Helgarpósturinn - 28.11.1994, Qupperneq 12

Helgarpósturinn - 28.11.1994, Qupperneq 12
12 MORGUNPÓSTURINN ERLENT MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994 Prestar í klandri Lögregla í Londonderry á Norð- ur-trlandi rannsakar nú mál sem tengist kynferðislegri misnotkun á allt að hundrað börnum. Þetta er sagt vera stærsta mál sinnar teg- undar á Bretlandseyjum og ekki bætir úr skák að hinir ákærðu eru prestar í kaþólsku kirkjunni. Kirkj- an á Irlandi hefur undanfarið beðið mikinn hnekki vegna mála af þessu tagi og varð Albert Reynolds, for- sætisráðherra Irska lýðveldisins, að segja af sér í tengslum við slíkt mál.B Kanar sam- þykkja GATT Allt bendir til þess að Banda- ríkjaþing sam- þykki loks GATT- sarr komulagið um tollfrjáls við- skipti í þessari viku. Hægfara repúblikanar undir forystu Bob Dole virðast reiðubúnir að ljá samningnum samþykki sitt og þykir það benda til þess að þeir hyggist halda frið við demókratann Bill Clinton Banda- ríkjaforseta. ■ Bill Clinton Berlusconi berst Silvio Berlus- coni. auðkýfing- ur og forsætis- ráðherra Ítalíu, berst nú fyrir pólitísku lífi sínu. Hann er ásakaður um spillingu, en fékk gálgafrest þegar dómstóll í Mílanó ákvað um helg- ina að bíða með að taka mál hans fyrir. Líklega verður þó Berlusconi kvaddur fyrir dómstólinn í næstu viku. Berlusconi reynir nú að fá samstarfsflokkana í ríkisstjórn til að styðja sig og hefur honum orðið nokkuð ágengt: I skoðanakönnun sem gerð var um helgina kom fram að 64 af hundraði ítala vildu að stjórn hans sæti áfram.B Berlusconi smokkur Þjóðverjar sem berjast gegn út- breiðslu eyðni notuðu nokkuð ný- stárlegar aðferðir til að vekja áhuga á málefni sínu á laugardag. Þeir höfðu hannað smokk sem hefði mátt þræða upp á getnaðarlim risa og settu hann yfir 13 metra háa súlu sem stendur utan við hina frægu Nikolaikirkju í borginni Potsdam. Prestar höfðu reynt að koma í veg fyrir þessa uppákomu en borgaryf- irvöld ákváðu að leyfa hana.l Þjóðaratkvæðagreiðslan í Noregi Konur fljúgastá Úrslit í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Noregi í dag eru geysitvísýn. Barátt- an hefursnúist upp í slag milli tveggja kvenna, Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra ogAnne Enger Lahnstein, formanns Miðfíokksins. Þær eru ekkert sérstaklega miklar vinkonur þessa dagana. Þjóðaratkvæðagreiðslan um að- ild Norðmanna að Evrópusam- bandinu fer fram í dag, þótt kosið hafi verið í einstaka fylkjum í gær. Mörgum kann að koma það ein- kennilega fyrir sjónir að halda kosningar á mánudegi, en þetta er frídagur í Noregi. Kjörstaðir verða opnir frá átta um morguninn til klukkan átta um kvöldið. Fyrstu tölur sem byggðar eru á viðtölum við fólk utan við kjörstaði birtast um áttaleytið í dag. Með kosningunum verður fylgst í útvarpinu og ef til vill í sjónvarpi. Ef mjótt verður á mununum gæti dregist lengi áður en úrslit verða ljós. Til dæmis er búist við því að tölur frá Tromsö komi seint en þar er andstaðan við Evrópusambands- aðild geysimikil. Síðast verða þó talin utankjörstaðaratkvæði sem eru ákaflega mörg og er talið að þeir sem hafa kosið með þeim hætti séu frekar hlynntir Evrópusam- bandinu. Eins og endranær liafa andstæð- ingar Evrópusambandsins forskot í skoðanakönnunum. Stuðnings- menn aðildar hafa reyndar saxað á fylgi andstæðinga og mældi dag- blaðið Verdens Gang jafnan stuðn- ing og andstöðu meðal Norð- manna í tveimur skoðanakönnun- um sem birtust í þessari viku. Allar aðrar skoðanakannanir benda hins vegar til þess að Norðmenn muni hafna aðild. Skoðanakannanir sem gerðar voru í gær gáfu til kynna að 52 af hundraði Norðmanna væru andvígir aðild, en 48 prósent væru hlynntir. Þó hafa margir bent á að skoð- anakannanirnar séu ef til vill ekki marktækar, eins og kom glögglega í ljós í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Svíþjóð. Skoðanakannanir byggja á símhringingum og segja sérfræð- ingar að það fólk sem er heima til að taka upp símann séu yfirleitt einstaklingar sem eigi lítið undir sér. Meðal slíks fólks sé andstaðan við Evrópusambandið mikil. Hins vegar séu fylgismenn aðildar oft upptekið fólk í blóma lífsins sem erfitt sé að hafa símasamband við. Síðustu daga hefur baráttan um Evrópubandalagið að vissu leyti snúist upp í slag milli tveggja kvenna, Gro Harlem Brundtland, sem hefur verið forsætisráðherra síðan 1990, og Anne Enger La- hnstein, formanns hins hægfara Miðflokks. Lahnstein vakti fýrst at- hygli á sér á áttunda áratugnum þegar hún var virk í baráttunni Gro Harlem Brundtland var æf af reiði eftir sjónvarpskappræður á föstudag. Sakaði hún helsta andstæðing sinn, Anne Enger La- hnstein, um lygar. gegn fóstureyðingum. Óvíða í heiminum eru áhrif kvenna í stjórnmálum meiri en í Noregi og því vakti mikla athygli þegar Brundtland og Lahnstein lenti heiftarlega saman í sjónvarpi í lok síðustu viku. Brundtland þykir hafa hlaupið kapp í kinn í umræðum síðustu vikurnar. Ákafi hennar hef- ur þó verið henni til framdráttar heldur en hitt. Brundtland missti stjórn á skapi sínu í sjónvarpskapp- ræðum á föstudagskvöld. Hún sagði Lahnstein fara með lygar og Bosnía Bihacborg er að falla Herliðið sem freistar þess að verja bæinn Bihac á svokölluðu ör- yggsissvæði Sameinuðu þjóðanna í Bosníu er orðið ærið þunnskipað, segir í Reutersfrétt. Serbar eru komnir í úthverfi bæjarins og varla líður á löngu áður en þeir hafa hann allan á valdi sínu. Eftir starfs- manni Sameinuðu þjóðanna á svæðinu er haft að þeir hafi tögl og hagldir og geti í raun sprengt og skotið eins og þá lysti af hæð sem þeir hafa hertekið sunnan við borg- ina. Mikil skelfing ríkir í bænum. Hersveitir bosnískra múslima hafa verið á flótta og stefna nú að bæn- um Donji Vakuf sem er í suðaust- urátt við Bihac. Þar virðist önnur stórorrusta vera í uppsiglingu. Michael Rose, foringi hersveita Sameinuðu þjóðanna í Bosníu, hvatti í gær stríðsaðila til að leggja niður vopn og sagði að hermenn sínir neyddust máski til að hverfa frá landinu ef átökin mögnuðust enn. Það sé í raun ógerlegt að halda uppi friðargæslu þegar geisi alls- Stríðstól sem hersveitir Serba nota í umsátrinu um Bihac. herjarstríð. Atburðirnir hafa verið fordæmdir af öllum ríkjunum fimmtán semn eiga sæti í öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna, en Rússar, sem eru fremur hliðhollir Serbum, hafa sérstaklega varað Sameinuðu þjóðirnar við að blanda sér ekki í átökin meira en orðið er. Serbar hafa nú fjögur hundruð hermenn Sameinuðu þjóðanna i haldi í hefndarskyni fyrir loftárásir NATÓ-ríkja í síðustu viku og eru þeir flestir breskir og hollenskir. Einn helsti foringi Serba, Jovan Za- metica, sagði í gærkvöld að þetta væri allt hinn mesti misskilningur og að hann byggist við að lausn fyndist á málinu fyrir hádegi. Fulltrúar Frakklands, Bandaríkj- anna, Þýskalands og Bretlands hitt- ust í gær í París til að ræða ástandið á stríðsvæðum í Bosníu, en tókst ekki að komast að neinni skýrri niðurstöðu. Frakkar eru heldur óhressir með frammistöðu Banda- ríkjamanna í þessum heimshluta og spyrja hvort það séu ekki einmitt þeir sem hafi veitt Bosníu-múslim- um tækifæri til að hefja mikla sókn sem nú hefur endað með því að Serbar eru að leggja undir sig verndarsvæðið.B að nú væri mælirinn fullur. La- hnstein var að tala um að réttindi launafólks í Noregi myndu minnka við inngöngu í Evrópusambandið og sagði Brundtland það hrein ósannindi. Lahnstein var sármóðg- uð, en sjónvarpsáhorfendum þótti Brundtland hafa farið með sigur af hólmi í umræðunni. Lahnstein tel- ur að fullveldi Norðmanna verði fyrir bí ef þeir gangi í Evrópusam- bandið. Eftir kappræðuna var Brundt- hvort hún sæi ekki eftir þmdjspinð dráttarlausu ummælum. Hún svar- aði einfaldlega: „Nei.“ Brundtland er sá norrænn stjórnmálamaður sem hefur notið mestrar virðingar á alþjóðavett- vangi að Olov Palme gengum. Hún leggur feril sinn að veði í kosningunum og er talið að hún muni segja af sér ef fylgismenn Evr- ópusambandsaðildar tapa. Sjálf segist hún ekki ætla að segja af sér þótt niðurstaðan verði jákvæð, en vandséð er að hún geti setið lengur í embætti ef svo fer. Brundtland þykir kjarkmikil kona og hún hefur ekki látið bugast þótt ýmislegt hafi bjátað á í einkalífinu. Hún sagði af sér sem formaður Verkamanna- flokksins eftir að sonur hennar Jörgen fyrirfór sér fyrir tveimur árum. Maður hennar hefur verið kunnur hægrimaður en reyndar er talið að hann hafi frekar verið að snúast á sveif með konu sinni síð- ustu árin. Miðflokkur Anne Enger La- hnstein er næststærsti flokkur Nor- egs, næst á eftir Verkamannaflokki Brundtland. Flokkurinn sem nýtur fylgis í dreifbýli hefur hótað því að hlíta ekki niðurstöðu þjóðarat- kvæðagreiðslunnar ef Norðmenn ákveða að segja „já“. Þeir muni greiða atkvæði gegn aðild í norska þinginu, en samkvæmt norskri stjórnarskrá hefur þjóðaakvæða- greiðslan ekki úrskurðarvald. Þrír fjórðu hlutar þingsins þurfa að greiða atkvæði með aðild til að hún verði að lögum. - eh. Lesbíur látnar lausar Bonnie og Hege skáluðu í Tuborg-bjór eftir að þær voru látnar lausar. Tvær nektardansmeyjar, önnur dönsk og hin norsk, hafa verið látn- ar lausar eftir að hafa setið í varð- haldi grunaðar um að hafa myrt Mark Mortensen, tuttugu ára gamlan mann. Konurnar eru 23 ára og 21 árs og heita þær Bonnie Maj- lund og Aud Hege Santi Mark þessi var smáglæpamaður og fannst látinn eftir að hafa verið í heimsókn á heimili föður annarrar konunnar í Herning í Danmörku aðfaranótt 9. október síðastliðins. Lögregla hefur yfirheyrt meira en þrjú hundruð manns vegna þessa ntáls. Þrátt fyrir að konurnar hafi verið látnar lausar trúir lögregla því enn að þær séu sekar um að hafa myrt unga manninn. Lík hanns fannst í skottinu á bláum Volkswag- en-Passat sem hann hafði stolið og hafði hann þá verið látinn í þrjár vikur. Vinur Marks lá undir grun, en ekki er hægt að draga í efa fjar- vistarsönnun hans. Hann sat nefni- lega í fangelsi á tíma morðsins. Sem fyrr segir eru konurnar nekt- ardansmeyjar og eru þær lesbískar. Lögregla hefur engar afgerandi sannanir gegn þeim og allt bendir til þess að þær muni komast upp með verknaðinn, séu þær sekar.B Evrópusambandið Við borgum ekki! Þjóðverjar eru sáróánægðir með hversu mikið þeir borga í sjóði Evrópusambandsins og hversu lít- ið þeir fái í staðinn. Þetta kemur fram í viðtali sem tímaritið Der Spiegel átti við Bernhard Fried- mann, háttsettan þýskan embætt- ismann hjá Evrópusambandinu. Hann sagði að ef þjóðarfram- leiðsla á mann væri notuð sem mælikvarði, greiddu Þjóðverjar sem nemur 700 milljörðum ís- lenskra króna of mikið á ári hverju. Friedmann sagði ennfremur að Þjóðverjar legðu af mörkum 1000 milljörðum meira til Evrópusam- bandsins á hverju ári en þeir fái til baka. Þjóðverjar eru sú þjóð sem ber langmestan kostnað af Evrópu- sambandinu. Þeir greiða um 28 af hundraði rekstarfjár sambandsins. Þjóðverjar eru orðnir Iangþreyttir á þessu, enda standa þeir ekki allt of vel eftir sameiningu landsins. Þýski seðlabankinn, Bundesbank, hvetur til að framlögin verði skor- in niður og í sama streng hafa tek- ið Helmut Kohl kanslari og Rud- olf Scharping leiðtogi flokks jafnaðarmanna. ■ Kohl kanslari og Waigel fjármálaráðherra

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.