Helgarpósturinn - 28.11.1994, Side 30

Helgarpósturinn - 28.11.1994, Side 30
30 MORGUNPÓSTURINN SPORT MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994 Enski boltinn Þýska Bundesligan Bremen sækir enn á Dortmund Forysta Borussia Dortmund í Bundesligunni er nú að eins eitt stig. Liðið gerði jafntefli við Bor- ussia Mönchengladbach í sex marka leik og gerði svissneski sóknarmaðurinn Stephane Chapuisat tvö marka Dortmund. Á föstudag sigraði Werder Bremen lið Schalke, 2:1, og er á geysilegri siglingu um þessar rnundir. Bay- ern Múnchen er einnig á góðri siglingu og færist upp töfluna eftir að hafa átt brösugu gengi að fagna. Liðið er nú komið í fimmta sæti eftir góðan sigur á Bayer Leverku- sen, 2:1. Lothar Matthaeus skor- aði sigurmarkið fimmtán mínút- um fyrir leikslok. Bochum, lið Þórðar Guðjónssonar, sigraði Bayer Uerdingen á föstudag. Þetta var fyrsti sigur liðsins í langan tíma og færist liðið upp um eitt sæti fyrir vikið. Annað lið í botnbaráttu, Duisburg, vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í gær er liðið lagði Eintracht Frankfurt á heimavelli sínum, 1:0. Úrslit í Bundesligunni Bochum - B.Uerdingen 2:1 Werder Bremen - Schalke 2:1 Bayern Múnchen - B.Leverkusen 2:1 B.Mönchengladb.- B.Dortmund 3:3 Freiburg - VFB Stuttgart 2:0 Dynamo Dresden - Karlsruhe 1:1 Köln -1860 Múnchen 2:1 Hamburg - Kaiserslautern 0:0 Duisburg-Eintr.Frankfurt 1:0 Staðan Borussia Dortmund 15 35:14 24 Werder Bremen 15 30:16 23 B.Mönchengladbach 15 32:19 19 Freiburg 15 30:21 19 Bayern Múnchen 15 29:21 19 Kaiserslautern 15 23:19 19 Hamburg 15 26:15 18 Bayer Leverkusen 15 27:19 17 Karlsruhe 15 24:22 17 VFB Stuttgart 15 29:29 16 Eintracht Frankfurt 15 16:23 14 Schalke 15 19:19 13 Köln 15 25:32 13 Bayer Uerdingen 15 15:23 10 Dynamo Dresden 15 15:28 19 Bochum 15 16:35 8 1860 Múnchen 15 14:28 7 Duisburg 15 10:32 5 Urslit í úrvalsdeild Arsenal - Man.Utd. 0:0 Blackburn - QPR 4:0 Sutton, Shettrcr) Chelsea - Éverton 0:1 Rideout Chrystal P. - Southampton 0:0 Leeds - Nott.Forest 1:0 Whehn Liverpool - Tottenham 1:1 Fowler (vsp.> - Ruddock (sm.) Man.City - Wimbledon 2:0 Flitcroft, Rösler Newcastle - Ipswich 1:1 Cole ■ Thomsen Norwich - Leicester 2:1 Netvsotnc, Sutch - Druper West Ham - Coventry 0:1 Busst Aston Villa - Sheff.Wed Staðan í úrvalsdeild Blackburn 16 35:13 36 Man.Utd. 16 31:10 35 Newcastle 16 34:17 34 Liverpool 16 33:17 30 Nott.Forest 16 25:16 28 Leeds 16 24:19 27 Man.City 16 27:25 25 Chelsea 16 25:20 24 Norwich 16 15:14 24 Coventry 16 19:26 22 Southampton 16 23:26 21 Arsenal 16 18:16 20 Chrystal Pal. 16 15:18 20 Tottenham 16 25:31 19 Wimbledon 16 17:2818 Sheff.Wed. 16 16:2217 West Ham 16 9:1717 QPR 16 23:31 16 Everton 16 12:24 14 Aston Villa 16 19:27 13 Leicester 16 17:2912 Ipswich 16 15:31 11 'Sex stig verða dregin af Tottenham í lok tímabilsins vegna fjármálaóreiðu. Markahæstir 17 - Robbie Fowler (Liverpool), lan Wright (Arsertal) 16 - Alan Shearer (Blackbum), Chris Sutton (Blackbum) 15- Andy Cole (Newcastle) 14 - Júrgen Klinsmann (Tottenham) 12 - Matthew Le Tissier (Southampton) 11 - Andrei Kanchelskis (Man.Utd.), Paul Walsh (Man.City), Robert Lee (Newcastle). Blackburn komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar Alan Shearermeð þrennu fyrir Blackbum Robbie Fowler skoraði fyrir Uverpool og er nú orðinn markahæstur ásamt lan Wright hjá Arsenal. Sóknarmenn Blackburn voru í miklu stuði á laugardag er liðið tók QPR í kennslustund á Ewood Park. Alan Shearer skoraði þrennu og Chris Sutton bætti við fjórða markinu fyrir Blackburn, sem nú er komið á topp ensku úrvalsdeildar- innar. Á sama tíma náðu Manchest- er United og Newcastle aðeins jafntefli í leikjum sínum. Arsenal og United gerðu markalaust jafntefli á Flighbury í frekar tilþrifalitlum leik. Mark Hughes var rekinn af leik- velli rétt fyrir leikslok er hann fékk sitt annað gula spjald. Eins og loka- tölur leiksins gefa til kynna tókst lan Wright ekki að skora en hann hafði skorað í síðustu tólf leikjum fram að þessu. Newcastle þurfti klárlega á sigri að halda og því létti mönnum þegar Andy Cole skoraði á 86. mínútu gegn botnliði Ipswich. Það dugði þó ekki til þar sem Claus Thomsen jafnaði fyrir gestina á lokamínútunni. Liverpool og Tot- tenham skildu jöfn. Robbie Fowl- er er orðinn markahæstur í úrvals- deildinni, og það þarf vart að taka það fram að hann skoraði fyrir Li- verpool, úr umdeildri vítaspyrnu. Neil Ruddock skoraði sjálfsmark og jafnaði þannig fyrir Tottenham þrettán mínútum fyrir leikslok. Varnarleikmenn Tottenham virðast hafa tekið stórum ffamförum eftir að Gerry Francis tók við liðinu því liðið hefur nú aðeins fengið á sig eitt mark í síðustu tveim leikjum. Hinn nýi framkvæmdastjóri Everton byrjar vel með liðið, sem hefur nú unnið tvo leiki í röð. Paul Rideout tryggði tryggði Everton sigur gegn Chelsea með marki sköntmu fyrir leikhlé. Lið Leicester gerir það ekki endasleppt þessa dagana. Á einni viku hafa þrír stjórar verið með lið- ið og í gær tapaði það síðan fyrir Norwich með marki á lokamínútu leiksins. Bruce Grobbelaar hefur nú haldið marki Southampton hreinu í tveim leikjum í röð. Liðið gerði á laugardag markalaust jafnt- efli við Chrystal Palace. Manchester City sigraði Wimbledon, 2:0. Alan Reeves var rekinn af leikvelli seint í seinni hálfleik. West Ham hrapar nú niður töfluna, og í gær tapaði liðið á heimavelli sínum fyrir Co- ventry. Varnarmaðurinn David Busset skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleik. Eftir góða byrjun hefur lítið gengið hjá Nottingham Forest undanfarið. Liðið tapaði fyr- ir Leeds um helgina með marki frá Noel Whelan eftir klukkutíma leik. I gær áttust síðan við Aston Villa og Sheffield Wednesday. Leikurinn var sá fyrsti eftir að Brian Little tók við framkvæmdastjórastöðu Villa. Dalian Atherton jafnaði í seinni hálfleik eftir herfileg mistök Marks Bosnich í marki Villa. SNERPA SPORTVÖRUR, KLAPPARSTÍG, SÍM119500

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.