Helgarpósturinn - 12.12.1994, Page 12
12
MORGUNPÓSTURINN ERLENT
MANUDAGUR 12. DESEMBER 1994
Enginn
skyldaður í
eyðr
Franska þingið hafnaði í gær
hugmyndum um að stjórnvöldum
yrði gert kleift að skylda Frakka
kerfisbundið til að undirgangast
eyðnipróf. Menn greinir á um
gagnsemi slíks fyrirkomulags, en
víðast í heiminum fara menn sjálf-
viljugir í þessháttar próf.B
Spamaður
íZaire
Forsætisráðherra Zaire hefur lagt
fram fjárlagatillögur fyrir næsta ár
og er þar gert ráð fyrir gríðarlegum
niðurskurði. Ætlunin er að vinna
bug á óðaverðbólgu. Gagnrýnend-
ur segja að þetta sé fullkomlega
óraunhæft, ekki síst í ljósi þess að
Mobutu forseti er sagður hafa
stungið undan mestöllum þjóða-
rauði landsins. ■
Baulað
á Kinkel
Klaus Kinkel, ut-
anríkisráðherra
Þýskalands, fékk
heldur óblíðar við-
tökur þegar banda-
menn hans úr flokki
Frjálsra demókrata
héldu fund í gær til
að ræða afhroð flokksins í þing-
kosningunum í Þýskalandi. Margir
kenna Kinkel um og bauluðu fund-
armenn á hann og hæddu á alla
lund.l
Klaus Kinkel
Fulltaf
njósnurum
dleg Gordíjevskí, KGB-maður-
inn sem flúði til Bretlands fýrir ára-
tug, segist ætla að koma upp um 24
Breta sem voru í þjónustu sovésku
leyniþjónustunnar. Þessar upplýs-
ingar ætlar hann að birta í bók sem
kemur út á næsta ári. Hann segist
meðal annars ætla að nefna stjórn-
málamenn. Margir eru áhyggjufull-
ir út af þessu, meðal annars breska
leyniþjónustan sem kærir sig ekki
um að slíkar upplýsingar verði
gerðar opinberar. ■
Kommar
til hægrí
Massimo D’Alema foringi Lýð-
ræðissinnaða vinstriflokksins sem
áður var Kommúnistaflokkur Ítalíu
segir að gamaldags vinstri flokkar
séu tímaskekkja. Hann vill að flokk-
ur sinn fari að líkjast Verkamanna-
flokknum breska og Jafnaðar-
mannaflokknum þýska og kærir sig
ekki lengur um að vera í bandalagi
með öflum yst til vinstri. Flokkur
D’Alena er stærsti andstöðuflokk-
urinn á ítalska þinginu. ■
Delors fer ekki í framboð
Vmstrimenn í Frakklandi urðu fyrirsárum vonbrigðum í gær þegar Jacques Delors ákvað að bjóða sig ekki fram til
forseta. Hann hefurhaldið þeim í mikilli spennu að undanfömu, en nú erljóst að næsti forseti verður úrröðum
hægrimanna. Nema Delors skipti um skoðun.
Ákvörðun Delors þýðir að forsetakosningarnar eru vinstri mönnum tapaðar.
Jacques Delors, formaður
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, lýsti því yfir í sjónvarp-
sviðtali í gærkvöld að hann ætlaði
ekki að gefa kost á sér í forsetakosn-
ingunum í Frakklandi á næsta ári.
Miklar vangaveltur hafa að und-
anförnu verið um framboð Delors
og hafa skoðanakannanir bent til
að hann gæti jafnvel sigrað sigur-
stranglegustu frambjóðendur
hægrimanna, Jacques Chirac
borgarstjóra í París og Edouard
Balladur forsætisráðherra.
Þessi ákvörðun Delors bakar
frönskum vinstrimönnum sár von-
brigði. Það er ljóst að hann er eini
frambjóðandi þeirra sem gæti velgt
frambjóðendum hægrimanna und-
ir uggum og jafnvel náð að verða
arftaki Franpois Mitterrand for-
seta. Enginn vinstrimaður er í sjón-
máli sem gæti náð viðlíka árangri
og Delors. Líklegast er að margir
frambjóðendur vinstri flokka, allt
frá Sósíalistaflokknum yfir í klofna
flokka græningja og Kommúnista-
flokkinn, munu fá fylgi á bilinu 5 og
upp í hæsta lagi 15 af hundraði í
fyrri umferð kosninganna. Ekki
nægir það til að komast í síðari um-
ferð kosninganna í apríl.
Þá kann að koma upp sú ein-
kennilega staða að tveir hægri-
menn, þeir Chirac og Balladur,
berjist til þrautar í síðari umferð-
inni. Þá er talið líklegt að Chirac
halli sér til hægri, í átt til Þjóðfylk-
ingar Jean-Marie Le Pen, ogjafn-
vel er álitið að hann muni gera hos-
Fréttaskýrendur segja að Helmut
Kohl, kanslari Þýskalands, hafi
staðið á hátindi ferils síns á leið-
togafundi Evrópusambandsins sem
haldinn var um helgina. Blaðið Bild
am Sonntag hafði orð á því hversu
Kohl nyti þess að vera eins konar „-
Herra Evrópa“. Hann hafi stjórnað
fundinum eins og leikstjóri og haft
allt frumkvæði í hendi sér.
Kohl mun tengja saman tvenna
tíma í Evrópu, því elstu bandamenn
hans innan Evrópusambandsins
kveðja brátt. Franpois Mitterrand
Frakklandsforseti lætur af embætti í
vor og Jacques Delors er í þann
mund að láta af starfi framkvæmda-
stjóra EBS. Sökum reynslu sinnar
— og stærðar Þýskalands — bendir
allt til þess að Kohl verði óskoraður
leiðtogi Evrópusambandsins.
Margir telja líka að þungamiðja
Evrópusambandsins kunni að vera
að færast. Evrópusambandið hefur
að miklu leyti byggt á góðu sam-
bandi Frakka og Þjóðverja, og þá
ur sínar grænar fyrir andstæðing-
urn Evrópubandalagsins. Balladur
myndi þá leita fyrir sér á miðjunni
og jafnvel reyna að höfða eitthvað
til vinstri.
Ljóst er að Mitterrand Frakk-
landsforseti vill miklú frekar sjá
Balladur sem eftirmann sinn á for-
setastóli en sinn gamla erkióvin
Chirac.
I sjónvarpsviðtalinu sagði Delors
að hann yrði sjálfsagt gagnrýndur
fyrir þessa ákvörðun. Hann sagði
að í kosningabaráttu yrði hann að
gefa loforð sem hann myndi ekki
geta staðið við, enda þyrfti hann þá
að starfa með þingi sem hægri
flokkarnir stjórnuðu.
Miklar getgátur hafa verið um
fyrirætlanir Delors að undanförnu
og hefur reyndar ekki verið fjallað
um annað meira í fjölmiðlum.
Lengi höfðu menn trú á því að
hann myndi bjóða sig fram, en upp
á síðkastið hafa menn ekki verið
svo ýkja trúaðir á það. Var meðal
annars talið að Delors hafi óttast að
samrunaferlið í Evrópu yrði eld-
fimt kosningamál ef hann byði sig
fram og þá yrði hann eins konar
holdgervingur Evrópusambands-
ins.
Delors sem er 69 ára er talinn í
hópi sósíalista, en þó er honum lít-
ið um stjórnmálaflokka gefið.
Hann er ekki atvinnustjórnmála-
maður og hefur aðeins einu sinni
boðið sig fram, þegar hann var
kjörinn borgarstjóri í Clichy 1983.
Hann var fjármálaráðherra Frakk-
ekki síst persónulegri vináttu Mitt-
errand og Kohl. Nú þykjast menn
greina að þungamiðjan muni 'færast
í átt til Bonn og síðan Berlínar, ekki
síst með inngöngu nýrra ríkja í Evr-
ópusambandið.
Svíþjóð, Austurríki og Finnland,
ríkin þrjú sem ganga í Evrópusam-
bandið um áramótin sátu ásamt
fulltrúum Evrópusambandsríkj-
anna tólf við ráðstefnuborðið.
Á laugardaginn var svo hádegis-
verðarfundur með fulltrúum frá
Tékklandi, Póllandi, Ungverjalandi,
Slóvakíu, Rúmeníu og Búlgaríu,
Austur-Evrópuríkjanna sex sem lýst
hafa áhuga á að ganga í Evrópusam-
bandið.
Kohl hefur verið mjög áfram um
að vinsamlega verði tekið í um-
sóknir þessarra ríkja, enda telja
Þjóðverjar að aukin velmegun þar
sé trygging fyrir stöðugleika í Aust-
ur-Evrópu.
Það lá við að Kohl væri farinn að
grobba sig á fundinum, svo ánægð-
lands í hátt í fjögur ár, og þá fékk
hann Sósíalistastjórn Mitterrands
ofan af þjóðnýtingaráformum sem
ollu miklum efnahagserfiðleikum.
Þvínæst tók hann við embætti sínu
hjá Evrópusambandinu og þykir
hafa tekið skörulega á málum, þótt
reyndar sé hann ekki ýkja vinsæll á
Bretlandi. Víst er að hann hefur sett
ur var hann með sjálfan sig. Hann
sagði að hann hefði „sérstöku hlut-
verki að gegna“ og þá fyrst og
fremst sem kanslari Þýskalands sem
mark sitt á Evrópusambandið og
hefur haft yfirumsjón með sam-
runaferlinu með hvort tveggja lagni
og hörku.
Delors nýtur mikillar virðingar í
Frakklandi sem telja sig sjá í honum
góða blöndu af heiðarlegum stjórn-
málamanni og skrifflnni sem kann
að koma hlutunum í verk. Ekki sak-
er veigamesta nágrannaland Aust-
ur-Evrópuríkja, en einnig vegna
góðra persónulegra tengsla sinna í
Moskvu og Washington.B
ar heldur að nýverið lét hann frá sér
bók sem þótti vit í. Þar skrifaði
hann meðal annars að „nú þyfti að
koma Frakklandi á hreyfmgu á ný“.
Það gaf mörgum vinstrimannin-
um vonir um að hann Delors hugs-
aði sér til hreyfmgs í átt að forseta-
stjólnum. Þær vonir hafa reynst tál-
sýn. -eh
Ríkisstjóm
ífæðingu
Ný ríkisstjórn viroíst loks í sjón-
máli á írlandi eftir að stjórn Al-
bert Reynolds féll með skömm
fyrir nokkrum vikurn. Allt bendir
nú til þess að flokkur hans, Fianna
Fail, og nýr formaður hans Bertie
Ahern, þurfi að sæta því að vera út
undan.
Fianna Fail, sem kannski er best
lýst sem eins konar írskum Fram-
sóknarflokki, hefur setið lengst
allra flokka í stjórn á frlandi.
Flokkurinn hefur á sér mikið spill-
ingarorð.
Dick Spring formaður Verka-
mannaflokksins, John Buton for-
maður Fine Gail og Prionisias de
Rossa, leiðtogi lítils flokks sem
þykir afar langt til vinstri, hafa átt í
alvarlegum stjórnarmyndunarvið-
ræðum síðustu daga. Fine Gail er
hægri flokkur af nokkuð klassísk-
um evrópskum skóla, hann er
næst stærsti flokkur landsins en
fjandskapurinn milli hans og Fi-
anna Fail er slíkur að hann kýs
frekar að vinna með vinstri flokk-
um en með erkióvininum. Líklega
yrði Buton forsætisráðherra í nýrri
stjórn en Spring yrði utanríkisráð-
herra.B
Leiðtogafundur Evrópusambandsins
Kohl er ánægður með sjálfan sig og hefur líklega ástæðu til.
Tsjetsjnía
Rússar gera
Það fór eins og flestir töldu að
Rússar biðu ekki lengi áður en þeir
létu til skarar skríða og réðust inn í
Tsjetsjníu í Norður-Kákasus. Þeir
hyggjast ekki umbera stjórn
Dzhokars Dúdajevs forseta sem
lýsti yfir sjálfstæði landsins fýrir
þremur árum.
Fréttir af atburðum eru mót-
sagnakenndar, ekki virðist hafa
komið til mikilla bardaga, en
miklir herflútningar eru eftir öll-
um leiðum inn í Tsjetsjníu. Rússar
nota hernaðarmátt sinn og með í
för eru hundruð skriðdreka og
brynvarðra farartækja.
Rússar sækja fram úr þremur
áttum til höfuðborgarinnar
innrás
liðsmenn Dúdajevs eru ákaflega
harðsnúnir og nota íslamska trú til
að efla sér dug. Dúdajev segir að
Tsjetsenar muni berjast til síðasta
manns.
Mikilvægi Tsjetsjníu liggur ekki
síst í því að í landinu eru miklar
olíuhreinsunarstöðvar og olíu-
leiðslur liggja þar í gegn frá Ka-
spíahafi og norður til Rússlands.
Mannfjöldi mótmælti hernaði
Rússa í Tsjetsjníu á götum
Moskvu í dag. Boris Jeltsín ligg-
ur undir miklu ámæli fýrir það
hvernig hann hefur haldið á mál-
um, ekki síst frá frjálslyndari
stjórnmálamönnum.
sjá fréttaskýríngu á bls. 14
Grozní og er talið að þeir muni
setjast um hana og knýja Dúdajev
þannig til uppgjafar fremur en að
ráðast beinlínis á borgina. Slík árás
gæti orðið hið mesta blóðbað, því
..-íM-
Attman rítskoðaður
í Bandaríkjunum ríkir mikill tvískinn-
ungur í ritskoðunarefnum. Par er
blómlegur klámiðnaður, en í sjónvarpi
má varla svo mikið sem blóta. í Holly-
wood verða menn líka að passa sig.
Að því komst leikstjórinn frægi Ro-
bert Altman á dögunum þegar sam-
band bandarískra kvikmyndafram-
leiðenda ákvað að stöðva útgáfu plak-
ats þar sem auglýst er nýjasta mynd
leikstjórans Prét-A-portcr. Á plakatinu er
danska fegurðardísin Helena Christ-
ensen heldur klæðlítil. Myndin gefur
fyrirheit um innihald myndarinnar, en
hún fjallar um tískuheiminn. Þess má
svo geta að í myndinni syngur Björk
okkar lag af plötunni Gling gló.