Helgarpósturinn - 12.12.1994, Blaðsíða 16
16
MORGUNPÓSTURINN SKOÐUN
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 1994
m^Mormn A \
Posturmn
Utgefandi
Ritstjórar
Fréttastjóri
Framkvæmdastjóri
Auglýsingastjóri
Setning og umbrot
Filmuvinnsla og prentun
Miðill hf.
Páll Magnússon, ábm
Gunnar Smári Egilsson
Sigurður Már Jónsson
Kristinn Albertsson
Örn ísleifsson
Morgunpósturinn
Prentsmiðjan Oddi hf.
Verð í lausasölu kr. 195 á mánudögum
og kr. 280 á fimmtudögum.
Áskriftarverð er kr. 1.300 á mánuði fyrir tvö blöð í viku.
Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 100 króna afslátt.
Ráðherra ekki virt-
ur svars
í ljósi umræðu síðustu vikna um launakjör í landinu hlýtur að
vera svolítið einkennilegt hlutskipti að vera allt í senn jafnaðar-
mannaleiðtoginn Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðisráðherra og
viðskiptaráðherra.
Undir sinni yfirstjórn hefur jafnaðarmannaleiðtoginn á einn
kantinn sjúkraliða, sem hafa 56 þúsund krónur á mánuði og hafa
staðið í verkfalli vikum saman til að fá fimm þúsund krónur í við-
bót. Á hinn bóginn heyra svo undir sama jafnaðarmannaleiðtoga
ríkisbankastjórar, sem hafa eina milljón króna á mánuði og eru því
til viðbótar þessa dagana að kvitta fyrir „desemberuppbóf‘, sem er
nærfellt helmingi hærri upphæð en árslaun sjúkraliða.
Hvaða vítisvél hefur búið til þetta launakerfi bankastjóranna?
Ekki skýrist þetta af árangri í starfi. Landsbankinn græddi að vísu
94 milljónir í fyrra, en það gerir ekki mikið meira en að duga fýrir
árslaunum bankastjóranna og aðstoðarbankastjóranna það árið.
Árið á undan tapaði bankinn hins vegar 2.728 milljónum og allt
bankastjóragengið þyrfti að vera launalaust í 40 ár til að vinna tap-
ið upp.
Ekki skýrist þetta heldur af ábyrgð í starfi. Bankarnir hafa þurft
að afskrifa milljarða á milljarða ofan vegna heimskulegra ákvarð-
ana bankastjóranna. Enginn þeirra er kallaður til ábyrgðar á vit-
leysunni — engum þeirra dettur í hug að segja af sér og þaðan af
síður dettur nokkrum manni í hug að reka þá, eins og þó væri búið
að gera fyrir löngu í venjulegum fyrirtækjum.
Árangur bankastjóranna er sem sagt hraksmánarlegur, ábyrgðin
engin en launin fyrir utan og ofan allt velsæmi.
En það eru ekki bara launin sjálf sem ofbjóða siðferðiskennd
venjulegs fólks, heldur hvernig þau urðu til. Lítið dæmi: hvernig í
ósköpunum stendur, að bankastjórar fá þrettánda mánuðinn
greiddan? Einn þeirra sagði vandræðalegur í sjónvarpsviðtali í síð-
ustu viku, að þetta væri í samræmi við kjarasamninga bankastarfs-
manna. Þetta var athyglisvert því ekki var áður vitað, að kjör
bankastjóranna sjálfra réðust af þeim samningum. Nú fer fer mað-
ur loksins að skilja af hverju bankastjórarnir í samninganefnd
bankanna eru miklu fúsari til að semja við óbreytta bankastarfs-
menn um sporslur af þessu tagi fremur en beinar launahækkanir. í
fýrra tilvikinu eru þeir að semja um hækkun á eigin launum í leið-
inni, en hafa hins vegar sjálfir ekkert upp úr seinni aðferðinni. Um
leið og þeir sömdu um 100 þúsund króna desemberuppbót fyrir
óbreyttan bankastarfsmann höfðu þeir sjálfir milljón upp úr krafs-
inu.
Öll þessi svikamylla hefur orðið til undir handarjaðri stjórnmála-
flokkanna — pólitískt skipaðra bankaráða og pólitískt ráðinna
bankastjóra. Það má til sanns vegar færa, að ríkisbankarnir hafi
verið og séu enn holdgervingar pólitískrar spillingar á íslandi. Með
þessu er auðvitað ekki verið að alhæfa um bankastjórana sem ein-
staklinga, heldur kerfið sjálft.
Sighvatur Björgvinsson, viðskiptaráðherra, hélt blaðamannafund
fyrir tæpu ári og lýsti því karlmannlega yfir, að hann myndi kalla
formenn bankaráða ríkisbankanna á sinn fund og óska eftir endur-
skoðun á launakerfi bankastjóranna. Þeir hafa ekki ennþá virt hann
svars, og er það ömurlegt hlutskipti fyrir ráðherra.
Vonandi tekst Sighvati betur með að halda sjúkraliðunum í
skefjum — það er trúlega viðráðanlegra verkefni.
Páll Magnússon
PÖsturirm
Vesturgötu 2, 101 Reykjavík,
sími 522-2211 fax 522-2311
Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 522-2243 Tæknideild: 552-4888
Auglýsingadeild: 552-4888, símbréf: 522-2241 Dreifing: 552-4999
Fréttaskotið: 552-1900 Smáauglýsingar: 552-5577
Skrifstofa Morgunpóstsins er opin mánudaga til föstudaga frá 9:00 til 17:00
Dreifingar- og áskriftardeild er opin mánudaga og fimmtudaga
frá 8:00 til 19:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00
Auglýsingadeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 9:00 til 18:00,
aðra virka daga frá 9:00 til 17:00
Smáauglýsingadeildin er opin frá 9:00 til 17:00 virka daga,
til 21:00 á þriðju- og miðvikudögum og milli 13:00 og 21:00 á sunnudögum.
Ummæli
Þetta hljómar nú
ótrúlega
„Efþetta er stœrsta
lygi aldaritinar, þá er
nú aldeilis hœgt að
treysta stjórnmála-
mönnum
Helgadóttir platari.
Er þetta ekki skáldaleyfi?
„Eg skal viðurkenna að ég bcetti
smávœgilega inn í tillöguna til að
skerpa hana. “
Guðmundur J. Guðmundsson annar
platari.
Þetta kemur ekki ftam í
þingtíðindum
„Almenningur lítur á valdið og
meiri eða minni misbeitingu þess
sem óumbreytanlegt náttúrulögmál,
en afstaða almennings til valdhaf-
anna rriótast helst af smjaðri, öfund-
sýki og illkvittni.“
Kjartan Gunnar Kjartansson heims-
spekilega sinnaður ættfræðingur.
Ég sem treysti bara
feitum kokkum
„Mér var sagt upp og skýringin
sem égfékk var
að ég vœri of
feit. Nú
fœru að
koma
vond
veður og
éggxti slasað mig og
aðra ogfengi ég hjartaáfall yrði eng-
in hœgðarleikur að koma mér upp
úr skipinu."
Jóna Kjartansdóttir kokkur.
Furðuleg framganga Morgunpóstsins
Mánudaginn 5. desember síðast-
liðinn var hér í Morgunpóstinum
fjallað um skipun Þórhildar Líndal
lögfræðings í embætti umboðs-
manns barna á þann hátt að fúrð-
um sætir. I stuttu máli er málið
þannig vaxið að forsætisráðherra
valdi þórhildi úr hópi 24 umsækj-
enda um starfið. Var Þórhildur ein
af þremur lögfræðingum sem sóttu
um, en auk þeirra voru meðal ann-
ars sálfræðingar, læknir, kennarar
og fleiri. 1 blaðinu er málinu slegið
upp á forsíðu með stórri mynd af
Þórhildi, um það fjallað á einni
síðu inni í blaðinu og svo skrifuð
ritstjórnargrein. Erfitt er að sjá
hvað teljast eigi athugavert við veit-
ingu embættisins annað en
óánægja annarra umsækjenda.
Samanstendur umfjöllun blaðsins
að mestu af viðtölum við þá. Helst
virðist þar vera um að ræða athuga-
semdir við að Þórhildur, sem
starfsmaður forsætisráðuneytisins,
hafi tekið við umsóknum frá öðr-
um umsækjendum áður en hún
sótti sjálf um. Að vísu er þetta máls-
atriði ekki vel upplýst í blaðinu, en
þó að satt væri, er erfitt að sjá hvaða
þýðingu það hefði, enda liggur fyrir
að umsóknir allra umsækjendanna
bárust ráðuneytinu og komu þar til
athugunar áður en embættið var
veitt.
I lögum um umboðsmann barna
nr. 83/1994 er sagt svo um almenn
hæfisskilyrði umboðsmanns barna:
„Umboðsmaður barna skal hafa
lokið háskólaprófi. Hafi umboðs-
maður barna ekki lokið embættis-
prófi í lögfræði skal lögfræðingur
starfa við embættið." Ekki er á því
nokkur vafi að Þórhildur Líndal
uppfyllir þessi skilyrði. Þar að auki
má lesa út úr þessum texta laganna
óbeina fyrirætlan um að lögfræði-
menntun sé tekin fram yfir aðra há-
skólamenntun. Að minnsta kosti
virðist sparast aukastarfsmaður við
embættið ef lögfræðingur gegnir
starfanum.
Það dugir ekki til að gagnrýna
skipun Þórhildar að aðrir umsækj-
endur séu vonsviknir. Því verður
ekki haidið fram til dæmis að sál-
fræðingur eða læknir hefðu frekar
átt að fá embættið. Gagnrýni byggð
á slíkum hugleiðingum er fráleit.
Skipun Þórhildar Líndal er þannig
hafin yfir alla efnislega gagnrýni.
Þungavigtin
Jón Steinar
Gunnlaugsson
hrl.
En Morgunpósturinn þarf að
leita víðar fanga, því blaðið lætur
sér sæma að dylgja um að einhver
sérstök tengsl milli ráðherrans og
umsækjandans hafi valdið valinu.
Að vísu er ekki unnt að halda fram
pólitískum tengslum, þar sem eng-
inn veit um nein slík tengsl. Þór-
hildur mun sjálf aldrei, svo vitað sé,
hafa skipt sér af pólitísku starfi.
Eiginmaður hennar, sem nefndur
er til sögunnar í blaðinu, er þekktur
framsóknarmaður. Þegar þetta
bregst er gripið til þess að telja ráð-
herrann vera kunningja fjölskyldu
Þórhildar. Þar er að vísu sumt ósatt
sem sagt er. Að öðru leyti er þar
ekki um annars konar kunnings-
skap að ræða en gerist og gengur í
okkar litla samfélagi. Kjarni máls-
ins er sá að stjórnsýslulög hafa að
geyma reglur um það, hvenær ráð-
herra verður vanhæfúr til meðferð-
ar máls vegna tengsla við málsaðila.
Alveg er ljóst að hér var ekki um
neinar vanhæfisástæður að ræða og
fer því raunar víðs fjarri.
Niðurstaðan af þessu öllu er ein-
föld: Ekki er unnt að gera nokkrar
athugasemdir við skipun Þórhild-
ar Líndal í embætti umboðs-
manns barna.
Snefill af kröfum
í leiðara Morgunpóstsins fjallaði
Gunnar Smári Egilsson ritstjóri um
málið. Ekki var þar gerð nein grein
fyrir því hvað væri gagnrýnisvert
við veitingu embættisins heldur
bara gengið út frá því að eitthvað
væri að. Síðan gat þar meðal annars
að líta eftirfarandi texta:
„Ráðherrar hafa hins vegar ekk-
ert lært af þessu. Ef það þjónar
einkahagsmunum þeirra eða
flokksins að ganga fram hjá hæfum
umsækjanda þá gera þeir það. Fyrir
þeim skiptir ekki meginmáli þótt
hver ríkisstofnunin á fætur annarri
séu gerðar hálfónýtar vegna slæ-
legrar og metnaðarlausrar stjórn-
unar. Enginn þeirra finnur hjá sér
hvöt til að styrkja og bæta ríkiskerf-
ið. Þeir líta á stofnanir þess sem
táknrænar fremur en starfshæfar.
Það er þannig í sjálfu sér nógu
mannúðlegt að stofna embætti um-
boðsmanns barna, það skiptir
minna máli hvort það embætti
verði gott eða lélegt.“
Það munar ekki um það. Það er
búið að gera embætti umboðs-
manns barna hálfónýtt með skipun
Þórhildar! það eru kveðjur blaðsins
til hennar þegar hún tekur við hinu
nýja starfi.
Morgunpósturinn á að skamm-
ast sín og biðja Þórhildi Líndal af-
sökunar á þessari furðulegu fram-
göngu. Blað sem vill vera í hlut-
verki gagnrýnanda á málefni sam-
félagsins, þarf sjálft að uppfylla
snefil af þeim kröfum sem það þyk-
ist gera til annarra. Annars tekur
enginn mark á því nokkurn tíma.
Eg óska Þórhildi Líndal lögfræð-
ingi til hamingju með nýja starfið
og þykist viss um að hún eigi eftir
að gegna því með sóma.B
„Það dugir ekki til að
gagnrýna skipun Þór-
hildar að aðrir um-
sœkjendur séu von-
sviknir. Því verður
ekki haldiðfram til
daemis að sálfrœðing-
ur eða lceknir hefðu
frekar átt aðfá emb-
aettið. Gagnrýni byggð
á slíkum hugleiðing-
um erfráleit. Skipun
Þórhildar Líndal er
þannig hafin yftr alla
efnislega gagnrýni. “
Þungavigtarmenn eru meðal annars: Árni Sigfússon, Geir H. Haarde, Halldór Ásgrímsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Erlendsson,
Jón Steinar Gunnlaugsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Óskar Magnússon, Páll Kr. Pálsson, Svavar Gestsson, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson.