Helgarpósturinn - 28.11.1994, Side 7
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER.it«94
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTASKÝRING
7
Jóhanna Sigurðardóttir á stofnfundi Þjóðvakans í gær
Keflavík
„Fólker að losa af
sér viðjar staðnaðs
flokkakerfis“____________________
600 manns á stofnfundinum.
Jóhanna Sigurðardóttir Eftir að Jóhanna Sigurðardóttir hafði flutt stefnuræðu sína stóðu nær 600 fundar-
gestir upp og klöppuðu henni lengi lof í lófa. Hér veifar Jóhanna til stuðningsmanna við hlið Jóhannesar á
Fóðurbílnum.
helsti sægreifi landsins í kraíti stórs
eignarhlutar í Granda og einn helsti
talsmaður kvótakerfisins. í ræðu
sinni sagði Ágúst: „Við viljum
tryggja hlut innlendrar fiskvinnslu
og að afli fari sem mest um innlenda
fiskmarkaði. Við teljum að hóflegt
veiðigjald komi til greina sem taki
mið af afkomu útgerðarinnar. Slíkt
veiðigjald getur runnið til hagræð-
ingar og uppbyggingar í sjávarút-
vegi.“ Ágúst sagði jafnframt að nú
væri runninn upp tími jafnaðar-
stefnu og frjálslyndra viðhorfa, sið-
væðing var honum hugleikin og
hann sagði hreyfinguna aðeins
byggjast á tilfinningum fólks. Um
hina flokkanna sagði hann: „Þeirra
tími er liðinn.“
Fundurinn stóð í rúma tvo tíma
og voru átta ræður fluttar. Guðrún
Ásmundsdóttir og Margrét Áka-
dóttir fluttu ljóð og Kvennakór
Reykjavíkur söng á milli atriða.
Guðrún Árnadóttir sagðist vera
„pólitískt viðundur" og í raun væri
ekkert nýtt við Jóhönnu, hún væri
bara miðaldra kona. Hins vegar laði
hún fólk til sín vegna orða sinna og
gjörða, hún nyti trausts. Guðrún
sagði stjórnmál vera eins og upp-
vask. Þegar væri búið að hreinsa
kæmi alltaf einhver tii að subba út
að nýju. Lokaorð hennar voru:
„Tími Jóhönnu mun koma og okkar
líka.“
Aðrir ræðumenn voru Þorsteinn
Hjartarson skólastjóri á Suður-
landi, Ásta B. Þorsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri Þroskahjálpar,
Sigurlín Sveinbjarnardóttir, Run-
ólfur Ágústsson, lektor á Bifröst,
og Sigurður Pétursson fyrrum
formaður SUJ og eiginmaður Ólín-
ar Þorvarðardóttur. Sigurður
sagði: „Það er kominn tími til breyt-
inga og tíminn, hann er núna.“
Pálmi Jónasson
„Þessi fundur markar upphaf að
stofnun nýrrar stjórnmálahreyfing-
ar, hreyfingar sem ætlar að breyta
íslenskum stjórnmálum og svara
kalli fólksins um nýjar áherslur,
breytt vinnubrögð og meiri ábyrgð
í stjórnmála- og viðskiptalífi, hreyf-
ing sem ætlar að starfa fyrir fólkið
og með fólkinu að jöfnun lífskjara
og meira réttlæti," voru upphafs-
orð Jóhönnu Sigurðardóttur á
stofnfundi Þjóðvakans á Hótel Is-
landi í gær. Fundurinn var vel sótt-
ur en dyravörður hótelsins sagðist
hafa talið inn 585 fundargesti.
I ræðu sinni sagði Jóhanna að
hreyfingin væri að „svara kröfum
um nýja tíma í stjórnmálum á Is-
landi,“ og lagði áherslu á að stétta-
skipting væri komin til að fara.
Lífskjörin hafa hrunið vegna fyrir-
greiðslu, ábyrgðarleysi og slöku sið-
ferði í stjórnmála- og viðskiptalífi.
Hún sagði það „hvorki stjórnlist né
réttsýni" að „halda hálfri þjóðinni
undir hungurmörkum í launakjör-
um, þrengja sífellt að velferðarkerf-
inu, viðhalda auðsöfnun á fárra
manna hendur og misrétti í tekju-
skiptingunni.'1 Jóhanna sagði hina
köldu gróða- og markaðshyggju
ekki duga heldur verði að leggja
áherslu á manneskjuna sjálfa. „Þess
vegna er fólk að losa af sér viðjar
staðnaðs flokkakerfis, þar sem fá-
mennir valdahópar og þingmanna-
bandalög ráða ferðinni, sem sífellt
reyna að hreiðra betur um sig og
sitt valdakerfi, en gleyma að hlusta
á rödd fólksins og vilja þess.“
Skattabreytingar
og hlunnindi aflögð
„Hreyfingin mun byggja á hug-
sjónum jafnaðarstefnunnar og kjöl-
festa hennar verður mannúð, rétt-
læti, samhjálp með alþýðu fólks og
með þeim sem eiga undir högg að
sækja.“ Hreyfingin mun bjóða fram
um allt land og landsfúndur verður
haldinn í janúar.
Jóhanna sagði að ráðast verði í
víðtækar aðgerðir vegna greiðsluerf-
iðleika heimilanna. Hún gagnrýndi
Framsóknarflokkinn harkalega sem
sett hefúr „stærstu skuldbreytingu
Islandssögunnar" á oddinn. Hún
sagði Framsóknarmenn hafa stjórn-
að hér í aldarfjórðung og sagan væri
samfelld mistakasaga sem við vær-
um enn að súpa seyðið af. Það sem
hún óttaðist mest er helminga-
skiptastjórn Framsóknar og íhalds-
ins. Þjóðvaki væri „öflugt foystuafl
jafnaðarmanna og félagshyggjufólks
til mótvægis við íhaldsöflin í land-
inu.“
Hlunnindagreiðslur verða endur-
skoðuð, ferða- risnu og bílakostnað-
ur lækkaður um fjórðung, dagpen-
ingar afnumdir og hagkvæmni beitt
við notkun ráðherrabíla. Nýtt lífeyr-
iskerfi er sett á oddinn, tvísköttun
hans afnumin og lægra skattþrep
fyrir láglaunafólk. Fjármagnsskattur
verður lagður á, hlunnindagreiðslur
gerðar skattskyldar og skattsvik
upprætt.
Jóhanna sagði að laga þyrfti EES-
samninginn að breyttum aðstæðum
og kanna kosti og galla aðildar að
ESB. „Við viljum hvorki ökkla hinna
flokkanna í þessu efni, sem segja að
málið sé ekki á dagskrá, né eyra Jóns
Baldvins sem segir aðild strax.“
Siðareglur í stjórnmál
og eitt kjördæmi
„Við viljum að settar verði siða-
reglur um störf stjórnmálamanna
og þeir látnir sæta ábyrgð gjörða
sinna. Lög þarf að setja um starfsemi
stjórmálaflokka, þar sem meðal
annars verði gerð krafa um ná-
kvæma bókhaldsskyldu stjórnmála-
flokkanna og að reikningar þeirra
verði birtir opinberlega. Við viljum
að birt verði nöfn þeirra styrktarað-
ila stjórnmálaflokka sem gefa yfir til-
tekna fjárhæð til starfsemi flokk-
anna. Til að komast hjá óeðlilegum
hagsmunatengslum verði lögfest að
slíkar fjárhæðir megi ekki fara yfir
tiltekna fjárhæð." Jóhanna sagði að
landið ætti að vera eitt kjördæmi,
þingmönnum fækkað í 50 og tekið
upp persónukjör.
Auðlindaskattur
Agústs Einarssonar
Það var beðið með nokkurri eftir-
væntingu hvaða stefna yrði tekin í
sjávarútvegsmálum. Um það sagði
Jóhanna. „Hreyfingin leggur áherslu
á endurskoðun á sjávarútvegsstefn-
unni og að snúa við þeirri þróun, að
forræði á þessari sameign þjóðar-
innar verði smám saman eign fá-
menns hóps. Þannig viljum við
vinna markvisst að því að allir njóti
affaksturs af auðlindum sjávar, en
að hann safnist ekki á fárra manna
hendur.“
Það vakti athygli að Ágúst Ein-
arsson tók í sama streng en í Morg-
unblaðitiu í gær er hann sagður
Reykjavík
Maður
féllút
umglugga
Maður féll út um glugga á fjórðu
hæð að Brautarholti 18 um þrjú-
leytið í gær. Betur fór en á horfði
því maðurinn lenti í gljúpum jarð-
vegi og slapp án meiriháttar
meiðsla. Farið var með hann á
slysadeild en hann reyndist óbrot-
inn. Ekki er kunnugt um hvernig á
því stóð að marðurinn datt út um
gluggann en engin ummerki fúnd-
ust um að hann hafi verið við
gluggaþvott. Að sögn lögreglu var
maðurinn ekki undir áhrifum
áfengis eða annarra vímugjafa að
því er talið er. ■
Ekki endurskoð-
endur Áburðar-
verksmiðjunnar
Vegna fféttar, sem birtist síðast-
liðinn fimmtudag um heimildar-
lausar fjárfestingar Þorsteins V.
Þórðarsonar fýrrverandi umsjón-
armanns Lífeyrissjóðs starfsmanna
Áburðarverksmiðjunnar, skal það
áréttað að það var ekki endurskoð-
andi verksmiðjunnar, sem fór með
endurskoðun ársreikninga lífeyris-
sjóðsins. Stjórn lífeyrissjóðsins réð
endurskoðanda til þess að hafa eft-
irlit með starfsemi sjóðsins og end-
urskoða ársreikninga hans. Eins og
kom ffam í fféttinni er í athugun að
þessi endurskoðandi verði látinn
sæta ábyrgð vegna alvarlegra villna í
ffamsetningu ársreikningsins og
hvort ábyrgðatrygging hans komi
til með að bæta þann skaða sem
mistökin koma til með að valda.
Jóhanna segir að straumurinn liggi til hreyfingarinnar
Tími fólksins
er kominn
„Mér fannst fundurinn alveg
frábær og fór fram úr öllum von-
um. Við renndum alveg blint í sjó-
inn með hvað margir myndu mæta
en það er alveg ljóst að straumur-
inn liggur til þessarar hreyfingar.
Þetta er það sem við höfum verið
að finna og mér fannst það stað-
festast á þessum fundi. Ég er
ánægð með fundinn."
Áttirþú von á ncerri 600 manns á
fundinn?
„Nei ég átti nú ekki von á svo
mörgum vegna þess að yfirleitt eru
nú lélegar mætingar á fundum pól-
itísku flokkanna. En þessi hreyiing
virðist ætla að draga að sér fólk.“
Er búið að ákveða dagsetningu
fyrir landsfund?
„Það er ekki búið að dagsetja
fundinn en hann verður í síðari
hluta janúar, upp úr 20. janúar.“
Hvenœr verður Ijóst hverjir leiða
listana í kjördœmum landsins?
„Ef ekki verður kosið fyrr en í
apríl þá hygg ég að við tökum okk-
ar tíma að minnsta kosti fram að
landsfundi."
Telur þú'að þið getið haldið því
mikla fylgi sem ítrekað hefur komið
fratn í skoðanakönnunum eða jafn-
vel aukið það?
„Það verður tíminn að leiða í
ljós. Ef fólk finnur að þarna er nýtt
afl á ferðinni, ný hreyfing sem
byggir á trúverðugleika þá er ég al-
veg sannfærð um að svo verði. Við
öll sem að þessu stöndum ætlum
að sanna það fyrir fólkinu."
Er þinn tími kominn?
„Tími fólksins er ef til vill kom-
inn.“ -pj
Brotist
inn í bíl
Brotist var inn í bíl í Keflavík á
föstudag og hafði þjófurinn á brott
með sér hljómflutningstæki. Ekki
er ljóst hver var þar á ferð og hafði
hann ekki fundist þegar blaðið fór í
prentun. ■
Reykjavík
Ellefu ,
grunaðir
umölvun
Óvenju fátt fólk var á ferli í mið-
borginni um helgina og var hún
með rólegra móti að sögn lögregl-
unnar. Samtals voru 11 ökumenn
teknir grunaðir um ölvun við akst-
ur á föstudags- og laugardagskvöld
en annars gekk umferðin stórslysa-
laust fyrir sig. ■
Kópavogur
Innbrot við
Smiðjuveg
Tvö innbrot voru framin í fyrir-
tæki við Smiðjuveg um helgina.
Fyrirtækin sem hér um ræðir eru
Islenskur hagfiskur og Bistí.
Nokkrar skemmdir voru unnar á
hurðarbúnaði og lagt hald á ein-
hverja smáhluti. Þá höfðu þjófarnir
einnig skiptimynt upp úr krafs-
inu. ■
Vogahverfi
Grípinn
við innbrot
íverslun
16 ára piltur var staðinn að verki
við innbrot í matvöruverslun á
horni Gnoðarvogs og Langholts-
vegar um kl 5 aðfaranótt sunnu-
dagsins. Lögreglan hafði hendur í
hári hans en þrátt fyrir ungan aldur
er pilturinn með langan afbrotafer-
il. ■
Rok í Reykjavík
Timbur og
pallar fuku
Litlar skemmdir urðu á mann-
virkjum í Reykjavík í veðrinu sem
reið yfir borgina um helgina.
Timbur fauk við Eggertsgötu í
grennd við stúdentagarðana og
skemmdir urðu á vinnupöllum við
Nýlendugötu. ■
Borgarbókasafnið
Þjófunum
leistekki
á bækumar
Brotist var inn í Borgarbókasafn-
ið við Þingholtsstræti í fyrrinótt.
Ekki er kunnugt um að neinu hafi
verið stolið. Skemmdir voru ekki
verulegar. ■
Suðurnes
Vinnuskúr
og rusla-
tunnur fuku
Þrátt fyrir hávaðarok og vonsku-
veður á Suðurnesjum seinni hluta
laugardags og aðfaranótt sunnu-
dags urðu litla skemmdir á mann-
virkjum. Vinnuskúr fauk á hliðina í
Njarðvík en skemmdir urðu litlar.
Þá var kallað á lögregluna í Grinda-
vík vegna foks á ruslatunnum í
bænum. ■