Helgarpósturinn - 12.12.1994, Blaðsíða 24
32
MORGUNPÓSTURINN SPORT
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 1994
Islandskynning 1 þýsku handboltablaði
Tápmiklir hnokkar og
drykkjumenn góðir
NBA-molar
Dúettinn
íDallas
Góður árangur Dallas Mavericks
hefur vakið verðskuldaða athygli í
vetur. Liðið, sem verið hefur að-
hlátursefni undanfarin ár, er óðum
að sækja í sig veðrið og það á
möguleika á sigri í hverjum einasta
leik. Tveir ungir leikmenn, Jimmy
Jackson og Jamal Mashburn,
hafa gjörsamlega verið að tæta í sig
varnir andstæðinganna. Þeir hafa
báðir náð að skora 50 stig í leik í
vetur en samherjar hafa ekki náð
því takmarki á sama tímabili síðan’
1984-85 þegar Kevin McHale og
Larry Bird náðu báðir að skora yfir
50 á tímabilinu.
Jackson og Mashburn eru báðir
að gæla við 30 stiga meðaltal og
margir spá því að Jackson eigi eftir
að verða stigakóngur NBA eitthvert
næstu ára.
í þýska handboltatímaritinu
Handballwoche birtust nýlega tvær
greinar um ísland, íslenskan hand-
bolta og handboltamenn. Tilefni
greinaskrifanna er að sjálfsögðu
heimsmeistaramótið á næsta ári.
Styttri greinin er reyndar ekki ann-
að en upptalning á algengustu
ferðamannaklisjunum og gæti ver-
ið tekin beint upp úr hvaða ferða-
skrifstofubæklingi sem er. Hverir,
fískur og fossar, óspillt náttúra og
Gullfoss, auk alþingis, eldfjalla og
nafnahefðarinnar, mynda kjarna
þeirrar ágætu auglýsingar. Hin
greinin er öllu athyglisverðari, en
þar er fjallað um handbolta á Is-
landi og íslenska leikmenn með
þýskum liðum í gegnum tíðina.
Umfjöllunin um íslenska handbolt-
ann er reyndar í hálfgerðum goð-
sagnastíl, afskaplega hugljúf og fal-
leg mynd af tápmiklum hnokkum
og fórnfúsum áhugamönnum, allt í
gamla ungmennafélagsandanum
og ekki alveg í samræmi við raun-
veruleikann.
Helmingur greinarinnar fer hins
vegar í mikinn lofsöng um íslenska
handboltakappa í Bundeslígunni
þýsku. Fer þar reyndar tiitölulega
lítið fyrir sögum af afrekum þeirra
á íþróttasviðinu, meira plássi er eytt
í að lýsa því hvað þetta séu nú góðir
og skemmtilegir strákar allt saman.
Einn helsti kostur íslenskra hand-
boltamanna, ef trúa má heimildar-
manni blaðsins, er reyndar hóg-
værðin, það er að segja hversu
ódýrir þeir eru og tilbúnir að leggja
mikið á sig fyrir þetta skítakaup
sem þeirTá. J?n aðalkosturinn er þó
talinn vera skemmtanagleðin og
drykkjuharkan, sem ku einkenna
íslensku víkingana. Telur blaða-
maður víst að Sigurður Sveins-
son hefði auðveldlega getað komist
á héraðsþingið í sínu héraði hefði
hann kært sig um, svo vinsæll var
hann meðal heimamanna.
Skemmtanagleði Islendinganna
hefur komið af stað mörgum sög-
unum og ganga sögusagnirnar um
afrek þeirra í glasalyftingunum
ljósum logum hvar sem þeir koma.
Tvær slíkar sögur eru látnar fljóta
með. Hafa ólygnir það fyrir satt, að
meistaratitill Gummersbach, sem
Kristján Arason spilaði með, hafi
aldrei verið í neinni hættu utan
einu sinni á tímabilinu. Það var
þegar Kristján steig trylltan dans
við Pál Ólafsson uppi á barborði á
kjötkveðjuhátíðinni og engu mun-
aði að hann stórslasaði sig — sem
hugsanlega hefði kostað liðið titil-
inn.
Hin sagan er eldri en lifir þó enn
góðu lífi. Þannig var, að Dankersen,
sem Axel Axelsson lék með á sín-
um tíma, tapaði einhverju sinni
sem oftar leik. Þetta tiltekna tap olli
Axel miklu hugárvíli, sem virtist
valda honum þorsta miklum. Á
meðan félagar brugðu sér undir
sturturnar sat Axel því sem fastast
Siggi Sveins var svo vinsæll með-
al heimamanna að hann hefði
auðveldlega komist inn á þing.
og drekkti sorgum sínum. Tókst
honum að tæma heilan bjórkassa,
sem ætlaður hafði verið öllu liðinu,
á meðan hinir skoluðu af sér svit-
ann. Þetta ku hafa gerst fyrir einum
tólf árum síðan og ástæðan fyrir því
að sagan lifir enn er væntanlega tví-
þætt. Annars vegar hefur mönnum
að vonum þótt mikið til koma um
drykkjuþol Sela. Hins vegar eru
einhverjir félagar hans ábyggilega
ennþá fúlir yfir því að hafa ekki
fengið öllarann sinn... -æöj
Drexler
ekki
dauður
úr öllum
æðum
Gamli snillingurinn Clyde
Drexler hefur í vetur þaggað niður
í þeim gagnrýnisröddum sem töldu
hann útbrunnið gamalmenni.
Drexler hefur átt í miklum meiðsl-
um á undanförnum árum og því er
endurkoma hans í hóp bestu leik-
manna deildarinnar nokkuð
óvænt. I vetur hefur hann skorað
rúm 24 stig að meðaltali og skot-
nýtinga hans verið um 47 prósent
sem þykir allgott á þeim bæ.
ÞjáHarar
í bakara-
ofhinn
Þeir sem þjálfa í NBA geta ekki
montað sig yfir starfsöryggi og
ýmsir þjálfarar eru líklegir til að
verða aðalréttirnir í jólasteik lið-
anna. Líklegastir til að fjúka innan
skamms eru: Bill Fitch, þjálfari Los
Angeles Clippers og Kevin Loug-
hery, þjálfari Miami Heat. Það var
ekki búist við miklu af Clippers en
aftur á móti hefur byrjunin verið
verri en nokkrurn grunaði. Aftur á
móti eru aðdáendur Miami Heat
orðnir ansi langeygðir eftir al-
Frá A til Ö með Gústafi Bjarnasyni
,J5ynd að Guðmundur
Ami skuli ekki vera í
Haukum“
Aðventan: Þá styttist í jólin.
Bergsveinn Bergsveinsson: Það eru fáir kjúklingar betri en hann.
Draumadeitið: Er ekki Cindy Crawford á lausu?
Ellilífeyrinn: Þarf ég nokkuð að spá í það strax?
Vreknóttar konur: Þær hljóta að vera hraustar.
GuðmundurÁrni: Algjörsynd að hann skuli ekki vera í Haukum.
Haukar: Taka vel á móti öllum, líka Guðmundi Árna!
Islandsmeistarar: Mérdetturí hug Haukar!
Jazz: Ábyggilega þokkalegasta músík.
Kofinn: Þú færð hvergi eins góðan „Julio" eins og þar!
Línan: Maður verður að passa sig á því að stíga ekki á hana.
Mjólkurbú Flóamanna: Þar vinna vinir mínir og jógúrtgerlarnir Siggi og Óli!
Nöfn: Endalausir möguleikar.
Oskastaðan: Úrslitaleikir: Selfoss - Haukar.
Pælingar: Ætli Þorbergur og Einar komist báðir í einn Twingo?
Beykingar: Hallærislegurog sóðalegurávani hjáfólki.
Sigurður Valur Sveinsson: Okkar efnilegasti handboltamaður!
Tangó: Var það ekki einhver dans?
Unun: Flott hljómsveit.
Vinir Hafnarfjarðar: Allirsannir Haukamenn.
Þorbergur þjálfari Aðalsteinsson: Hvað ætli hann sé léttur?
Ættfræði: Ég hugsa um það þegarég er kominn á eílilífeyrinn.
Oskubuska: Hún er þarna úti einhvers staðar.
Sktöamenn fara oft ótroðnar slóðir í leit sinni að hentugum stöðum til að iðka
sina iþrótt. Þessi skiðari hefur einmitt farið þannig að, i stað þess að láta snævi
þaktar brekkur nægja hefur hann komið sér fyrir á iðandi öldum karabfska hafs-
ins þar sem svig, stórsvig og risasvig eru iðkuð af miklum móð.
Arnar Grétarsson:
Líkar vel
við Bjjama
Vegna viðtals í fimmtudagsblaði
MORGUNPÓSTSINS vill Arnar
Grétarsson, fyrirliði Breiðabliks,
taka fram að ekki sé rétt að hann
hafi fengið þrjú tilboð frá sænskum
liðum, aðeins hafi verið um þreif-
ingar í gangi. Varðandi það að
Blikar hafu ekkert gert í sínum
málum vill hann benda á að ekki
hafi orðið miklar breytingar á
liðinu og ekki sé um gagnrýni á
stjórnina að ræða. Þá vill hann
einnig taka það fram að samstarf
hans og Bjarna Jóhannessonar,
núverandi þjálfara liðsins, sé gott
og hann sé ánægður með störf
hans.B
Enska knattspyrnusambandið óhresst með
niðurstöðu gerðardóms í máli Tottenham
Bikarbanninu afíétt og
stigin sex verða ekki tekin
Það er víst óhætt að segja að að-
dáendur jafnt sem forráðamenn
enska knattspyrnuliðsins Totten-
ham Hotspurs andi léttar eftir
sögulega niðurstöðu gerðardóms á
föstudag. I niðurstöðunni er fallist
á flest sjónarmið núverandi stjórn-
armanna liðsins og allar fésektir
hækkaðar til muna og þess í stað
hætt við að banna liðinu þátttöku í
ensku bikarkeppninni og ennfrem-
ur hefur verið ákveðið að láta félag-
ið halda öllum áunnum stigum sín-
um í lok tímabilsins, en áður hafði
verið ákveðið að taka sex stig af
heildarstigafjöldanum til refsingar.
Málið er allt hið undarlegasta og
þykir bera merki um mikið skipu-
lagsleysi og klúður hjá enska knatt-
spyrnusambandinu. Þær refsingar
sem félagið hlaut í fyrra hafa nú all-
ar verið dregnar til baka utan fé-
sektir og menn segja nú að knatt-
spyrnusambandið verði að fara
hægt í sakirnar hvað refsingar varð-
ar í náinni framtíð.
Gerry Francis, framkvæmda-
stjóri liðsins, var að vonum ánægð-
ur með niðurstöðuna og sagði hana
sanngjarna, stigatakan hefði aðeins
bitnað á aðdáendum liðsins og
nýrri stjórn, ekki á þeim sem hefðu
átt sökina og átti Francis þá greini-
lega við landsliðsþjálfarann Terry
Venables.
Enska knattspyrnusambandið
hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis
að það sætti sig illa við niðurstöð-
una og hyggi á áfrýjun.B