Helgarpósturinn - 28.11.1994, Síða 29
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN SPORT
23.
Keilan í sókn með bættum aðstæðum
Hehtr gengið nyög
vel persónulega
segir Halldór Ragnar Halldórsson keilari.
Keilan er íþrótt, sem hefur verið í
töluverðum uppgangi að undan-
förnu hér á landi. Keiluhöllin við
Öskjuhlíð hefur verið rekin til
margra ára og nú nýverið bættist
við ný og glæsileg aðstaða fyrir keil-
ara í Mjódd.
„Aðstaðan er öll hin fullkomn-
asta,“ segir Halldór Ragnar Hall-
dórsson einn af sjö eigendum
hússins. „Við settum okkur það
takmark að skapa aðstöðu eins og
hún gerðist best og það hefur tekist
hjá okkur. Aðstaðan hér á landi var
orðin úrelt og því er auðvitað bylt-
ing að hafa allt í einu aðstöðu á
heimsmælikvarða.“
Góður árangur
Það er ekki aðeins að bætt að-
staða skapi betri skilyrði fyrir keil-
ara landsins heldur hefur orðið vart
við mun betri árangur í kjölfarið.
Halldór Ragnar hefur ekki farið
varhluta af því, meðalskorið hans
hefur hækkað töluvert og í deild og
í einstaklingskeppninni er hann í
fremstu röð.
Halldóri hefur gengið vel í vetur
og sem stendur er hann efstur með
202 í meðalskor. „Veturinn hefur
verið mjög góður hjá mér og í raun
miklu betri en ég átti von á. Breyt-
ingin og bætingin er auðvitað afar
ánægjuleg og sýnir manni að rétt
leið hefur verið valin.“
Breytingar hjá
KeiluhoUinni
í kjölfar hinnar stórbættu að-
stöðu í Mjódd hafa forsvarsmenn
Keiluhallarinnar í Öskjuhlíð hugs-
að sér til hreyfings og ætla að gjör-
breyta allri aðstöðunni nú um jól
og áramótin.
„Ég fagna þessu og tel að þetta
muni auka framfarirnar hjá okkur
á skömmum tíma. Þrátt fyrir að ég
sé auðvitað einn af eigendunum í
Mjódd hlýt ég að hugsa um hag
keilaranna og ef eitthvað er
nauðynlegt fyrir vöxt íþróttarinnar
er það auðvitað bætt aðstaða.“
-Bih
NBA körfuboltinn
Ekkert gengur né
rekur hjá Houston
Gengi Houston Rockets hefur
verið afleitt síðustu daga. Eftir að
hafa sigrað í níu fyrstu leikjum
tímabilsins hafa þeir nú tapað
þremur í röð. Fjöldi leikja fór fram
í NBA-boltanum um helgina og
getur að líta úrslitin hér að neðan.
Úrslit
LA Clippers - New Jersey 102:107
Atlanta - LA Lakers 87:92
Boston - Orlando 118:124
Indiana - Milwaukee 111:106
Washington - Cleveland 94:96
Detroit - Miami 97:111
Minnesota - Philadelphia 71:109
Dallas - Portland 101:91
San Antonio - Seattle 94:114
Utah - Chicago 124:94
Sacramento - Denver 108:105
New York - Charlotte 85:105
Cleveland - Golden State 101:87
Philadelphia - Boston 99:108
Washington - LA Lakers 96:112
Houston - Seattle 94:98
Milwaukee - Orlando 105:113
Phoenix - San Antonio 111:108
Denver - Dallas 123:124
Staðan Atlantshafsdeild Orlando 9 2 .818
New York 6 4 .600
Boston 6 6 .500
New Jersey 6 7 .462
Washington 4 6 .400
Philadelphia 4 8 .333
Miami 3 7 .300
Miðdeild
Indiana 7 3 .700
Cleveland 7 5 .583
Detroit 6 5 .545
Chicago 6 6 .500
Milwaukee 5 6 .455
Charlotte 5 6 .455
Atlanta 4 8 333
Miðvesturdeild
Houston 9 3 .750
Dallas 6 4 .600
Utah 7 5 .583
Denver 6 5 .545
San Antonio 5 6 .455
Minnesota 1 11 .083
Kyrrahafsdeild
Phoenix 8 3 .727
Golden State 7 4 .636
Seattle 7 5 .583
LA Lakers 7 5 .583
Sacramento 5 4 .556
Portland 5 5 .500
LA Clippers 0 12 .000
Halldór Ragnar Halldórsson „Breytingin og bætingin er auðvitað afar ánægjuleg og sýnir manni að rétt leið
hefur verið valin.“
Gabriel Batistuta hefur skorað í
öllum ellefu leikjum Fiorentina í
deildarkeppninni, og er búinn að
bæta 32 ára gamalt markamet.
Enginn heimasigur í
ítalska boltanum
meðnýtt
markamet
Gabriel Batistuta bætti 32 ára
markamet í ítalska boltanum í gær
er hann skoraði fyrra mark Fior-
entina á móti Sampdoria. Hann
skoraði úr vítaspyrnu á 56. mínútu
og hefur þar með skorað í öllum
ellefu leikjum liðsins það sem af er
keppnistímabilsins. Gamla metið
átti leikmaður með Bologna, Ezio
Pascutti, en hann skoraði í fyrstu
tíu leikjum liðsins 1962-1963.
Reyndar voru fagnaðarlæti Bat-
istuta svo rosaleg að dómari leiks-
ins gaf honum gult spjald fyrir vik-
ið. Leiknum lauk með jafntefli, 2:2,
í fjörugum leik.
Úrslit
Brescia - Bari Ncri - Tovalieri, Baronchclli Fiorentina - Sampdoria 1:2 2:2
Batistuta (vsp.), Vierchwood (sm.) - Platt, Gullit Foggia - Napoli Matulclli - Carbone Genoa - Cremonese Tentoni Lazio - Roma Balbo, Cappioli, Fonseca Padova - Juventus Kreck - Baggio, Ravanelli Reggiana - Cagliari Inter - Parma Sosa (vsp.) - Branca 1:1 0:1 0:3 1:2 0:0 1:1
Staðan
Parma 11 19:9 24
Juventus 10 14:6 23
Fiorentina 11 26:15 22
Lazio 11 21:11 21
Roma 11 17:7 20
Bari 11 13:11 19
Foggia 11 13:9 17
Cagliari 11 9:8 16
Sampdoria 11 14: 9 14
Inter 11 10:8 14
AC Milan 10 7:8 13
Cremonese 11 9:14 12
Torino 9 9:11 11
Genoa 11 13:19 11
Napoli 11 15:22 11
Padova 11 10:26 8
Brescia 11 6:19 3
Reggiana 11 5:18 3
Opna skandinavíska meistaramótið í júdó fór fram um helgina
Vemharð lagði Bjama í úrslitum
riksson í úrslitaleik í -95 kíló flokki á Opna skandinavíska meistaramót-
inu í júdó um helgina.
Opna skandinavíska meistara-
mótið í júdó fór fram á laugardag í
Laugardalshöll. Keppendur komu
frá Islandi, Danmörku, Noregi,
Færeyjum og Þýskalandi. Helstu
úrslit urðu þau að Vemharð Þor-
leifsson lagði Bjarna Friðriksson
í spennandi úrslitaleik í -95 kíló-
gramma flokknum, og varð síðan í
öðru sæti á eftir Sigurði Berg-
mann í opnum flokki. Vernharð
varð í öðru sæti í þessu móti í fyrra
og greinilegt er að hann hefur tekið
stórstígum framförum síðan þá.
Sigurður Bergmann lagði Jón Jak-
obsson í úrslitaleik í +95 kílóa
flokknum, Halldór Hafsteinsson
lagði Þorvald Blöndal í úrslitaleik
-86 kílóa flokksins og Gauti Sig-
mundsson lagði Danann Martin
Kirkhammer í úrslitaleik í -78 kílóa
flokknum. Helgi Júlíusson sigraði
í -71 flokki, Sævar Sigursteins-
son sigraði í -65 kílóa flokki og
Norðmaðurinn Knut Harafallet
sigraði í -60 kílóa flokknum. Hjá
konunum skipuðu þýskir keppend-
ur tvö efstu sætin, þær Claudia Ka-
iser, sem sigraði, og Antje Muller.
Greinilegt er að Islendingar hafa
eignast nýja júdóstjörnu, manninn
sem á að taka við af Bjarna Frið-
rikssyni sem hefur verið konung-
ur þessarar íþróttar hér á landi
undanfarin ár. Vernharð Þorleifs-
son hefur allt til að bera sem þarf til
að ná árangri í þessari íþrótt, og á
áreiðanlega eftir að láta á sér bera í
alþjóðlegum mótum á næstu miss-
erum.B
Óvænt úrslit í skosku deildarbik-
arkeppninni
Raith Rovers bikar-
meistari eftir vrta-
spymukeppni
Fyrstu deildarlið Raith Rovers
varð í gær skoskur bikarmeistari
eftir að hafa borið sigurorð af úr-
valsdeildarliðinu Celtic í úrslitaleik.
Celtic hafði yfirburði í leiknum og
óð í færum en gekk illa að nýta þau.
Það var Raith sem náði forystu
snemma í leiknum en Celtic jafnaði
í fyrri hálfleik. Sex mínútum fyrir
leikslok náði Charlie Nicholas
forystu fyrir Celtic en Gordon
Dalziel jafnaði tveim mínútum
síðar. Ekkert var skorað í framleng-
ingu, en í vítakeppni stóð Raith
uppi sem sigurvegari og vann 6:5.
Úrslitin eru ein þó óvæntustu í
skosku knattspyrnunni í áraraðir,
en þau veita Raith þátttökurétt í
UEFA bikarnum að ári. Áður en
bikarkeppnin hófst voru möguleik-
ar Raith á sigri metnir á 1:500. ■