Helgarpósturinn - 28.11.1994, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 28.11.1994, Blaðsíða 14
14 MORGUNPÓSTURINN SKOÐUN MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994 Vesældómur Vesturlanda Vesturlönd virðast nú endanlega vera búin að gefast upp á því hlutverki sínu að stöðva yfirgang Serba í löndum fyrrum júgóslavíu. Þegar þetta er skrifað eru Serbar um það bil að gera lokaatlögu sína að borginni Bihac, eftir að hafa sótt að henni í fimm sólarhringa samfleytt á landi, sem þó á að heita griðasvæði Sameinuðu þjóðanna. Þessi samtök, sem eiga að hafa það meginhlutverk að tryggja frið, geta ekki einu sinni ábyrgst grið á eigin verndarsvæði. Serbar hafa Sameinuðu þjóðirnar að háði og spotti enn og aftur, og niðurlæging sam- takanna er þegar orðin slík, að þau eiga sér tæpast viðreisnar von. Það hefur beinlínis verið ömurlegt að fylgjast með full- komnum vanmætti þessara „friðarsamtaka“ síðustu daga. Fyrst ætluðu þau að tala Serba burt af verndarsvæðinu, en þeir hlustuðu ekki frekar en íyrri daginn. Þegar þetta þótti fullreynt var gerð máttlaus og misheppnuð tilraun til að hrekja Serba á brott með loftárásum á innrásarsveitir þeirra. 1 kjölfarið lýsti talsmaður Sameinuðu þjóðanna því yfir að loftárásir á Serba væru of seint á ferðinni — þeir væru komn- ir of nálægt Bihac og ekki lengur unnt að greina á milli vina og óvina. Auk þess væri enn verið að freista þess að semja við Serba um að hverfa á brott og ekki ráðlegt að ráðast á þá á meðan! Reynslan hefur sýnt, að Serbar hafa einatt unnið sína stærstu hernaðarsigra einmitt á sama tíma og þeir draga full- trúa Sameinuðu þjóðanna á asnaeyrunum í svokölluðum samningaviðræðum. Þá sjaldan niðurstöður hafa fengist úr slíkum viðræðum hafa Serbar svo gott sem alltaf svikið þær jafnharðan. Og allt- af verða fulltrúar „friðarsamtakanna" jafn svekktir og sárir yfir svikunum. Og alltaf ályktar Öryggisráðið út og suður og skorar á Serba að halda griðin. Þeim eru settir úrslitakostir, sem aldrei er haldið til streitu. Serbar eru fyrir löngu búnir að átta sig á því, að það er ekk- ert að marka ályktanir og úrslitakosti Öryggisráðsins, og full- trúar Sameinuðu þjóðanna á ófriðarsvæðunum eru ekki til annars en að hlæja að þeim. Bíræfni Serba er nú orðin slík, að þeir eru einfaldlega farn- ir að skjóta á herþotur Atlantshafsbandalagsins, sem eru að gaufa yfir höfðurn þeirra í nafni Sameinuðu þjóðanna. Öryggisráðið samþykkti í fyrrakvöld, einn ganginn enn, að krefjast þess að Serbar stöðvuðu nú þegar árásir sínar á Bi- hac. Serbar svöruðu með því að setja sína eigin úrslitakosti um að varnarlið borgarinnar legði niður vopn — vitandi sem er, að þeirra úrslitakostir eru þeir einu, sem eitthvað mark er tekið á í þessum átökum. í ljósi síðustu atburða ákvað Bandaríkjastjórn um helgina, að senda tvö þúsund hermenn í átt að ófriðarsvæðunum, og sú skýring gefin, að þeir ættu að vera til taks ef bjarga þyrfti friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna og áhöfnum her- þotna Atlantshafsbandalagsins. I kjölfarið kom leiðtogi Bosníu-Serba fram í sjónvarpi og brosti í kampinn. Hann sagði með ísköldu háði, að Banda- ríkjamenn gætu síðan sent fímm þúsund hermenn til að bjarga þessum tvö þúsund og svo tíu þúsund til að bjarga þessum fimm þúsund og síðan koll af kolli þangað til þeir stæðu uppi með annað Víetnam-stríð. Það er hins vegar enginn að hugsa um hvernig á að bjarga þeim 70 þúsund íbúum í Bihac, sem Sameinuðu þjóðirnar lofuðu vernd — og sviku síðan í hendur Serbum. Páll Magnússon m^Margtm J \ Posturmn Miðill hf., Vesturgötu 2, 101 Reykjavik, simi 2 22 11 Beinir símar eftir lokun skiptiborðs: Ritstjórn 24666, tæknideild 24777, auglýsingadeild 24888 og dreifing 24999 Simbréf ritstjórnar 22243 - Simbréf auglýsingadeildar 22241 - Símbréf afgreiðslu 22311 Sjö milljarða skattajöfnun og björgunarsjóður í húsnœðismálum íslenskt þjóðfélag einkennist æ meir af svipmóti fátæktar og mis- réttis. Gjaldþrot blasa við þúsund- um heimila. Neyðarástand er að skapast í húsnæðismálum. Mikil reiði ríkir vegna ranglætis í skatta- málum. Stefna og störf ríkisstjórnarinnar hafa á undanförnum árum skerpt andstæðurnar í íslensku þjóðfélagi. Brýnasta verkefni nýrrar ríkis- stjórnar verður að hrinda í fram- kvæmd víðtækum björgunarað- gerðum til að jafna lífskjör og forða heimilum frá gjaldþroti. Ný skattastefna Núverandi ríkisstjórn hefur auk- ið skattabyrðarnar á lágtekjufólki og fólki með miðlungstekjur sem nemur mörgum milljörðum. Af- leiðingin er meðal annars sú að tekjuskattur á venjulegu launafólki hefur aldrei verið hærri. Veruleg uppstokkun á skatta- kerfinu í landinu er því nauðsynleg forsenda kjarajöfnunar og mikil- vægur þáttur í nýjum kjarasamn- ingum og áframhaldandi stöðug- leika. Þessi nýja skattastefna þarf að fela í sér að í fýrsta áfanga verði fluttir 5-7 milljarðar frá fjármagns- eigendum, hátekjufólki og gróða- fyrirtækjum til lágtekjufólks og miðtekjuhópa. Þessum íjármunum yrði varið til að: ★ Hækka skattleysismörkin í áföngum ★ Afnema tvísköttun á lífeyris- greiðslum ★ Borga út persónuafslátt til fólks með laun undir skattleysismörkum ★ Gera persónuafslátt unglinga 16-20 ára í námi millifæranlegan ★ Setja ný jöfnunarákvæði um vaxtabætur, húsaleigubætur og barnabætur. Þessar breytingar myndu fela í sér svipaða skattatilfærslu í þágu al- mennings í landinu og stjórnar- flokkarnir ákváðu fyrir tveimur ár- um í þágu fyrirtækjanna. Heildar- tilfærslan er af svipaðri stærðar- gráðu. Þungavigtin Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins Abyrg fjármögnuun Hér er ekki um óábyrgar tillögur að ræða. Fjármögnun þessara að- gerða yrði sótt í að skattleggja fjár- magnstekjur eins og launatekjur og arðgreiðsiur á hlutafé, taka upp stighækkandi hátekjuskatt á þau 10 prósent sem eru með ofurtekjur, breyttar reglur um notkun rekstr- artaps fyrirtækja og tímabundinn tekjutengdan stóreignaskatt. Fyrir síðustu kosningar voru lof- orð núverandi stjórnarflokka með eindæmum. Sjálfstæðisflokkurinn lofaði að afnema alla skatta fyrrver- andi stjórnar og Alþýðuflokkurinn boðaði stórlækkun á tekjuskatti. Þetta voru yflrboð sem áttu sér enga stoð í raunveruleikanum. Alþýðubandalagið hefur hins vegar sett fram ábyrgar heildartil- lögur þar sem gerð er ítarleg grein fyrir fjármögnun þeirra breytinga sem eiga að gagnast launafólkinu í landinu. Biörgunarsjóður í húsnæðismálum Auk misréttisins í skattamálum setur neyðarástand í húsnæðismál- um æ rneiri svip á íslenskt þjóðfé- lag. Það er nokkuð athyglisverð staðreynd eftir sjö ára stjórn Jó- hönnu Sigurðardóttur á húsnæðis- málum. Þetta neyðarástand birtist í göllunt húsbréfakerfisins, óraun- hæfu greiðslumati, aukinni greiðslubyrði í félagslega kerfinu og kreppu kaupleiguíbúðakerfisins í fjölmörgum sveitarfélögum. Ljóst er að þetta neyðarástand í húsnæðismálum mun skapa rnarg- vísleg félagsleg vandamál, auka ör- væntingu einstaklinga og fjöl- skyldna og skapa djúpstæð sár í samfélaginu. Alþýðubandalagið hefur því lagt til að stofnaður verði sérstakur björgunarsjóður í húsnæðismálum. Verkefni hans verði: 1. Að veita sérstök greiðsluerftð- leikalán 2. Að fjármagna lengingu fast- eignaveðlána í húsbréfakerfinu 3. Að lengja lán í félagslega kerf- inu og létta greiðslubyrði um tíma 4. Að auðvelda fólki að halda íbúðunum meðan tímabundnir erfiðleikar eins og atvinnuleysi ganga yfir. Kreppan í húsnæðismálum er orðin slík að grípa verður tafarlaust til björgunaraðgerða. Ef það verður ekki gert munu þúsundir fjöl- skyldna í landinu verða gjaldþrota á næstu misserum. Fyrir sex árum varð að grípa til björgunaraðgerða fyrir atvinnulíf- ið. Nú er brýnt að ákveða björgun- araðgerðir fyrir heimilin í landinu. „Hér er ekki um óábyrgar tillögur að rœða. Fjármögnun þessara að- gerða yrði sótt í að skattleggja fjármagnstekjur eins og launatekjur og arðgreiðslur á hlutafé, taka upp stighœkkandi hátekjuskatt á þau 10 prósent sem eru með ofurtekjur, breyttar reglur um notkun rekstrar- taps fyrirtœkja og tímabundinn tekjutengdan stóreignaskatt.“ Þungavigtarmenn eru meðal annars: Árni Sigfússon, Geir H. Haarde, Halldór Ásgrímsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Erlendsson, Jón Steinar Gunnlaugsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Óskar Magnússon, Páll Kr. Pálsson, Svavar Gestsson, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson. Ummæli Eru löggur þá hænur? „Það eru til menn, ónafngreindir, sem vita að það er ekki erfiðara að kotna frétt á framfœri við miðla en að búa eggjaköku úreggjum.“ Ómar Smári Ármannsson aðstoðar- yfirlögregluhæna. Hvers eiga garðyrkjumenn hjá ríianu að gjalda? „Með sérverkefnum á ég ekki við garðyrkju eða viðgerðir. Það liggur í augum uppi.“ Kristín Ástgeirsdóttir garðeigandi. Skilur ekki enn lögmálið um framboð og efbrspum „Persónulega tel ég rétt að bera fratn lista og telþörffyrir hatm.“ Ingi Björn Albertsson kaupmaður. Þá hlýtur Jón Baldvin að fá nafríið Giovanni Baldini „Aukþess er ESB nú að verða eitm höfuðvettvangur hintiar ný- skipuðu heimsmafíu. “ Bjarni Einarsson óvinur Evrópu. Er hann hræddur við að frændinn Idósi Jó- hönnu? „Áfrændi minn að hafa þrefaldan atkvœðisrétt á við mig, afþví að hann býr vest- ur við Djúp?“ Jón Baldvin Hannibalsson þriðjungs- atkvæði. m^Morgun A A Posturmn Útgefandi Ritstjórar Fréttastjóri Framkvæmdastjóri Markaðsstjóri Setning og umbrot Filmuvinnsla og prentun Miöill hf. Páll Magnússon, ábm Gunnar Smári Egilsson Sigurður Már Jónsson Kristinn Albertsson Þórarinn Stefánsson Morgunpósturinn Prentsmiðjan Oddi hf. Verð í lausasölu kr. 195 á mánudögum og kr. 280 á fimmtudögum. Áskriftarverð er kr. 1.300 á mánuði fyrir tvö blöð í viku. Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 100 króna afslátt.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.