækj-
um vegna þessa. ■
V estmannaeyj ar
„Menn
bara til baka“
Óvenju rólegt var í Vestmanna-
eyjum um helgina. Mikil vinna er í
frystihúsunum og fólk hefur lítinn
tíma til að skemmta sér. „Við erum
að bjarga þjóðinni," sagði vakthaf-
andi lögregluþjónn í Vestmanna-
eyjum í gærkvöld. Aðspurður um
árekstra sagði hann „nrenn ekki
kippa sér upp við að fá einn á kjaft-
inn,“ eins og hann orðaði það.
„Menn lemja þá bara til baka og ef
það dugar ekki verður bara að hafa
það,“ sagði hann. Veður var vont í
Eyjum eins og víðast annars staðar
en ekki er kunnugt um neinar
skemmdir. ■
Bílar fuku og rúður brotnuðu að Ytra-Fagradal í Dalasýslu
„Jámið á þakinu
fauk til andskotans“
segir Steinólfur Lárusson, bóndi á bænum.
„Þetta var bara ein hvirfilvinds-
hrota, sem mölvaði alla glugga í
húsinu og járnið fauk af þakinu,“
segir Steinólfur Lárusson, bóndi
á bænum Ytra-Fagradal á Skarðs-
strönd í Dalasýslu.
Miklar skemmdir urðu í ofsa-
veðri sem reið yfir bæinn á 11. tím-
anum á laugardagskvöldið. Vind-
ofsinn var slíkur að fjögurra tonna
bátur sem stóð á vagni snérist hálf-
hring á hlaðinu og símastaur í ná-
grenni hans skekktist mikið. „Við
erum búin að redda þessu í bili
með því að negla hlera fyrir glugg-
ana en það kom mannskapur og
hjálpaði mér,“ segir Steinólfur.
„Járnið af þakinu fauk hins vegar til
andskotans," bætir hann við.
Lada Sport-bifreið og stór
Chevrolet-bifreið sem eru í eign
heimilismanna tókust á loft í veðr-
inu og gjöreyðilögðust eftir að hafa
rekist saman og oltið. Land Rover-
jeppi sem var í handbremsu barst
30 metra undan rokinu en slapp við
skemmdir. Steinólfur kveður ekki
mikinn búskap að Ytri-Fagradal.
„Ég er bara drullusokkur því ég
skar niður vegna riðu í gamla daga
og er aðeins með 100 rollur núna
mér til yndisauka," segir hann.
Steinólfur treystir sér ekki til að
meta hversu tjónið vegna veðursins
er mikið en íbúðarhúsið saman-
stendur af hæð og kjallara. Mikið
vatn barst inn á hæðina og flæddi
niður í kjallarann. „Það er hægt að
prjóna þetta helvíti upp,“ segir
Steinólfur um hvort hægt sé að lag-
færa skemmdirnar.
„Það vildi svo vel til að enginn
var í herbergjunum þar sem glerið
brotnaði, annars hefði fólkið stór-
slasast. Auk mín búa á bænum
dóttir mín og tengdasonur, krakkar
tveir, og svo er ég með kerlingu sem
slapp vel. Hún er sjúklingur á hækj-
um og var að fara niður stigann
þegar foss af glerbrotunum kom á
eftir henni.“
Aðspurður um hvort honum
hafi ekki brugðið við veðurofsann
segist Steinólfur vera „svo vitlaus"
að hann haggi&t ekki við neitt, eins
og hann orðar þáð. „Það þarf ekki
að kvarta ef enginn slasast, þá gerir
helvítis draslið ekkert til,“ bætir
hann við. Eftir að vindhviðan gekk
yfir lægði veðurofsann á Skarðs-
strönd en Steinólfur segist hafa
orðið var við veðrabreytingar þar á
undanförnum árum.
„Maður á von á miklum stór-
viðrum ef þessi gróðurhúsaáhrif
sannast," segir hann. „Það er stað-
reynd þótt ég hafi ekkert kynnt mér
það sérstaldega. Maður hefur bara
fylgst með þessu kjaftæði um þetta.
Undanfarin ár hafa verið meiri
stórviðri en vant er.“
Ekki er kunnugt um alvarlegar
skemnrdir á öðrum bæjum í
grennd við Ytri-Fagradal.
-lae
Fólkið á leið
til Jóhönnu
A stofnfundi Þjóðvaka á Hótel Islandi voru
585manns mættir til að hlusta á hvað nýja
hreyfingin hefði fram að færa.
morgunpósturinn tók nokkra fundargesta tali.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
deildarstjóri Tryggingarstofnunar
„Ég er hér að fylgjast með og hlusta á hvað
menn hafa fram að færa,“ sagði Ásta Ragnheið-
ur. Hún vildi ekki gefa upp hvort hún hygðist
starfa með Jóhönnu. „Ég er að hugleiða það og
ætla bara að sjá til,“ sagði hún en á sama tíma
fékk hún góða kosningu í miðstjórn Framsókn-
arflokksins.
Ásgeir Hannes Eiríksson
„Ef eitthvað verk er svo lítið að mér sé treyst til
að leysa það, mun ég ekki liggja á liði mínu.
Ég hef alltaf þekkt þetta fólk hérna, þetta eru
vinir mínir. Heimdallur og Borgaraflokkurinn voru
í raun bara hliðarspor."
Páll Halldórsson formaður BHMR
„Ég tel gömlu flokkana vera komna að fótum
fram og að hér sé verið að reyna að gera eitt-
hvað til framtíðar. Hvort ég muni starfa fyrir Jó-
hönnu? Ég mun alla vega fylgja henni fyrstu
skrefin og tel rétt að gefa þessari hreyfingu
séns.“
cí tilboðsveröi
Hagenuk ST 900 KX er þráðlaus sími
sem hentar vel við ólíkar aðstæður,
á heimilinu jafnt sem vinnustaðnum.
í honum er 20 númera skammvals-
minni, endurval, stillanleg hringing
og 24 stafa skjár. Hægt er að nota
Hagenuk símann
rafmagnsleysi.
Tilboðsverð kr.:
Hagenuk MT 2000
GSM farsíminn er
traustur og fjölhæfur
en jafnframt einfaldur
í notkun. Skjárinn er
óvenju stór og
leiðbeiningarnar
birtast jafnóðum og
síminn er notaður.
Trompið er svo
innbyggður símsvari
sem tekur við
töluðum skilaboðum
eða talnaboðum, ef
hringt er í hann úr
tónvaissíma. Hægt er
að lesa eigið ávarp inn
á símsvarann.
Tilboðsverð kr.:
19.947,- 35.900,-
Staðgr. m. vsk.
Staðgr. m. vsk.
Traust viðgerða- og varahlutaþjónusta. Greiðslukjör.
ö hagenuk
Söludeild Ármúla 27, sími 91-63 66 80.
Söludeild Kringlunni, sími 91-63 66 90.
Söludeild Kirkjustræti 27, sími 91-63 66 70 POSTUR
og á póst- og símstöðvum um land allt. OG SIMI
Helgi Pétursson,
fyrrum Framsóknarmaður
„Ef mér stendur til boða að starfa með Jó-
hönnu þá er það aldrei að vita. Ég ætla
bara að sjá til. Ég hef hlustað á ræðurnar
og mér líst mjög vel á það sem hér hefur
verið sagt,“ sagði Helgi með merki hreyf-
ingarinnar í barminum en hann gekk síðar
á fundinum til liðs við Þjóðvakann.
Jóhannes Gunnarsson,
framkvæmdastjóri
Neytendasamtakanna
„Mér finnst þetta vera mjög forvitnilegt afl
og ég mun leggja það að mörkum sem ég
get til þess að efla viðgang þessarar
hreyfingar. Ég fór á þennan fund til þess
að fylgjast með og hrífst af þeirri hreyf-
ingu sem hér er að myndast. Við höfum
þörf fyrir róttæka jafnaðarmannahreyf-
ingu sem tekur á þeim mikla vanda sem
er að skapast hjá íslenskum heimilum til
að berjast gegn þeirri láglaunastefnu sem
hér ræður ríkjum. Ég treysti þessari hreyf-
ingu til að taka á þessu vandamáli."
Mörður Árnason,
íslenskufræðingur og Birtingarmaður
„Ég er hér til þess að fylgjast með. Það eru nú
ennþá fimm mánuðir til kosninga."
Kjartan Valgarðsson,
formaður Birtingar
„Nei það er ekki rétt að ég sé genginn til liðs við
Jóhönnu Sigurðardóttur."
Arthur Morthens,
Birtingarfélagi
„Á þessu stigi hef ég ekki gengið til liðs við Jó-
hönnu, hvað sem síðar verður."
Kristín Á. Ólafsdóttir,
fyrrum borgarstjórnarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins og Nýs Vettvangs
„Ég vil ekkert segja nema að ég
fylgist hér með bæði jákvæð og
forvitin."
Helgi Hjörvar,
varaborgarfulltrúi Reykjavíkurlistans
„Ég þarf ekki að ganga í fleiri flokka til að sameina
jafnaðarmenn."
Flosi Eiríksson
Alþýðubandalaginu
„Ég er að velta þessu fyrir mér en er ekki farinn að
starfa neitt fyrir hana ennþá.“
Ólafur Ólafsson,
skrifstofustjóri Alþingis
„Nei nei, ég er bara að forvitnast. Ég hef ekki
gengið til liðs við Jóhönnu Sigurðardóttur."