Helgarpósturinn - 12.12.1994, Page 7
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTASKÝRING
7
Stöðuveiting umboðsmanns barna
Kvartað til umboðs
Guðrún Hjartardóttir, ritstjóri „Þetta er að því er virðist skyndiákvörð-
un Þórhildar að sækja um skrautstöðu í embættismannakerfinu.“
Guðrún Hjartardóttir, ritstjóri
tímaritsins Uppeldis og einn
umsækjenda
Vanvirðing
við aðra um-
sækjendur
Guðrún Hjartardótlir, ritstjóri
tímaritsins Uppeldis, er mjög ósatt
við þau vinnubrögð sem viðhöfð
voru við ráðningu Þórhildar Lín-
dal í starf umboðsmanns barna.
„Þórhildur er sú eina sem hafði
tækifæri til að kynna sig persónu-
lega í forsætisráðuneytinu, okkur
hinum var ekki einu sinni boðið í
viðtal. Stöðuveitingin er vanvirðing
við aðra umsækjendur þar sem alls
ekki var staðið faglega að verki.
Ég hef ekki fengið umsókn rnína
endursenda en í hréfi frá forsætis-
ráðuneytinu var mér tilkynnt að
Þórhildur hefði fengið stöðuna.
Starsferill hennar er þar rekinn í
stórum dráttum en varla er hægt að
kalla þann feril rökstuðning fyrir
ráðningunni. Þar kemur fram að
hún hefur einungis níu mánaða
starfsreynslu af málefnum barna og
unglinga," segir Guðrún.
„Embættið er gífurlega mikil-
vægt og í það þarf hæfileikaríkan og
duglegan einstakling en ekki aðila
sem tekur, að því er virðist, skyndi-
ákvörðun um að sækja um skraut-
stöðu í embættismannakerfinu.
Sorglegast er þó að Þórhildur getur
á engan hátt staðið undir því. Hún
er of nátengd „kerfinu“ og á því
mjög erfitt með að vekja athygli á
þeim misbrestum og hnökrum sem
þar finnast. Það má búast við að
hún sitji sem umboðsmaður barna
næstu fimm eða tíu árin,“ segir
Guðrún í samtali við MORGUN-
PÓSTINN.
HM
verið að vísa fyrirspurnum til ann-
ars starfsmanns í ráðuneytinu. Þór-
hildur sækir samt sem áður um og
er starfsmaður þess sem síðan veitir
stöðuna.
Páll og Benedikt segja, að forsæt-
isráðherra geti talist vanhæfur sam-
kvæmt nýjum stjórnsýslulögum en
þar kemur meðal annars fram að
starfsmaður er vanhæfur ef fyrir
hendi eru aðstæður sem draga
óhlutdrægni hans í efa. Spurningin
sé hvort forsætisráðherra geti talist
vanhæfur þar sem hann er yfirmað-
ur Þórhildar en að auki hefur verið
bent á sterk vináttutengsl þeirra.
Skylda ráðherra sé að beita mál-
efnalegum sjónarmiðum við ráðn-
ingar og honum ber að líta hlut-
laust á málin. Það er ólögfest regla
að ef hann lætur stjórnast af per-
sónulegum atriðum, svo sem vin-
áttu eða pólitík, þá flokkast það
undir valdníðslu.
Páll og Benedikt hafa í hyggju að
leggja inn kvörtun til umboðs-
manns Alþingis og fá þannig úr því
skorið hvort um lögbrot hafi verið
að ræða. Forsætisráðherra er æðsti
maður stjórnsýslunnar og eins og
málurn er háttað er ekki hægt að
kæra til hans. Umboðsmaður Al-
þingis er í störfum sínum sjálfstæð-
ur og óháður fyrirmælum frá öðr-
um. Ef niðurstaða hans er sú að
óeðlilega hafi verið staðið að ráðn-
ingunni er hugsanlegt að málinu
verði vísað til dómstóla þar sem
hægt er að höfða viðurkenningar-
mál og gera þá kröfu að skipan Þór-
hildar í starfið verði dæmt ógild.
-HM
Benedikt Sigurðarson „Forsætisráðherra ber að
rökstyðja ákvörðun sína innan tveggja vikna en það
hefur hann ekki gert.“
Davið Oddsson, forsætisráð-
herra á yfir höfði sér kæru vegna
stöðuveitingar í embætti umboðs-
manns barna. Tveir umsækjenda,
Páll Tryggvason læknir og Bene-
dikt Sigurðarson skólastjóri, telja
ráðningu þórhildar Líndal, lög-
fræðings í forsætisráðuneytinu, í
starf umboðsmanns barna vera
brot á nýjum stjórnsýslulögum.
Lögin tóku gildi urn síðustu áramót
og voru samin fyrir tilstilli forsætis-
ráðherra. Þórhildur Líndal var síð-
an fengin til að kynna almenningi
lögin, meðal annars með því að
semja um þau sérstakan kynningar-
bækling. Það var Eiríkur Tómas-
son, lögfræðingur og eiginmaður
Þórhildar, sem átti stærstan þátt í
samningu laganna.
„Fjórar vikur eru liðnar síðan við
Páll skrifuðum bréf til Davíðs og
kröfðumst rökstuðnings hans fyrir
stöðuveitingunni. Samkvæmt
stjórnsýslulögunum ber honum að
wara skriflega innan 14 daga en nú
:tæpum mánuði síðar hefur okkur
enn ekkert svar borist. Þolinmæði
iokkar er nú á þrotum,“segir Bene-
dikt.
„Allir eiga að njóta jafnræðis
gagnvart stjórnsýslunni. Okkur
hafa ekki enn verið sýnd rök sem
sýna ffam á að hæfni Þórhildar í
starfið sé meiri en annarra, síður en
svo. Ég veit að reynsla hennar af
málefnum barna er gerð meiri en
ástæða er til. Það er einkennilegt að
forsætisráðherra skuli liggja svona á
Þorhildur Lindal Skipun hennar dregur dilk a eftir sér.
þessum rökum. Auk Þórhildar
sóttu fimm lögfræðingar um starf-
ið, Áslaug Þórarinsdóttir, Elín
Norðdahl, Brynhildur Flóvens,
Björn Baldursson og Guðrún Ag-
nes Þorsteinsdóttir. Við viljum
láta reyna á þessar nýju leikreglur
sem settar hafa verið og fá úr því
skorið hvort um lögbrot sé að
ræða,“ segir Páll.
Á grundvelli þeirra vinnubragða
sem viðhöfð voru við ráðningu
Þórhildar í starfið, íhuga nú PáU og
Benedikt málsókn. Að þeirra mati
hlýtur það að teljast óeðlilegt að
Þórhildur hafi tekið við umsóknum
og svarað fyrirspurnum annarra
umsækjenda. Á þann hátt hafði
hún forgang fram yfir hina 23 sem
sóttu um stöðuna. Réttast hefði
Páll Tryggvason „Um
stjórnsýsiulögum."
er að ræða margfalt brot á
Hörður Svavarsson, formaður Foreldrasamtakanna
Davíð Oddsson
Óttumst að embættið
verði ekki tekið ah/arlega
Foreldrasamtökin vilja að um
boðsmaður Alþingis rannsaki
stöðuveitingu forsætisráðherra í
embætti umboðsmanns barna. í
samtali við MORGUNPÓSTINN segir
Hörður Svavarsson, formaður
Foreldrasamtakanna, að ef enginn
lUmsækjenda kæri stöðuveitinguna
þá muni hann semja kvörtun til
umboðsmanns Alþingis og fá
þannig úr því skorið hvort rétt hafi
-verið staðið að málum. „Við hjá
Foreldrasamtökunum höfum bar-
ast fyrir að þessu embætti yrði kom-
ið á fót frá árinu 1987. Okkur finnst
miður að ekki skuli ríkja friður um
stöðuveitinguna þar sem mikilvægt
er að mark sé tekið á umboðs-
manni barna. Enginn tekur emb-
ættið alvarlega ef því er haldið fram
að ólöglega sé að ráðningunni stað-
ið og að Þórhildur hafi hreppt stöð-
una fyrir kunningsskap og vináttu-
tengsl.
Það getur ekki talist annað en
óheppilegt að kerfið skuli ráða
manneskju úr kerfinu til að hafa
eftirlit með kerfinu. Við erum ekki
að efast um lögfræðilega hæfni Þór-
hildar en drögum í efa að lögfræði-
menntun í þetta starf sé æskileg,“
segir Hörður. -HM
Hörður Svavarsson „Það getur
ekki talist annað en óheppilegt að
kerfið skuli ráða manneskju úr
kerfinu til að hafa eftirlit með
kerfinu."
Svarar í
vikunni
í samtali við MORGUNPÓSTINN
segir Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra að afskaplega vel hafi verið
staðið að ráðningu Þórhildar Lín-
dal í starf umboðsmanns barna.
„Áður en tilkynnt var opinberlega
að Þórhildur hefði verið ráðin,
voru umsóknir annarra endur-
sendar. Þeim fylgdi jafnframt
ákveðinn rökstuðningur fyrir af
hverju Þórhildur var ráðin en það
er yfirleitt ekki vaninn við stöðu-
veitingar sem þessar.
Ég hef verið í útlöndum að und-
anförnu en mun svara síðar í vik-
unni. Umfjöllun MORGUNPÓSTS-
INS frá 5. desember um stöðuveit-
inguna er vitleysa frá upphafi til
enda. Það er til að mynda ekki rétt
að Páll Líndal, faðir Þórhildar, hafi
verið borgarlögmaður þegar ég var
borgarstjóri þar sem hann hætti
1978 en ég varð borgarstjóri 1982,“
segir Davíð.
Davíð Oddsson „Ákveðinn rök-
stuðningur fylgdi þegar umsóknir
voru endursendar."